Fréttablaðið - 15.05.2021, Blaðsíða 2
Sápukúlur í stóru upplagi
Gríðarstórar sápukúlur hefja stutt ævihlaup sitt á Lækjartorgi í gær. Hin svokallaða Sápukúlusmiðja er verkefni á vegum Reykjavík Tool Library og Verkstæða
Borgarbókasafnsins þar sem efnilegir kúlnasmiðir læra inn á merkt listformið og þrífa í leiðinni götur borgarinnar með afar óskilvirkum hætti.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Beint morgunflug
Alicante í haust
Flugsæti
eingöngu
Benidorm
Altea
Frá 19.990 kr
www.aventura.is
Sundagarðar 2 - 104 Reykjavík
Sími: 556 2000
Dóra Jóhannsdóttir hefurkennt Improv-námskeið á Íslandi frá árinu 2013.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Íslendingar hafa leitað til Im
provskólans til að ná takt
inum í mannlegum samskipt
um á ný eftir mikla fjarvinnu.
Dóra Jóhannsdóttir, stofnandi
skólans, segir að margir komi
þungir á námskeiðið en það sé
stutt í hláturinn.
kristinnpall@frettabladid.is
SAMFÉLAG Aukin aðsókn hefur verið
á námskeið Improvskólans undan
farnar vikur, enda styttist í að það
sem áður taldist eðlilegt líf hefjist
á ný og sóttkví og einangrun heyri
sögunni til.
„Það hefur verið ótrúlega gaman
að fylgjast með þessu, að sjá fólk
brjótast aftur út úr skelinni sinni,“
segir Dóra Jóhannsdóttir, stofnandi
og kennari við skólann, spurð út í
aðsóknina.
Í Improvskólanum er lögð áhersla
á ýmis mannleg samskipti og er
óhætt að áætla að margir Íslendingar
séu heldur óöruggari um hvað ræða
skuli við kaffivélina í vinnunni eftir
mikla fjarvinnu undanfarið ár.
„Fólk er svolítið að skríða aftur í
dagsljósið úr einangrun, sóttkví og
öllu þessu sem hefur verið í gangi
undanfarið ár,“ segir Dóra létt í
bragði og heldur áfram:
„Fyrir vikið er komin mikil þörf í
samfélaginu fyrir að vera í kringum
fólk. Það hafa margir viðurkennt að
hafa einfaldlega gleymt því hvernig
á að hafa gaman. Það sé orðið allt
of langt frá síðasta hláturskasti og
jafnvel búið að gleyma hvernig á að
taka frumkvæði í mannlegum sam
skiptum. Það eru allt aðrar áherslur
í mannlegum samskiptum í dag
heldur en það sem áður þekktist og
margir finna fyrir því að þurfa að
skerpa á hlutunum í þessu.“
Rannsóknir hafa sýnt að andlegri
heilsu hafi hrakað í heimsfaraldr
inum enda hafa margir einangrast
frá samfélaginu. Dóra kannast við
þá sálma.
„Það eru margir sem hafa orð á því
að andleg líðan sé mun þyngri eftir
þennan faraldur. Margir tala um
að lífsgleðin sé ekki sú sama og þar
vegur skorturinn á félagslegum sam
skiptum talsvert að mínu mati. Fólk
er búið að halda inni í sér í langan
tíma en það sér ljós fyrir enda gang
anna,“ segir Dóra og segir kennslu
efnið einfalt.
„Námskeiðið snýst fyrst og fremst
um að hafa gaman, halda ekki aftur
af sér og hlæja. Það er mikið um
hlátur á námskeiðinu. Fyrir vikið
finnum við fyrir miklu þakklæti hjá
þeim sem hafa setið námskeiðið.“
Dóra segir að það sé í eðli okkar að
vera skemmtileg en stundum þurfi
aðstoð til að draga það fram. „Mín
reynsla er sú að allir einstaklingar
eru skemmtilegir inn við beinið.
Það eru allir með það í sér að vera
skemmtilegir. Ef einstaklingar hlusta
og leyfa innsæinu að ráða þá eru allir
skemmtilegir í sínu eðli.“ n
Brjótast út úr skelinni sinni
Ef einstaklingar hlusta
og leyfa innsæinu að
ráða þá eru allir
skemmtilegir í sínu
eðli.
Dóra Jóhanns-
dóttir, stofnandi
Improv-skólans.
linda@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Gríðarlegur skort
ur á geðlæknum hefur valdið því
að mikill fjöldi fullorðins fólks, 18
ára og eldra, kemst ekki að í ADHD
greiningu hjá Landspítalanum fyrr
en eftir mjög langan tíma.
„Sá vandi sem einkennir ADHD
eykur líkur á öðrum geðröskunum
eins og kvíða, depurð og fíknivanda.
Þetta er því vissulega slæm staða,“
segir Halldóra Jónsdóttir, yfir
læknir Meðferðareiningar geðrofs
sjúkdóma hjá Landspítalanum. Bið
eftir greiningu þar getur verið yfir
þrjú ár.
Geðlæknar hafa undanfarið fært
sig yfir í ný geðheilsuteymi heilsu
gæslunnar. „Eins og staðan er nú er
enginn geðlæknir í ADHD teymi
Landspítala þannig að teymið
getur einungis sinnt greiningum,
ekki lyfjameðferð, því miður,“ segir
hún. Bæði er einnig dýrt og erfitt að
komast að hjá geðlæknum á stofu.
„Þetta er alvarleg staða, en við
höfum einfaldlega ekki geðlækna
til að sinna þessari þjónustu. Það er
töluverður fjöldi ungs fólks að sér
hæfa sig í geðlækningum en enginn
sem klárar námið í bráð,“ segir Hall
dóra. n
Enginn geðlæknir er lengur við störf
hjá ADHD teymi á Landspítalanum
Bið eftir greiningu
getur verið yfir þrjú ár.
thorgrimur@frettabladid.is
FERÐAMANNAIÐNAÐUR Aprílmán
uður var fyrsti mánuður ársins
2021 þar sem fleiri farþegar fóru um
Keflavíkurflugvöll en í fyrra. Kom
þetta fram í frétt á vefsíðu Túrista.
Fjöldi farþega í apríl nam 18.868,
sem er sexföld aukning miðað við
farþegafjölda árið 2020.
Árið 2020 var apríl fyrsti heili
mánuðurinn þar sem áhrifa Covid
19 gætti á Íslandi eftir að sóttvarna
aðgerðir tóku gildi. Af leiðingar
aðgerðanna fólu í sér gríðarlegan
samdrátt í tíðni f lugferða til og frá
landinu.
Kristján Sigurjónsson, ritstjóri
Túrista, bendir á, í samtali við Frétta
blaðið, að þótt ferðir um Keflavíkur
flugvöll hafi verið fleiri síðastliðinn
apríl en í fyrra, er enn langt í að sama
fjölda farþega sé náð og fóru um völl
inn í apríl 2019. Þá fóru 474.519 far
þegar um flugstöðina. Kristján segir
að varlega verði að túlka þennan
samanburð sem merki um bata í
ferðamannaiðnaðinum. n
Farþegum hingað
til lands fjölgar
Farþegum hefur snarfækkað síðasta
eina og hálfa árið miðað við fyrri ár.
2 Fréttir 15. maí 2021 LAUGARDAGUR