Fréttablaðið - 15.05.2021, Side 4
Ingibjörg Ösp
Stefánsdóttir
stjórnarformaður
Hörpu
Við sjáum fyrir
endann á þeim
miklu takmörkun
um sem litað hafa líf okkar síðustu
misseri. Það er tilhlökkunarefni
að á menningarnótt verður tíu ára
afmælinu fagnað um leið og starf
semi hússins kemst aftur í takt. Þá
verður hátíð í höfuðborginni, hátíð
okkar allra. Megi Harpa hljóma
fagurlega um ókomna tíð.
Vala Hafstað
blaðamaður og skáld
Það sem virðist
hafa gleymst er að
konur eru og verða
alltaf menn. „Það
á ekki að kjósa mig
af því að ég er kona, það á að kjósa
mig af því að ég er maður, og innan
orðsins maður er bæði karl og
kona,“ sagði Vigdís Finnbogadóttir
árið 1980. Þetta hefur lýðum verið
ljóst fram að þessu, en nú er allt
gert af ákveðnum þrýstihópum til
að véfengja það.
Bolli Héðinsson
hagfræðingur
Þegar stjórnar
skrárfrumvarp
um þjóðareign á
auðlindum var sett
fram fyrir nokkr
um árum gengu Vinstri græn í takt
við þjóðina og kröfðust ákvæðis í
stjórnarskrá um eign þjóðarinnar
á auðlindum sem kvæði skýrt á
um fullt endurgjald fyrir afnot af
þjóðareignum ella yrði ákvæðið
orðin tóm. Eftir að Vinstri græn
komust í ríkisstjórn er komið
annað hljóð í strokkinn.
2.500
sumarstörfum hefur verið út-
hlutað hjá Vinnumálastofnun.
12
þúsund Íslendingar eru taldir
glíma við alvarlega ofþyngd.
62
prósent landsmanna eru
skráð í þjóðkirkjuna.
4
milljarðar eru tekjur sem
taldar eru tapast vegna er-
lendra veðmálasíðna.
900
milljónir voru vaxtagjöld
Vaðlaheiðarganga árið 2019.
BJÓÐUM UPP Á 37” - 40” BREYTINGAPAKKA
BREYTINGAVERKSTÆÐI ÍSBAND,
SMIÐSHÖFÐA 5, SÉRHÆFIR SIG Í
BREYTINGUM Á RAM PALLBIFREIÐUM.
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
RAM 3500
BÍLL Á MYND RAM 3500 LARAMIE SPORT MEGACAB MEÐ 35” BREYTINGU
VERÐ FRÁ 7.421.210 KR. ÁN VSK.
9.202.300 KR. M/VSK.
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
ÁRÉTTING
Í tengslum við sýninguna Karó línu
vefara verður á HönnunarMars
kynning á útsaumi í Aðalstræti 10.
n Þetta sögðu þau
n Tölur vikunnar
Allt bendir til þess að
ákvörðun yfirvalda um
að opna landamærin utan
Schengen spili stóran þátt í
að auka ferðaáhuga á Íslandi.
Leitarfyrirspurnir vegna
eldgossins í Geldingadölum
eru færri núna en leitarfyrir
spurnir þegar gaus í Holu
hrauni árið 2014.
mhj@frettabladid.is
FE R ÐAÞJÓ NUS TA Áhugi ferða
manna á Íslandi heldur áfram að
aukast og benda gögn til þess að
ákvörðun yfirvalda um að opna
landamærin eigi stærstan þátt
í því, samkvæmt Íslandsstofu.
„Við sáum talsverða aukningu í
leitarfyrirspurnum þegar tilkynnt
var að Ísland myndi heimila bólu
settum ferðamönnum utan Scheng
en að heimsækja landið, sem vakti
mikla athygli í Bandaríkjunum.
Að sama skapi sáum við mikla
aukningu í áhuga Breta í kjölfar
þess að tilkynnt var að Ísland væri
á grænum lista fyrir ferðamenn þar
lendis. Þá var talsverð umfjöllun um
eldgosið í Geldingadölum á fyrstu
dögum gossins, auk þess sem að þó
nokkur umfjöllun var um landið í
tengslum við Óskarsverðlaunatil
nefningu lagsins Húsavík,“ segir
Daði Guðjónsson, fagstjóri Neyt
endamarkaðssviðs Íslandsstofu.
Samkvæmt könnunum Íslands
stofu frá lokum febrúar stefna 58%
Bandaríkjamanna sem ferðast reglu
lega, á að ferðast í ár. „Það er dálítið
erfitt að setja puttann á það hvað á
mestan þátt í að auka áhuga á land
inu, en gögn benda til þess að ákvarð
anir um að opna landamærin hafi átt
stærstan þátt í því. Eldgosið virðist
hafa vakið áhuga fjölmiðla í stuttan
tíma, en almennt virðist fólk ekki
mikið vera að leita að upplýsingum
um það, sem gæti bent til að almenn
vitund um það sé lítil,“ segir Daði.
Samkvæmt greiningu sem Sahara
Social Media gerði fyrir Íslands
stofu um leitarfyrirspurnir vegna
eldgossins í Geldingadölum þá eru
færri að leita að „Volcano Iceland“
núna en þegar það gaus í Holu
hrauni árið 2014. Þá eru leitarfyrir
spurnirnar ekkert í líkingu við eld
gosið í Eyjafjallajökli árið 2010.
Neytendarannsókn Íslandsstofu
meðal helstu markhópa á helstu
mörkuðum sýnir að ferðamenn eru
mjög jákvæðir gagnvart Íslandi.
„Það er mikil jákvæðni gagnvart
Íslandi og mikið traust um hvernig
við erum að meðhöndla Covid19.
Ísland mælist hæst af þeim löndum
sem við berum okkur saman við
gagnvart trausti,“ segir Daði.
Aðspurðir hversu jákvæðir eða
neikvæðir svarendur eru gagnvart
ákveðnum ferðaáfangastöðum,
voru á milli 8283% svarenda
jákvæðir gagnvart NýjaSjálandi,
sem var hæsta hlutfallið. Þar á eftir
var Ísland, en um 76% svarenda
voru jákvæðir gagnvart Íslandi.
Þá sögðust rétt rúmlega 10%
svarenda ætla að heimsækja Ísland
á næstu 12 mánuðum. Daði segir
þetta sýna að íslensk ferðaþjónusta
geti endurheimt fyrri stöðu.
„Reynslan hefur kennt okkur að
svona meðbyr er hægt að nýta vel
í markaðssetningu. Það er hægt
að virkja þennan áhuga og fá fólk
til þess að heimsækja landið með
markvissum aðgerðum. Við teljum
því tvímælalaust að það séu mikil
tækifæri í stöðunni fyrir íslenska
ferðaþjónustu að ná vopnum sínum
á nýjan leik og endurheimta fyrri
stöðu,“ segir Daði. n
Áhugi eykst en ekki vegna eldgoss
Færri hafa leitað að eldgosinu í Geldingadölum á Google en að gosinu í Holuhrauni árið 2014. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
0
5.000.000
10.000.000
15.000.000
20.000.000
25.000.000
m
ar
s 2
02
1
Fa
gr
ad
al
sf
ja
ll
n Iceland eruption
n Volcanic
eruption Iceland
n Volcano Iceland
ág
ús
t 2
01
4
H
ol
uh
ra
un
m
aí
2
01
1
Gr
ím
sv
öt
n
ap
ríl
2
01
0
Ey
ja
fja
lla
jö
ku
ll
nó
ve
m
be
r 2
00
4
Gr
ím
sv
öt
n
✿ Leitarfyrirspurnir um yfirstaðin eldgos
4 Fréttir 15. maí 2021 LAUGARDAGUR