Fréttablaðið - 15.05.2021, Síða 10

Fréttablaðið - 15.05.2021, Síða 10
Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík - Sími 569-6000 - www.os.is Útboð verkefna á sviði jarðhita, rafvæðingu heimila og grænnar nýsköpunar í Rúmeníu á vegum Uppbyggingarsjóðs EES, verður kynnt á veffundi 19. og 20. maí kl. 8:00-16:00 Sjá nánari upplýsingar á os.is Markmið verkefnanna er að auka endurnýjanlega orku, græna nýsköpun og auka samstarf milli Íslands, Lichtenstein, Noregs og Rúmeníu Veittur er stuðningur við verkefni með eftirfarandi áherslur: • auka uppsett afl frá jarðhita • auka fjölda nýrra eða endurnýjaðra mannvirkja til að auka notkun jarðhita • rafvæðingu heimilanna • græn nýsköpun Einnig verður boðið upp á samstarfsfundi aðila. Mikilvægt er að aðilar skrái þátttöku á os.is Minnst 130 liggja í valnum eftir átök Ísraela og Palestínu- manna síðustu daga. Ísraelar útiloka ekki innrás á Gasa og segja að átökin haldi áfram eins lengi og þörf sé á. Forsæt- isráðherra hvetur til vopna- hlés. Boðað hefur verið til mótmæla á Austurvelli í dag. arib@frettabladid.is MIÐ-AUSTURLÖND Minnst 130 liggja í valnum og hátt í þúsund eru særðir í átökum Ísraela og Palestínumanna síðustu daga, af þeim látnu eru átta Ísraelar. Af þeim 122 Palestínu- mönnum sem hafa látið lífið eru 31 barn. Þrátt fyrir ákall alþjóðasam- félagsins um að átökunum verði hætt hefur Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, heitið því að árásum verði haldið áfram „eins lengi og þörf er á“. Bætti hann við að Hamas-samtökin, sem og „aðrir hryðjuverkahópar“ muni gjalda árásir sínar dýru verði. Er hann að íhuga að fangelsa þá sem taka þátt í uppþotum í óákveðinn tíma, án ákæru. Í fyrrinótt skutu Hamas um 250 flugskeytum að ísraelsku borgunum Ashkelon, Beersheba og Yavne. Fjöldi borgara leitaði sér skjóls í loft- varnarbyrgjum en engar fréttir hafa borist af mannfalli. Ísraelar svöruðu með loftárásum og stórskotahríð. BBC hefur talsmanni ísraelska hersins að markmið næturinnar hafi verið að eyða undirgöngum á vegum skæruliða Hamas, en engar hersveitir hafi farið inn á Gasa- svæðið. Ísraelar segja jafnframt að fjöldi þeirra sem hafi látist hafi verið skæruliðar og sumir hafi látist af völdum gallaðra eldflauga sem hafi átt að skjóta á Ísrael. Ísraelsher hefur sent hersveitir og skriðdreka að landamærum Gasa, segja þeir að það komi til greina að senda inn herlið. Hamas samtökin segjast vera tilbúin að hætta öllum árásum ef alþjóðasamfélagið þrýsti á Ísraela að hætta „öllum hernaðar- umsvifum“ við al-Aqsa moskuna í Jerúsalem. BBC hefur eftir Mark Regev, aðstoðarmanni Netanjahús, að bolt- inn sé hjá Hamas. „Við vildum ekki þessi átök, en þar sem þau eru hafin þá þarf þeim að ljúka með friði. Það er aðeins hægt með því að Ísrael ráði niðurlögum Hamas, hernaðarinn- viðum þeirra og stjórnar.“ Fjórir hafa látið lífið á Vestur- bakkanum. Ísraelsher skaut viðvör- unarskotum á mótmælendur sem fóru yfir landamærin frá Líbanon. Sjónvarpsstöð í eigu Hezbollah- samtakanna sagði að einn hefði særst. Samkvæmt Al-Jazeera kom til átaka á milli jórdönsku lögregl- unnar og mótmælenda sem ætluðu sér að fara inn á Vesturbakkann. Antonio Guterres, aðalfram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur hvatt Ísraela og Palestínumenn til að semja umsvifalaust um vopna- hlé. Katrín Jakobsdóttir, forsætis- ráðherra, tók undir þetta eftir fund ríkisstjórnarinnar í gær. „Ég náttúrulega bara minni á orð Guterres sem hvetur aðila til að fara í vopnahlé strax og ég tek eindregið undir hans orð, því fórnarlömbin í þessu eru almennir borgarar og börn þar á meðal,“ sagði Katrín. Þingflokkur Vinstrihreyfingar- innar – græns framboðs sendi í gær- morgun frá sér tilkynningu þar sem framferði Ísraelsmanna er fordæmt. Félagið Ísland-Palestína hefur boðað til mótmæla á Austurvelli í dag, laugardag, klukkan 13.00. ■ Ekkert lát á átökum á Gasa Palestínumenn virða fyrir sér leifar hverfis í bænum Beit Hanun í norðurhluta Gasa. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Ég náttúrulega bara minni á orð Guterres sem hvetur aðila til að fara í vopnahlé strax og ég tek eindregið undir hans orð, því fórnarlömbin í þessu eru almennir borgarar og börn þar á meðal. Katrín Jakobs- dóttir forsætis- ráðherra. thorgrimur@frettabladid.is BANDARÍKIN Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna (CDC) gaf á fimmtu- dag út þá yfirlýsingu að grímuskyldu skyldi af létt fyrir fólk sem hefur verið bólusett að fullu gegn Covid- 19. Um það gildi þó undantekningar þar sem staðarlög eða reglugerðir kveða á um annað, þar á meðal á vinnustað eða í fyrirtækjum. „Allir sem hafa verið bólusettir að fullu mega taka þátt í viðburð- um innan- og utandyra, stórum og smáum, án þess að bera grímu eða þurfa að gæta fjarlægðar frá öðrum,“ sagði Rochelle Walensky, framkvæmdastjóri CDC, á blaða- mannafundi. „Ef maður er bólu- settur til fulls má byrja að gera allt sem maður hætti að gera út af far- aldrinum.“ Walensky sagði þetta vera stund sem boðaði endurkomu til eðlilegra ástands. Óljóst er hvernig reglum um grímu skyldu verður framfylgt þar sem ógerningur er að bera kennsl á bólusetta nema með framvísun vottorðs. Samkvæmt talningum CDC hafa um 45 prósent fullorð- inna Bandaríkjamanna fengið að minnsta kosti eina sprautu gegn Covid-19 og um 33 prósent verið bólusett að fullu. Nokkuð hefur þó hægst á bólusetningum á síðustu vikum. ■ Grímuskyldu bólusettra aflétt Bandaríkjamenn sem hafa verið bólusettir gegn Covid fá nú að leggja andlitsgrímurnar til hliðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY benediktboas@frettabladid.is PALESTÍNA Boðað hefur verið til mótmæla til stuðnings Palestínu undir yfirskriftinni Stöðvum blóð- baðið í dag, laugardag, á Austurvelli klukkan 13. Í tilkynningu frá skipuleggj- endum segir að í síðustu viku hafi Ísrael ráðist á al-Aqsa moskuna á síðustu dögum heilagasta mánaðar múslima og árásirnar hafi staðið yfir síðan. „Nú hefur Ísrael ákveðið að þjóðernishreinsa hverfið Sheik Jarrah í Austur-Jerúsalem, svæði sem er hertekið og Ísrael hefur enga réttmæta lögsögu yfir,“ segir Yousef Ingi Tamimi, einn af skipuleggj- endum mótmælanna. Það er krafa mótmælenda að íslensk stjórnvöld grípi til tafarlausra aðgerða og leggi viðskiptabann á Ísrael. ■ Mótmæla í dag til stuðnings Palestínu 10 Fréttir 15. maí 2021 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.