Fréttablaðið - 15.05.2021, Side 18
Í LOFTINU
Sækja frá
SÆKTU NÝJA APPIÐ!
LAUGARDAGA 16:00-18:30
VEISTU HVER ÉG VAR?
Eyrún Ævarsdóttir og Jóa-
kim Meyvant Kvaran fengu
bæði sirkusbakteríuna á
unglingsaldri og menntuðu
sig í fræðunum í Rotterdam.
Undanförnum vikum hafa
þau eytt mikið til á hvolfi við
undirbúning sýningarinnar
Allra veðra von sem frum
sýnd var í Tjarnarbíó í gær.
Sirkusparið Eyrún og Jóakim kynntist í leiklistarstarfi á unglingsárum. „Við fórum f ljótlega bæði að mæta á sirkusæfingar hjá hóp sem
seinna fékk nafnið Sirkus Íslands.
Þar fengum við sirkusbakteríuna
nokkuð rækilega og höfum lítið
annað getað hugsað um síðan,“
útskýrir Eyrún og heldur áfram:
„Við höfum verið saman í að verða
tíu ár núna, og höfum á þeim
tíma gengið í gegnum ýmislegt.
Við fórum bæði í sirkuslistanám í
Rotter dam og bjuggum þar í fimm
ár, en frá útskrift höfum við búið á
Íslandi og starfað sem sirkuslista
fólk bæði við sýningar og kennslu.“
Eyrún og Jóakim stunduðu nám
við listaháskólann Codarts í Rott
erdam, en auk sirkusdeildar er þar
dans og tónlistardeild. Um var að
ræða fjögurra ára nám sem lýkur
með BAgráðu í sirkuslistum.
„Eyrún sérhæfði sig í loftfim
leikareipi og akróbatík, en ég sér
hæfði mig í súluklifri eða chinese
pole og akróbatík. Námið er mjög
fjölbreytt, en auk sirkustækninnar
lærum við fög eins og leiklist, dans,
tónlist, spuna, sköpun og f leira,“
segir Jóakim.
„Á þessum fimm árum sem við
vorum úti kynntumst við betur
sirkusheiminum sem hefur verið að
þróast erlendis, þá sérstaklega því
sem kallast nýsirkus eða contem
porary circus, þar sem sirkusgrein
arnar eru teknar út fyrir ramma
hins klassíska sirkuss og nýttar sem
listform á svipaðan hátt og dans eða
aðrar sviðslistir,“ útskýrir Eyrún.
Sirkusinn fullt starf
Frá heimkomu hafa þau verið sjálf
stætt starfandi sirkuslistafólk og
eingöngu starfað við það. „Árið
2018 tókum við þátt í að stofna
sirkuslistafélagið Hringleik, sem
er hópur sirkusfólks sem miðar að
því að byggja upp sirkusmenningu
á Íslandi og kynna sirkuslistina fyrir
Íslendingum í þeim ólíku myndum
sem hún getur tekið,“ segir Eyrún
og Jóakim bætir við að undanfarin
ár hafi þau skapað sjálfstæðar sýn
Dýnamík og dramatík
Eyrún og Jóakim
fengu bakterí-
una snemma og
ákváðu að klára
háskólagráðu
í sirkuslistum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANT-
ON BRINK
Jóakim segir
það venjast
furðulega
hratt að vera á
hvolfi ef það er
stundað reglu-
lega, eins sé
sjaldan verra að
sjá heiminn frá
öðru sjónar-
horni.
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
ingar og komið fram á ýmsum við
burðum.
„Eins höfum við kennt í Æsku
sirkusnum, sem er sirkusstarf fyrir
börn og unglinga og frábær vett
vangur fyrir krakka að kynnast og
æfa sig í sirkuslistum allt árið um
kring.“
Veðrátta og veður-árátta
En að sýningunni sem nú fyllir
Tjarnarbíó af loftfimleikum og
akróbatík, Allra veðra von, sem
þegar líður á mun ferðast um landið
og þá vera aðlöguð sýningum undir
berum himni, í flestum veðrum.
„Í sýningunni notum við tungu
mál sirkuslistanna, í þessu til
viki loftfimleika í reipi og trapísu,
akróbatík og súluklifur, í bland við
leiklist, tónlist, búninga og ýmislegt
annað sprell til að leika okkur með.
Veðrið, orkuna í því, hvernig það
hefur áhrif á okkur mannfólkið, á
samfélagið, á sögurnar og tilfinn
ingar okkar. Í sirkuslistinni höfum
við mikla dýnamík og dramatík,
en líka léttleikann og fjörið sem á
margt sameiginlegt með veðrinu.“
Jóakim segir Allra veðra von vera
hálfgert rannsóknarverkefni hóps
ins.
„Hugmyndin er sprottin úr leit
okkar að leiðum til þess að geta
ferðast um landið og sýnt sirkus
sýningar á stöðum sem hafa kannski
ekki leikhúsaðstöðu sem hentar
undir loftfimleika. Sirkuslistin getur
verið ansi plássfrek og þarf oft mikla
lofthæð og mikið pláss til að njóta
sín sem best. Okkur langaði því að
búa til útisýningu og þá lá beint við
að taka íslenska veðráttu og veður
áráttu okkar Íslendinga inn í spilið.“
Í hópnum eru tveir sirkuslista
menn sem ólust upp á suðurhveli
jarðar, en Tom Burke er frá Hawaii
og Nick Candy frá Ástralíu. „Annar
kemur því frá hitabeltiseyju og hinn
eyðimörk,“ segir Eyrún. „Svo það
hafa komið upp fjölmargar áhuga
verðar umræður og hugmyndir
um orðanotkun, hegðun og þýð
ingu veðurs í sköpunarferlinu sem
margar hverjar hafa skilað sér inn í
sýninguna.“
Ómetanlegt að hjálpast að
Eyrún og Jóakim eru ekki eina parið
í sýningunni en þau benda á að það
henti vel enda séu margar sirkus
greinar paragreinar. „Þá getur það
einfaldað hluti að vera par, þó að það
hafi eflaust flækt þá enn meira hjá
mörgum,“ segir Eyrún í léttum tón.
„Þó að vissulega geti það verið
krefjandi að vinna svona þétt saman
hefur það reynst okkur vel að vera í
þessu saman og við finnum mikinn
stuðning af hvort öðru. Þessi leið
sem við höfum valið okkur getur
oft verið krefjandi og það hefur verið
ómetanlegt að geta hjálpast að, bæði
faglega en ekki síst að geta sýnt hvort
öðru skilning þegar lítið annað
kemst að,“ bætir Jóakim við. n
Þessi leið sem við
höfum valið okkur
getur oft verið krefj-
andi og það hefur verið
ómetanlegt að geta
hjálpast að.
Jóakim
HELGIN 15. maí 2021 LAUGARDAGUR