Fréttablaðið - 15.05.2021, Side 26
Karl Fannar Sævarsson hefur
lengi haft mikinn áhuga á
því byggða umhverfi sem við
höfum skapað okkur og eru
blokkir þar efst í virðingarlist-
anum, enda blokkir bestar.
Karl Fannar sem á að baki menntun í húsgagna-s m íði , m a n n f r æ ði , hnattrænum fræðum og opinberri stjórnsýslu,
hefur lengi haft mikinn áhuga á
byggingarlist, mismunandi bygg-
ingarstílum og öðru sem snertir
borgarlandslag.
„Það má í raun segja að áhugi
minn á félagslegum þáttum og
byggingarlist hafi sameinast í eitt
þegar ég stofnaði Instagram-síðuna
Blokkir eru bestar.“
Á umræddri Instagram-síðu birtir
Karl reglulega myndir af blokkum
borgarinnar, en landsbyggðin er
þó ekki alveg undanskilin. Mynd-
birtingarnar skapa svo líf legar
umræður fylgjenda síðunnar.
„Mér finnst dásamlegt hvernig
fólk, eins mismunandi og það er,
kemur saman undir einu þaki til
að lifa sínu lífi. Við mannfólkið
erum félagsverur og okkur líður
vel í kringum annað fólk. Mann-
fólk hefur í gegnum tíðina oft búið
þröngt, stundum kannski full
þröngt,“ segir Karl.
„Hér heima á Íslandi má glögglega
sjá þetta á langhúsunum sem fyrstu
íbúar þessa lands bjuggu í, svo varð
ákveðin þéttbýlismyndun, sem
reyndar varð bakslag á um tíma,
en að lokum er staðan sú að yfir 90
Allir undir
einu þaki
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
Karl Fannar Sævarsson fyrir framan Háaleitisbraut 109, eina af fimm uppáhaldsblokkunum sínum, hönnun Sigvalda Thordarsonar og í einkennislitum hans, bláum og gulum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Langahlíð er að
mati Karls alger
klassi. Blokkin
sem kemur með
módernismann.
prósent landsmanna búa í þéttbýli.“
Karl bendir á að vissulega sé
Ísland dálítið öfgafullt dæmi, en
þróunin sé þessi um allan heim, sér-
staklega í velmegunarsamfélögum.
Fyrstu blokkir landsins
„Fyrstu blokkir landsins eru blokk-
irnar tvær við Hringbraut 37-47.
Vissulega bjó margt fólk undir
sama þaki fyrir þann tíma, en þegar
Hringbraut 37-47 voru reistar var að
hefjast mesta velmegunartímabil í
sögu þessa lands. Bygging blokka
þar sem fólki af lægri stéttum
var boðið upp á heilsusamlegt og
mannsæmandi húsnæði var því
hluti af þeim uppgangi og velmegun
sem átti eftir að einkenna íslenskt
samfélag á eftirstríðsárunum,“ segir
hann.
Þegar Karl var í fyrrasumar á
ferðalagi um landið ásamt fjöl-
skyldu sinni segist hann hafa orðið
uppnuminn af því að sjá blokkir í
mörgum sjávarþorpum.
„Ég myndaði sumar af þessum
blokkum og að lokum var ég
kominn með dágott myndasafn.“
Hann mundi þá eftir Instagram-
síðu um arkitektinn Sig valda
Thord arson sem listamaðurinn
Logi Höskuldsson eða Loji heldur
úti.
„Ég vissi þá að hugmynd mín
um að stofna Instagram-síðu um
blokkir væri kannski ekki eins
galin og hún kann að hljóma. Svo
fór að ég stofnaði síðuna og hef bara
haft virkilega gaman af þessu. Fólk
virðist hafa tekið vel í þetta, það
eru allavega töluvert fleiri að fylgja
síðunni en ég hefði getað gert mér
vonir um.“
Hóla-blokkirnar heilagar
Sjálfur býr Karl í fjölbýlishúsi sem
er kjallari, tvær hæðir og ris. „Ein-
hverjir myndu kalla þetta blokk,
en persónulega finnst mér að blokk
þurfi að vera allavega þrjár fullar
Fimm flottustu blokkirnar
Það var ekki annað hægt en að
fá blokkaraðdáandann mikla
til að nefna topp fimm blokkir
landsins að hans mati. Hann
sagðist sveiflast svolítið til og
frá en eins og er væru þessar
fimm í sérlegu uppáhaldi:
n Hringbraut 37-47, Fyrstu
blokkir Íslands, ekki spurn-
ing.
n Fannborg 1. Brútalismi par
excellence. Alger negla frá
áttunda áratugnum þegar
mikil steypa var allt sem
þurfti.
n Háaleitisbraut 109-111,
Sigvaldi Thordarson var
frumkvöðull í innleiðingu á
módernískum byggingum á
Íslandi og gulu og bláu litirnir
hans lífga upp á gráan hvers-
dagsleikann.
n Dunhagi 11-17, klassísk
blokk frá sjötta áratugnum.
Ákveðinn sjarmi yfir henni
sem ég kann vel við.
n Langahlíð 19-25, blokkin sem
kemur með módernismann
til landsins. Stærsta blokk
landsins þegar hún er byggð.
Alger klassi.
26 Helgin 15. maí 2021 LAUGARDAGUR