Fréttablaðið - 15.05.2021, Page 32
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn
Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s.
550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694
4103.
Þrjár vinkonur standa á bak við
Sumar Pop Up markaðinn en
þetta er í sextánda skipti sem
þær standa að viðburði undir
nafni POP markaða. Það eru þær
Olga Helena Ólafsdóttir, Eyrún
Anna Tryggvadóttir og Sara Björk
Purkhús sem settu fyrst upp Jóla
Pop Up árið 2017. Fyrst í Síðumúla
þar sem fólk gat komið og verslað,
en með Covid fluttist salan á netið
sem hefur verið mjög vel tekið.
Markaðurinn hófst á miðnætti í
gærkvöldi og stendur til miðnættis
á morgun. Hægt er að gera góð
kaup á barnavörum, heilsuvörum,
fatnaði, skóm, heimilisvörum,
skartgripum, snyrtivöru, íslenskri
hönnun, lífsstílsvöru, gjafavöru og
alls kyns sumarvöru.
Skemmtileg verslunarhelgi
„Þetta verður skemmtileg helgi á
heimapopup.is. Margar verslanir
ætla að vera með og bjóða upp á
frábær tilboð, afslætti eða eitthvað
auka fyrir viðskiptavininn,“ segir
Olga Helena. „Mörg fyrirtæki taka
þátt í viðburðum á okkar vegum
og fer fjölgandi í þeim hópi. Stærri
verslanakeðjur eru einnig farnar
að vera með og stíla inn á Pop Up
nokkrum sinnum yfir árið. Við
skiptum heimasíðunni í f lokka
sem gerir umhverfið viðskipta
vænt og þægilegt. Enginn þarf að
velkjast í vafa um hvernig á að bera
sig að við kaupin,“ útskýrir Olga
og bætir við að fyrirtækin séu með
lógó svo þau séu auðþekkjanleg
á síðunni og það að klikka á lógó
fyrirtækja leiðir viðskiptavininn
inn á vefsíður þeirra þar sem hægt
er að skoða vöruúrvalið og ganga
frá kaupum. „Mismunandi er
hvaða tilboð eða afslætti fyrirtæki
bjóða upp á yfir helgina. Sumir eru
með tilboð á öllu á meðan aðrir
eru með einstaka afslætti.“
Vinkonurnar hafa verið duglegar
að auglýsa viðburðinn og eru með
sérstaka síðu á Facebook þar sem
hægt er að fylgjast með öllum þeim
viðburðum sem POP markaðir
standa að. „Frá upphafi hafa meira
en 400 fyrirtæki verið þátttak
endur með okkur í Pop Up svo
þetta er vinsælt og fer sívaxandi,“
segir Olga Helena.
Betri vefverslanir
Olga Helena bendir á að mörg
fyrirtæki hafi notað tímann í
samkomutakmörkunum til að
efla heimasíðuna og bæta vef
verslun. Aðsóknin í þær hefur líka
stóraukist og flestir komnir upp á
lag með að versla á netinu. „Með
því að taka þátt í viðburðum sem
þessum geta fyrirtækin auglýst sig
og netverslunin sína. Viðskipta
vinir kynnast nýjum fyrirtækjum
og þannig verða fyrirtækin meira
sýnileg. Þetta form hentar fólki um
Olga Helena,
Sara og Eyrún,
segja að mikil
vakning hafi
orðið í verslun á
netinu undan-
farið ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Þannig lítur síðan út þegar hún birtist viðskiptavinum á vefnum.
allt land sem fær vörurnar sendar
heim á stuttum tíma. Hvað er betra
en að liggja uppi í sófa í kósífötum
og vafra í verslunarleiðangri? Þetta
er eins og að vera í verslunarmið
stöð nema á netinu. Það er svo
margt að breytast á Íslandi með
stærri og öflugri netverslun. Ég get
lofað að á Sumar Pop Up verður
mjög fjölbreytt úrval af vörum
og eitthvað fyrir alla,“ segir Olga
Helena.
Góð samvinna
Vinkonurnar þrjár hafa þekkst
lengi. Allar stunduðu þær nám
við Háskólann í Reykjavík, Olga
Helena er lögfræðingur en Eyrún
og Sara viðskiptafræðingar. Þær
voru allar með netverslanir áður
en þær fóru út í Pop Up markaði.
„Okkur fannst vanta stað þar sem
ólíkar verslanir kæmu saman
undir einum hatti til að bjóða
vörur sínar og koma sér á framfæri.
Við ákváðum að stofna heimapop
up.is og koma þannig til móts við
þessa þörf. Einnig erum við með
POP markaðir á Facebook og Insta
gram þar sem fólk getur fylgst með
komandi viðburðum.“
Olga Helena og Eyrún Anna
voru báðar í fæðingarorlofi þegar
þær settu á stofn eigin fyrirtæki
á netinu. „Allt frá því við lukum
námi höfum við verið á kafi í
þessu. Námið nýtist mjög vel hjá
okkur öllum í fyrirtækjarekstri,“
segir hún. Fyrsta verkefni Olgu
og Eyrúnar var bók sem nefnist
Minningar – Fyrstu ár barnsins.
Minningar er falleg ungbarnabók
sem tekur fyrir fyrsta ár barnsins.
Þær reka verslunina Von verslun
í Ármúla 40. Sara Björk er bæði
með verslunina Purkhús og Sis Bis.
Purkhús selur vandaðar heimilis
og gjafavörur fyrir öll tilefni. Sis
Bis er lífsstílsverslun sem Sara
rekur ásamt systur sinni Sóleyju
Rut. Vinsælustu vörurnar hjá Sis
Bis um þessar mundir eru fallegar
hár klemmur og skartgripir.
Í dag eru verslanirnar saman í
rými í Ármúla 40 en það breytist
á næstu vikum, þar sem húsnæðið
varð of lítið fyrir verslanirnar
saman á örskömmum tíma. Purk
hús og Sis Bis munu því færa sig
neðar í götuna í Ármúla 44 á næstu
vikum.
Nýta samfélagsmiðla
Olga, Eyrún og Sara sjá sjálfar um
alla tölvuvinnslu og uppsetningu
á heimasíðunni og gera allt frá
grunni. „Við erum búnar að vera
að undirbúa markaðinn á fullu
undanfarna daga og kvöld. Um
helgina munum við síðan vakta
síðuna, að allt gangi nú sem best
fyrir sig. Öll fyrirtæki fá að vera
sýnileg á síðunni. TVG ætlar að
gleðja nokkra aðila sem velja þá
sem sendingaraðila yfir helgina.
Allir sem versla og velja að fá sent
með TVG fara í pott og að helginni
lokinni verða dregnir fimm aðilar
sem vinna gjafabréf fyrir 2 með
Sæferðum þar sem hægt er að velja
á milli Viking Sushi ævintýraferðar
eða dagsferðar til Flateyjar.
Þær eru sömuleiðis með
Facebook hóp fyrir eigendur
verslana þar sem verslunareig
endur geta skráð sig til leiks og
fylgst með hvenær næsti Pop Up
markaður verður. Þar eru núna um
1.300 meðlimir í hóp. Hópurinn
nefnist Eigendur netverslana á
Íslandi. „Við höfum heyrt margar
ánægjuraddir með þetta framtak,
bæði frá verslunareigendum og
viðskiptavinum. Fyrirtæki eru
dugleg að leyfa okkur að fylgjast
með velgengni sinni yfir Pop Up
helgar og merkja okkur gjarnan í
myndum/myndböndum af pönt
unum helgarinnar.“ ■
Nánar á heimapopup.is
Margar verslanir
ætla að vera með
og bjóða upp á frábær
tilboð, afslætti eða
eitthvað auka fyrir
viðskiptavininn.
Olga Helena
heimapopup.is
15. - 16. maí
2 kynningarblað A L LT 15. maí 2021 LAUGARDAGUR