Fréttablaðið - 15.05.2021, Blaðsíða 46
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi
ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Áhugasamir eru beðnir að
sækja um starfið á
www.vegagerdin.is
Vegagerðin leitar að drífandi og metnaðar-
fullum starfsmanni á samskiptadeild til að
styðja við kynningarstarf vegna verkefna
á höfuðborgarsvæðinu. Viðkomandi þarf
að hafa hæfni til að hrinda verkefnum í
framkvæmd og hrífa fólk með sér. Leitað er
að einstaklingi með reynslu af samskiptum
við mismunandi hagaðila og stefnumót-
unarstarfi. Viðkomandi þarf að geta metið
hvernig samstarfi Vegagerðarinnar og
hagaðila er best fyrirkomið, þarf að tryggja
lipurt upplýsingaflæði milli aðila og út á við
og um leið farsælt samstarf á öllum stigum.
Viðkomandi þarf að vera vel ritfær á íslensku
og hafa reynslu af því að skrifa texta sem
ber fyrir augu almennings. Starfsmaðurinn
þarf að þekkja til miðlunar upplýsinga og
frétta hvort heldur er á vef, prentmiðlum,
ljósvakamiðlum eða samfélagsmiðlum.
Á verkefnaskrá Höfuðborgarsvæðisins má
meðal annars finna spennandi verkefni
á borð við Sæbrautarstokk, Borgarlínu,
stofnhjólanet á höfuðborgarsvæðinu sem
og verkefni tengd bættu umferðarflæði og
öryggi.
Um 100% starf er að ræða.
Umsóknarfrestur er til og með
26. maí 2021.
Menntunar- og hæfniskröfur
→ Háskólapróf sem nýtist í starfinu.
→ Reynsla af samskiptum við
hagsmunaaðila, kostur ef tengist opin-
berum aðilum.
→ Framúrskarandi samskiptafærni, þjónustu-
drifið og lausnamiðað hugarfar.
→ Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur
metnaður.
→ Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í
teymisvinnu.
→ Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og
töluðu máli.
→ Hæfni til að fylgja málum eftir og til að
finna bestu lausnir hverju sinni.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynn-
ingarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur um færni við-
komandi til að gegna starfinu og upplýsingar
um árangur sem viðkomandi hefur náð og
telur að nýtist í starfi á samskiptadeild.
Nánari upplýsingar um starfið veitir G. Pétur
Matthíasson forstöðumaður samskipta-
deildar, g.petur.matthiasson@vegagerdin.is
síma 522-1006.
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex
mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Öllum umsóknum um starfið verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið
tekin.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður. Áhugasamir
einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Starfsmaður á samskiptadeild
Álftanesskóli
• Dönskukennari á elsta stig
Garðahraun frístundaheimili
• Umsjónarmaður
Hofsstaðaskóli
• Umsjónarkennari á miðstig
Urriðaholtsskóli
• Deildarstjóri
Leikskólinn Akrar
• Aðstoðarleikskólastjóri
Leikskólinn Holtakot
• Deildarstjóri
• Leikskólakennarar
Leikskólinn Kirkjuból
• Deildarstjóri
Fræðslu- og menningarsvið
• Sálfræðingur
Fjölskyldusvið
• Sumarafleysing við aðstoð á
heimili ungrar konu
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef
Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
gardabaer.is
STÖRF HJÁ
GARÐABÆ
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is