Fréttablaðið - 15.05.2021, Page 64
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@
frettabladid.is
Íslensk-rússneski rappar-
inn Daniil er kominn á
herskyldu aldur í uppruna-
landi móður sinnar. Hann
skapaði grípandi ferskan
sumarsmell þegar hann var
fastur vegna strangra tak-
markana kórónaveirunnar.
„Ég er nítján ára Árbæingur,
reyndar fæddur á Sjúkrahúsinu í
Neskaupstað en flutti sem korna-
barn í Árbæinn þar sem ég hef búið
allar götur síðan,“ segir rapparinn
og söngvarinn Daniil Moroskhin
sem er rússneskur í móðurætt en
íslenskur í föðurætt.
„Frá því ég man eftir mér hef ég
farið árvisst til Rússlands til að
heimsækja móðurfjölskylduna,
en móðuramma mín féll frá áður
en ég fæddist og móðurafi minn
býr hér á Íslandi. Næstu árin get ég
hins vegar ekki farið til Rússlands
því ég er bæði íslenskur og rúss-
neskur ríkisborgari og eftir átján
ára aldur er herskylda í Rússlandi,
það á enginn undankomu auðið.
Ég slepp því ekki yfir rússnesk
landamæri án þess að vera sendur
beinustu leið í herinn, því rúss-
neskir karlar á aldrinum 18 til 27
ára verða að gegna tólf mánaða
herskyldu. Ég tek því enga áhættu
og er ekki á leiðinni til Rússlands
næstu átta árin, því miður. Ég vil
ekki missa af lífi mínu, námi og
tónlistinni heima á Íslandi og hef
önnur framtíðarplön en her-
mennsku,“ segir Daniil ákveðinn
í bragði.
Hann er tvítyngdur.
„Ég tala alltaf rússnesku heima
og les bæði rússnesku og skrifa
hana. Mér finnst tungumálið fal-
legt og þykir vænt um rússneska
nafnið mitt, Daniil, sem er það
sama og íslenska nafnið Daníel.“
Fastur vegna veirunnar
Daniil stefnir á stúdentshúfuna að
ári liðnu og síðan á frekara nám í
tónlist, en hann lærði á gítar um
árabil.
„Ég byrjaði að semja tónlist
sextán ára og gaf út mitt fyrsta lag
sautján ára. Tónlistin er númer eitt
og það eina sem ég vil gera í fram-
tíðinni, en ég tek hana ekki alvar-
lega og sem lögin meira til gamans.
Við sjáum svo hvert það leiðir mig
og hvað gerist í framhaldinu.“
Í gær kom út glænýtt lag frá
Daniil, Fastur. Það er grípandi
ferskt og sumarlegt popplag sem
verður vafalaust eitt af sumarlög-
um ársins og er komið á streymis-
veitur.
„Ég samdi lagið í fyrra, þegar
Covid-19 hafði harðlokað öllu
Ekki lengur fastur
Daniil Mo-
roskhin hefur
engan áhuga á
hermennsku og
segir tónlistina
það eina sem
hann dreymir
um að gera í
framtíðinni.
MYND/AÐSEND
Fastur vísar í að
vera fastur og
komast ekki frjáls ferða
sinna til að njóta lífsins
og hitta vinina.
Daniil
og sett líf okkar í fastar skorður.
Þaðan kemur nafnið Fastur og
vísar í að vera fastur og komast
ekki frjáls ferða sinna til að njóta
lífsins og hitta vinina. Ég er þó
mun meira í lagasmíðum og texta-
smíðum og finnst ekki alltaf þurfa
að vera djúp merking í textum.
Melódían skiptir mig meira máli
og það að hafa gaman af tón-
listinni.“
En þótt Daniil hafi verið fastur
eins og önnur ungmenni heimsins
á tímum kórónaveirunnar segir
hann margt gott hafa hlotist af
veiruskrattanum.
„Það breyttist ekki svo margt hjá
mér því ég geri mikið það sama,
er annað hvort heima, í stúdíóinu
eða með vinunum, en auðvitað
var frekar glatað að geta ekki hitt
x marga vini í einu. Við gerðum
bara okkar besta og unnum okkur
út úr þessu saman. Covid reyndist
svo vera þroskandi og kenndi
mér að horfa meira inn á við og
prófa eitthvað nýtt. Ég lærði líka
að vera einbeittari og tók námið
fastari tökum. Veiran var því ekki
alslæm.“
Dekraður sem einbirni
Um helgina ætlar Daniil að gera það
sem hann gerir alltaf um helgar.
„Það er að vera með vinum, fara
í stúdíóið, horfa á góða bíómynd
og borða nammi. Það tilheyrir um
helgar, að sækja sér bland í poka á
nammibarnum í Hagkaup og ég
elska góðar gamanmyndir. Ég gæti
svo horft aftur og aftur á myndina
The Wolf of Wall Street með
Leonardo DiCaprio, þótt hún sé
ekki gamanmynd; ég fæ bara ekki
leið á henni,“ segir Daniil, kominn
í helgarskap og ekki lengur eins
„fastur“.
„Laugardagar eru í algjöru uppá-
haldi og besti helgarmaturinn er
„basic“ pítsa með pepperoni. Lagið
sem kemur mér í helgarskap er So
much með Yung Kayo,“ segir Daniil
sem fylgdist vel með Eurovision á
barnsaldri en minna nú.
„Ég stend auðvitað með Daða
og mun tékka á framlagi Rússa en
þegar ég var lítill hélt ég alltaf með
Íslandi og Rússlandi, enda eru það
löndin mín,“ segir hann kátur.
Spurður um fyrirmyndir í lífinu
nefnir Daniil foreldra sína.
„Mamma og pabbi eru mér allt og
alveg frábær. Ég er einbirni, þekki
ekki annað og finnst það fínt. Ég
hef alltaf notið einmuna dekurs og
fengið allt sem ég vil,“ segir hann
hlæjandi. n
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir
Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5654/ jonivar@frettabladid.is
VÖRUBÍLAR OG
VINNUVÉLAR
Veglegt sérblað Fréttablaðsins um vörubíla og
vinnuvélar kemur út föstudaginn 21. maí nk.
T yggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
6 kynningarblað A L LT 15. maí 2021 LAUGARDAGUR