Fréttablaðið - 15.05.2021, Side 78
njall@frettabladid.is
Nýjasti raf bíll Ford er rafmögnuð
útgáfa F-150 pallbílsins, en hann
verður frumsýndur 19. maí næst-
komandi. Ekki veitir af því að vel
takist til við bílinn því hann þarf að
keppa við bylgju væntanlegra raf-
drifinna pallbíla eins og Hummer
EV, Chevy Silverado, Rivian og Tesla
Cyberstruck, svo eitthvað sé nefnt.
Ford F-150 Lightning mun koma
í sölu strax á næsta ári. Að sögn
stjórnarformanns Ford, Jims Farley
mun hann geta séð heimilum fyrir
orku eins og Hummer EV. Hann
verður líka sneggri en öflugustu V
útgáfur F-150 og með tveimur raf-
mótorum og fjórhjóladrifi, nema
hvað. Raf hlaðan mun gefa drægi
upp á meira en 500 kílómetra.
Útlitslega verður hann mjög svipað-
ur öðrum F-150 bílum en að framan
verður þó díóðuljósalína sem nær á
milli aðalljósanna, sem aðgreinir
hann frá öðrum F-150 pallbílum.
Auk þess verður hann merktur sér-
staklega og búinn nýjum 12 tommu
upplýsingaskjá ásamt stafrænu
mælaborði. ■
Ford F-150 rafpallbíllinn fær nafnið Lightning
Ford F-150 Lightning verður frumsýndur í Mitchigan í næstu viku í framhaldi af heimsókn Joes Biden Bandaríkjafor-
seta til verksmiðjunnar, enda um mjög mikilvægan bíl að ræða fyrir Ford, sem selur mikið af F-150 pallbílnum.
njall@frettabladid.is
Hér eru fyrstu opinberu myndirnar
af Porsche Macan rafútgáfunni. Að
sögn framleiðandans er þróunar-
ferli innanhúss lokið og tími til
kominn að byrja alvöru prófanir á
bílnum á vegum úti. Porsche Macan
EV mun verða frumsýndur árið
2023 á nýjum raf bílaundirvagni
Porsche sem kallast PPE. Hann mun
verða með sama 800 volta rafkerfi
og Porsche Taycan að sögn þróunar-
stjóra Porsche, Dr. Michael Steiner.
Bíllinn mun breytast nokkuð í
útliti og mun hafa mjórri aðalljós,
þótt límmiðar af stærri ljósum reyni
að sýna annað á myndunum. Eins
verður þaklína hans meira hallandi
niður á við sem mun gefa honum
sportlegra útlit. Ásamt þessum nýja
rafbíl verður önnur kynslóð Macan
einnig búin bensínvélum, bæði
fjögurra og sex strokka. Þótt það
hafi ekki verið staðfest enn þá er lík-
legt að um talsvert breytta útgáfu af
núverandi bíl verði að ræða. Verður
hann seldur þannig á meðan næg
eftirspurn er eftir honum. Porsche
Macan hefur verið einn vinsælasti
bíll merkisins og því skiptir máli
hvernig til tekst. Árið 2019 seldi
Porsche meira en 100.000 Porsche
Macan bíla. ■
Þróunarmyndir af rafdrifnum Macan
Ljósin verða þynnri en áður í stíl við Porsche Taycan þótt reynt sé að fela það með vel útfærðum límmiðum sem minna frekar á núverandi kynslóð.
Eins og sjá má er prófunarbúnaður bílsins flókinn og fyrirferðarmikill.
njall@frettabladid.is
Á ráðstefnu fjárfesta í Tókýó í vik-
unni létu talsmenn Mitsubishi hafa
það eftir sér að von væri á bílum frá
merkinu með undirheitinu Ralli-
Art. Það hefur ekki verið notað á
bíla merkisins í áratug eða svo. Það
verður þó ekki notað á hefðbundna
bíla Mitsubishi eins og Lancer í
Evolution útgáfu, heldur má búast
við að aðeins verði jeppar og jepp-
lingar Mitsubishi skreyttir merkinu.
Má því búast við aflmeiri útgáf-
um núverandi fjórhjóladrifsbíla
ásamt einhverjum nýjum gerðum.
Auk þess verður ný lína aukahluta
kynnt svo búast má við að hægt
verði að kaupa hefðbundna Mitsub-
ishi bíla með RalliArt útlitspakka. ■
Mitsubishi
endurvekur
RalliArt línuna
RalliArt útgáfur hafa legið í dvala í
áratug en nú mun verða breyting á.
njall@frettabladid.is
Fyrsti 100% raf bíllinn frá Subaru,
Solterra, er væntanlegur á alla
helstu markaði um mitt næsta ár
samkvæmt tilkynningu frá Subaru
sem gefin var út í vikunni. Solterra
er jepplingur í stærðarflokki C, og
bætist þar í f lóru annarra jepplinga
frá Subaru, svo sem Outback, Forest-
er og XV. Solterra verður byggður á
nýjum undirvagni, svokölluðum e-
Subaru Global Platform, sem Sub-
aru ætlar einnig undir f leiri gerðir
rafbíla á næstu árum.
Undirvagninn var þróaður í sam-
starfi við Toyota og verða jafnframt
samnýttir ýmsir íhlutir frá báðum
aðilum við framleiðslu raf bíls-
ins, sem lækkað geta þróunar- og
framleiðslukostnað og f lýtt fyrir
markaðssetningu bílsins. Solterra
er væntanlegur á markað um mitt
ár 2022 í Japan, Bandaríkjunum,
Kanada, Evrópu og Kína. ■
Subaru Solterra
væntanlegur 2022
Subaru rafbíllinn og undirvagn hans
er þróaður í samstarfi við Toyota.
Ásamt nýrri rafútgáfu
Macan verður hann
einnig fáanlegur áfram
með bensínvélum,
fjögurra og sex strokka,
sem byggðar verða
á núverandi útgáfu
bílsins.
Subaru Solterra er
væntanlegur á markað
um mitt ár 2022 og þá
einnig í Evrópu.
42 Bílar 15. maí 2021 LAUGARDAGUR