Fréttablaðið - 15.05.2021, Page 81

Fréttablaðið - 15.05.2021, Page 81
Sýning Huldu Vilhjálms- dóttur, Fljúgðu, stendur yfir í NORR11 á Hverfisgötu. Þar má sjá klippimálverk og port- rettmyndir sem listakonan vann síðastliðinn vetur. kolbrunb@frettabladid.is „Ég kalla klippimálverkin klippi- abstrakt,“ segir Hulda. „Ég nota örþunnan japanskan pappír á móti þykkari pappír og mála svo yfir í lögum með vatnslitum og bleki og lími á striga. Þetta er vinna sem ég hef verið að þróa nokkuð lengi, alveg frá því ég útskrifaðist úr námi. Þarna mætast fínleiki og hráleiki og ljósir litir mæta þeim dekkri. Leiðar- stefið í þessum verkum er að skapa jafnvægi á milli efnis og forma á myndfletinum.“ Er sívinnandi Hulda hefur verið að þróa portrett- myndir sínar í mörg ár. „Þær byrj- uðu fyrst sem sjálfsmyndir en síðar fór ég að spegla mig við aðrar konur. Í portrettmyndunum á þessari sýn- ingu, sem eru af konum, er ákveðin mýkt áberandi. Þar nota ég blek og vatnsliti.“ Leikgleði einkennir verk in. „Hvítt, blátt og grænt er ríkjandi í þessum myndum, það er eins og sumarið sé að brjótast fram,“ segir Hulda sem er mjög af kastamikil listakona. „Ég er sívinnandi, bæði heima og á vinnustofunni, og geng með skissubækur á mér.“ Sterk köllun Hún segist vera í myndlistinni af ástríðu. „Á sínum tíma fékk ég svo sterka köllun, það var eins og eld- gos. Ég hef aldrei efast um að þetta sé það sem mér er ætlað að gera. Það gengur misvel að lifa af mynd- listinni en maður má ekki hætta ef illa gengur. Ég öðlast frelsi með því að mála og þar get ég verið í ævin- týraheimi með sjálfri mér.“ Hulda hefur haldið fjölda bæði einka- og samsýninga heima og erlendis og eiga listasöfn og einka- aðilar verk eftir hana. Árið 2007 var hún tilnefnd til Carnegie ART Award og 2018 til Íslensku mynd- listarverðlaunanna fyrir einkasýn- inguna Valbrá í Kling og Bang. Árið 2020 hlaut Hulda Tilberann, mynd- listarverðlaun Nýlistasafnins, fyrir störf sín í myndlist síðastliðna tvo áratugi. Sýningin í NORR11 stendur til 15. júní. ■ Í ævintýraheimi þegar hún málar Þarna mætast fínleiki og hrá- leiki og ljósir litir mæta þeim dekkri, segir Hulda. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Ég er sívinnandi, bæði heima og á vinnustof- unni og geng með skissubækur á mér. Menning 45LAUGARDAGUR 15. maí 2021

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.