Fréttablaðið - 15.05.2021, Side 89
Sigtúni 42 I 105 Reykjavík I sími 540 0700 I liru@liru.is
Ársfundur 2021
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r.
Ársfundur Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga
verður haldinn mánudaginn 7. júní kl. 14.00 á starfsstöð sjóðsins að Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Allir sjóðfélagar, fulltrúar launagreiðenda og viðkomandi stéarfélaga
eiga ré til fundarsetu á ársfundinum. Sjóðfélagar eru hvair til að mæta
á fundinn en óskað er eir að þeir tilkynni þátöku sína á fundinn á þar
til gert form á heimasíðu sjóðsins liru.is eða hafi samband við skrifstofu
sjóðsins í síma 5400700 eða með tölvupósti á liru@liru.is
Reykjavík 30. apríl 2021
Stjórn Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga
Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur 2020
3. Tryggingafræðileg athugun
4. Fjárfestingastefna sjóðsins kynnt
5. Tilnefning stjórnarmanna og varamanna
6. Kynning á breytingum samþykkta sjóðsins
7. Önnur mál
Allar árhæðir í milljónum króna
Á árinu 2020 greiddu að meðaltali 19.906 sjóðfélagar iðgjöld til sjóðsins og námu heildariðgjöld ársins 18.827 m.kr. með
aukaframlagi launagreiðenda. Að meðaltali fengu 8.732 einstaklingar greiddan lífeyri frá sjóðnum og nam hann 7.658 m.kr.
Í stjórn sjóðsins eru: Garðar Hilmarsson, formaður stjórnar, Benedikt Þór Valsson, varaformaður,
Auður Kjartansdóir, Halldóra Káradóir, Sonja Ýr Þorbergsdóir og Þorkell Heiðarsson.
Framkvæmdastjóri er Gerður Guðjónsdóir.
Yfirlit yfir aomu ársins 2020
2020 2019
Efnahagsreikningur A deild V deild B deild Samtals Samtals
Eignarhlutir í félögum og sjóðum 83.375 16.152 4.962 104.489 72.946
Skuldabréf 136.099 26.367 10.004 172.470 163.367
Bundnar bankainnstæður 1.677 325 0 2.002 4.013
Kröfur 1.233 239 129 1.601 1.501
Óefnislegar eignir 108 21 0 129 145
Varanlegir rekstrar«ármunir 115 22 0 137 141
Handbært fé 6.680 1.294 1.089 9.063 7.384
Skuldir -1.598 -310 -142 -2.050 -394
Hrein eign til greiðslu lífeyris 227.689 44.110 16.042 287.841 249.103
Breyting á hreinni eign
Iðgjöld 12.775 3.637 2.415 18.827 16.422
Lífeyrir -4.151 -430 -3.077 -7.658 -6.621
Hreinar «árfestingatekjur 22.252 4.228 1.647 28.127 23.440
Rekstrarkostnaður -383 -67 -109 -559 -524
Breyting á hreinni eign til greiðslu lífeyris 30.493 7.368 876 38.737 32.717
Hrein eign frá fyrra ári 197.196 36.742 15.166 249.104 216.386
Hrein eign til greiðslu lífeyris 227.689 44.110 16.042 287.841 249.103
Kennitölur
Nafnávöxtun 10,9% 10,9% 10,4% 10,8% 10,4%
Hrein raunávöxtun 7,1% 7,1% 6,6% 7,1% 7,5%
Raunávöxtun (5 ára meðaltal) 4,6% 4,6% 3,7% 4,6% 4,8%
Raunávöxtun (10 ára meðaltal) 4,8% 4,8% 4,8% 4,2%
Virkir sjóðfélagar 14.814 4.930 162 19.906 18.548
Fjöldi lífeyrisþega 5.500 1.384 1.848 8.732 7.862
Hrein eign umfram heildarskuldbindingar -15.468 586 -10.248
Hrein eign umfram áfallnar skuldbindingar 12,7% 0,6% -78,4%
Hrein eign ufram heildarskuldbindingar -3,9% -2,2% -16,6%
Lífið 53LAUGARDAGUR 15. maí 2021
Flosi á kantinum ásamt félögum sínum í HAM.
Síðan fer þetta bara í hljóð
blöndun og masteringu og svo þarf
að hanna umslag,“ segir Flosi sem
vonast til að platan geti komið út
síðsumars enda hafi hann ákveðnar
efasemdir um útgáfu um hásumar.
„Það væri fínt og mér þætti allt í
lagi að þetta kæmi út svona í ágúst,
september. Það er svona minn tími.
Haustið. Þegar allt fer að fölna, deyja
og verða grátt. Það getur tekið á en
það er svona ljóðrænn sársauki á
haustin,“ segir Flosi og hlær.
Alls konar áhrif
Flosi segir plötuna í raun nokk
urs konar óð til allrar þeirrar tón
listar sem hefur haft áhrif á hann í
gegnum tíðina. Þar megi finna jafnt
áhrif frá nýbylgjurokki níunda ára
tugarins, pönki, þungarokki og
klassísku rokki.
„Þarna má alveg heyra pönk og
svo svona jaðarrokk níunda ára
tugarins í anda Sonic Youth, Dinas
aur Junior og einhverra svoleiðis
hljómsveita. Þetta verður tíu laga
hreinræktuð rokkplata sem gítar,
bassi og trommur munu bera uppi,“
segir Flosi sem syngur og leikur á öll
hljóðfæri fyrir utan að á trommum
nýtur hann krafta Arnars Geirs
Ómarssonar, góðvinar hans og
félaga úr HAM.
„Ég sagði strákunum í HAM frá
því á einhverri æfingu fyrir mörgum
árum síðan að mig langaði að gefa út
sólóplötu og væri byrjaður að semja
lög. Þeir voru bara spenntir fyrir því
og vildu endilega fá að heyra þegar
þetta væri komið.
Arnar Geir gekk þó aðeins lengra.
„Hann sagði strax við mig að ef ég
væri að fara að gera eitthvað svona
þá ætti ég að hringja í hann. „Mér
finnst að ég eigi að tromma ef þú ert
að fara að gefa út sólóplötu,“ sagði
hann og bauð sig þannig bara fram.
Löngu áður en hann var búinn að
heyra eitthvað af þessu.“
Fortíðardraugar
Flosi segir að þegar Arnar Geir hafi
svo komið í hljóðverið hjá Einari
Vilberg og loksins heyrt lögin hafi
þau komið honum á óvart og þá
helst hversu „indí“ tónlistin væri.
„Hann átti von á að þetta yrði
kannski meira svona þungt rokk og
var dálítið hissa að heyra hvað það
væru alls kyns stílar ráðandi og í
rauninni tengdi hann við að þetta
væri dálítið mikið af þeirri músík
sem hafði áhrif á okkur þegar við
vorum krakkar.“
Talandi um fortíðardrauga verður
ekki hjá því komist að nefna hlað
varpsþætti Flosa og Baldurs Ragn
arssonar, Drauga fortíðar, sem nýtur
mikilla vinsælda en þar ræða þeir
áhugaverða liðna atburði. Eins og
þeim einum er lagið.
„Það er náttúrlega alveg hræði
legt bara,“ segir Flosi og hlær þegar
hann er spurður hvernig það sé að
vera orðinn podcaststjarna ofan á
allt annað.
„Sérstaklega vegna þess að ég
virðist alveg ófær um að geta sann
fært sjálfan mig um að ég sé eins
góður og hæfileikaríkur og fólk er
alltaf að segja mér að ég sé.
Þetta er yfirþyrmandi og ég fæ
bara kvíða yfir öllum skilaboð
unum og þökkunum sem ég fæ
send. Þetta er ekki síst út af því að
við erum að tala um þunglyndi,
kvíða og athyglisbrest. Mjög opin
skátt eins og við höfum alltaf gert.
Og viðbrögðin eru náttúrlega yfir
þyrmandi en um leið stórkostleg.“
Auðmýktin í kvíðanum
Flosi bendir á að hann hafi fengið
mikinn stuðning frá hlustendum
í söfnuninni fyrir plötuútgáfunni.
„Ég hef fengið rosalegan stuðning
frá því fólki. Við erum komnir með
dálítið sterkan aðdáendahóp og það
eru ekki síst aðdáendur Drauganna
sem voru að styðja mig með þessa
plötu.
Þar á meðal er maður sem ég
þekki ekki neitt og lagði heilmikið
inn á mig. Hann sagði bara að ég átt
aði mig ekki á hvað ég væri að gera
mikið fyrir fólk. Ég finn bara að það
kemur skömmustutilfinning þegar
ég er að segja þetta. Ég á ekki að vera
að hæla sjálfum mér svona,“ segir
Flosi og auðheyrt er að hann meinar
það sem hann segir.
„Það góða við þetta er að ég á alla
vegana aldrei eftir að ofmetnast.
Það er það eina jákvæða sem ég sé
við þetta. Að kvíðinn heldur mér
alltaf hógværum. Ég held kannski
dálítið í auðmýktina í gegnum
kvíðann. Fátt er svo með öllu illt.“ n
Ég hef alltaf viljað
halda mig í bakgrunn-
inum. Ekki trana mér
fram. Mér finnst fínt að
vera bara gítarleikar-
inn í bandinu.