Fréttablaðið - 29.05.2021, Side 2
Ljósleiðari í flýti
Beint morgunflug
Tenerife í sumar
Marylanza
10. júlí í 7 nætur
2 fullorðnir
og 2 börn
Frá 114.900 kr
www.aventura.is
Sundagarðar 2 - 104 Reykjavík
Sími: 556 2000
kristinnpall@frettabladid.is
REYKJAVÍK Reykjavíkurborg hefur
ákveðið að hefja vinnu að stöðluðu
umsóknarformi fyrir einstaklinga
sem óska eftir því að gefa borginni
bekki til minningar um látna ást-
vini.
Með því ætti ferlið við að sækja
um að fá að gefa slíka bekki verða
einfaldara. Miðað er við að minn-
ingarbekkirnir fái sama viðhald og
aðrir bekkir á vegum borgarinnar og
er áætlaður líftími þeirra um tíu ár.
„Það hafa ekki margar umsóknir
komið inn undanfarin ár,“ segir Þór-
ólfur Jónsson, deildarstjóri náttúru
og garða hjá Reykjavíkurborg. „Það
hefur aldrei verið auglýst að þetta sé
hægt heldur hvert mál fyrir sig tekið
og leyst með viðkomandi aðila og
það eru nokkrir bekkir til staðar í
Reykjavík,“ segir hann.
„Maður sér oft svona bekki í borg-
um erlendis og veit að það eru ein-
hverjir slíkir bekkir í öðrum sveitar-
félögum á Íslandi þó að þetta sé ekki
orðið að neinni hefð á Íslandi.“
Þórólfur segir það auðvelda
ferlið að hafa skýrari verkferla.
„Við reyndum að skoða verkferla í
þessum málum frá öðrum borgum
og þetta ætti að einfalda ferlið.
Kannski fer umsóknunum að fjölga
núna.“ n
Festa verkferla fyrir minningarbekki
Einn minningarbekkur stendur við
Sæbrautina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
kristinnpall@frettabladid.is
VEÐUR „Það ætti að hafa lægt tals-
vert eftir miðnætti um leið og gula
viðvörunin fellur úr gildi. Auðvitað
fylgjumst við alltaf með stöðunni
og þetta getur breyst því það bætir
í úrkomu þegar líða tekur á dag-
inn,“ segir Óli Þór Árnason, veður-
fræðingur hjá Veðurstofu Íslands,
spurður hvort von sé á að gula við-
vörunin sem var í gildi á Íslandi í
gær teygi sig inn í helgina.
„Það er ekki hægt að útiloka að
það verði gul viðvörun um helgina
en það er ekki líklegt. Það þarf að
bæta í vind til þess.“
Óli segir að með úrkomunni
minnki hættan á gróðureldum á
ákveðnum svæðum. „Hættan er
óðum að minnka en aðeins þar sem
úrkoman er um helgina, á Suður- og
Vesturlandinu, en hún er enn til
staðar annars staðar.“ n
Vætusöm helgi
í höfuðborginni
Mikil rigning var í borginni í gær, hún
er sögð minnka líkur á gróðureldum.
Aftur er að færast líf í verslun-
ina við bensínstöð Olís undir
Hamraborg sem lokað var
um áramótin. Listagalleríið Y
verður opnað þar um næstu
helgi. Myndlistarmaðurinn
Sigurður Atli Sigurðsson
kveðst hafa heillast af arki-
tektúr Hamraborgar.
gar@frettabladid.is
MENNING „Þetta er ótrúlega áhuga-
verður arkitektúr og staður,“ segir
myndlistarmaðurinn Sigurður Atli
Sigurðsson, sem ásamt Olgu Lilju
Ólafsdóttur stendur að listagall-
eríinu Y sem reka á næstu mánuði í
gömlu bensínstöð Olís í bílakjallar-
anum í Hamraborg í Kópavogi.
Olga stóð meðal annars að stofn-
un Ásmundarsalar sem einkarekins
sýningarsalar í gamla Listasafni ASÍ.
Sigurður Atli segir það ekki síst hafa
verið arkitektúr Benjamíns Magn-
ússonar, sem teiknaði Hamraborg-
ina, sem dró þau Olgu að staðnum.
Sjálfur kveðst Sigurður alltaf hafa
haft áhuga á rýminu. Hamraborgin
minni hann á Marseille þar sem
hann dvaldi í fimm ár í masters-
námi. Arkitektúrinn sé í anda hins
franska „cite“ þar sem allt líf nútíma
borgarmannsins er samþætt í eina
byggingu. „Við lítum dálítið þann-
ig á að við séum að taka upp þessa
útópísku hugmyndafræði sem býr
í arkitektúrnum, að geta boðið upp
á myndlist í nærsamfélaginu,“ segir
hann.
Þarna segir Sigurður einnig koma
til sögunnar arkitektúr bensín-
stöðvarinnar sjálfrar sem hafi þrjár
gluggahliðar, sem sé öfugt við hefð-
bundna listsýningarsali. Þetta þýði
meðal annars að þótt aðeins verði
opið inn í húsnæði tvo eftirmið-
daga í viku geti áhorfendur haldið
áfram að njóta listaverkanna í gall-
eríinu utan frá. „Þetta er mjög flott
sýningarrými fyrir þrívíð verk og á
þau verður fókusinn,“ segir hann.
Bensínstöð Olís undir Hamra-
borg var opnuð árið 1980. Verslun-
inni var lokað um síðustu áramót
en sölu á eldsneyti haldið áfram í
sjálfsafgreiðslu undir merkjum ÓB.
Húsnæðið hefur því staðið autt um
skeið.
Sigurður segist þakklátur Olís
fyrir að hafa verið til í samstarfið.
„Það er mjög skemmtilegt tvist að
þarna verður áfram fólk að dæla
bensíni og þetta verður samlífi sam-
tíma myndlistargallerís og bensín-
stöðvar,“ segir hann.
Jón Árni Ólafsson, sviðsstjóri
smásölusviðs Olís, segir um að ræða
mjög ánægjulegt samstarfsverkefni.
„Við kolféllum fyrir hugmyndinni
og viljum endilega prófa og sjá hvort
þetta mælist ekki vel fyrir. Við erum
mjög dugleg í ýmsum samfélagsleg-
um verkefnum og fannst þetta vera
mjög skemmtilegur vinkill á það.
Það getur vel verið að við útfærum
þessa hugmynd nánar með ein-
hverjum hætti,“ segir Jón Árni.
Galleríið verður opnað eftir viku
með sýningu á verkum Unu Bjargar
Magnúsdóttur, sem fékk hvatning-
arverðlaun Íslensku myndlistar-
verðlaunanna. n
Listin tekur yfir bensínstöð
Sigðurður Atli Sigurðsson þar sem senn verður galleríið Y. Nafnið vísar bæði í
gamla einkennisstafinn á bílum í Kópavogi og í gula litinn í CMYK-litakerfinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Það getur vel verið að
við útfærum þessa
hugmynd nánar með
einhverjum hætti.
Jón Árni Ólafs-
son, sviðsstjóri
smásölusviðs
Olís.
Menn og vélar í óðaönn að leggja nýjan ljósleiðara við Suðurstrandarveg. Framkvæmdum var flýtt til að koma ljósleiðaranum fyrir áður en hraun úr eld-
gosinu í Geldingadölum rennur yfir svæðið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2 Fréttir 29. maí 2021 LAUGARDAGUR