Fréttablaðið - 29.05.2021, Qupperneq 12
Kínverjar vilja rannsaka til-
raunastofu í Maryland eftir að
Bandaríkjaforseti fyrirskipaði
rannsókn á tilraunastofu í
Wuhan. Kári Stefánsson telur
ákvörðun Bidens byggjast á
pólitískri stöðu heima fyrir
og að hún hjálpi ekki til í
baráttunni við Covid-19.
kristinnhaukur@frettabladid.is
COVID-19 Kínverjar hafa svarað
ákvörðun Bandaríkjanna um að
láta leyniþjónustuna rannsaka
hvort Covid-19 eigi uppruna sinn í
tilraunastofu í Wuhan með kröfu
um að tilraunastofa í Maryland
verði rannsökuð. Það er rann-
sóknarstofa bandaríska hersins í
Fort Detrick.
„Hvaða leyndarmál eru falin í
hinu mjög svo grunsamlega Fort
Detrick og þeim 200 bandarísku
rannsóknastofum sem eru um
heim allan?“ spyr Zhao Liljan, tals-
maður kínverska utanríkisráðu-
neytisins.
Ósk Joes Biden Bandaríkjafor-
seta um að uppruni veirunnar
verði rannsakaður í Wuhan hefur
vakið nokkra athygli. Enda berg-
málar hún orð fyrrverandi forseta,
Donalds Trump, sem þóttu bera
merki samsæriskenninga fremur
en alvöru álitaefna.
K á r i Stef á nsson, for st jór i
Íslenskrar erfðagreiningar, greindi
frá því í Fréttablaðinu í gær að ekk-
ert væri í hendi til að styðja við
það að veiran hefði orðið til á til-
raunastofu. Hann telur einnig að
ósk Bidens sé fyrst og fremst sett
fram í pólitískum tilgangi heima
fyrir. Það er til að sverja af sér fylgi-
spekt við Kínverja sem hann hefur
verið sakaður um af Repúblikönum
og Trump sérstaklega. En Trump
virðist ekki ætla að sleppa taki sínu
á flokknum í bráð.
„Þessi kenning um tilraunastof-
una er ekki vísindaleg af því að það
er ekki hægt að afsanna hana,“ segir
Kári. „Það er ekkert ólíklegt að það
geti gerst að einhver sem vinni með
veiru sýkist. Ef hann sýkist getur
hann borið veiruna út af rann-
sóknastofunni. En við höfum ekk-
ert í höndunum sem styður þetta.“
Kári segir að auk þess að byggja
á afskaplega litlum upplýsingum
skapi þessi getgáta leiðindatilfinn-
ingu á tíma þar sem fordómar ríkja
gagnvart fólki af asískum uppruna.
„Kínverjar eru stór og merkileg þjóð
með ríka sögu og mikið af afspyrnu
góðu fólki,“ segir Kári. „Ég er hins
vegar ekki hallur undir það stjórn-
kerfi sem þar ríkir.“
Aðspurður hvort hann telji þess-
ar deilur stórveldanna hamla bar-
áttunni gegn Covid-19 á einhvern
hátt segir Kári svo ekki vera. Hann
hefur meiri áhyggjur af því hversu
lítið af bóluefni fari til fátækari
þjóða heimsins og að hluti fólks,
sérstaklega í Bandaríkjunum, hafni
bólusetningu þegar hún bjóðist.
Þetta þýði þó ekki að tilrauna-
stofudeilan hafi neinar af leið-
ingar. „Þessi ákvörðun Bidens er
ekki til neins annars fallin en að
auka úlfúð milli Bandaríkjanna
og Kína,“ segir Kári. Ef hægt væri
á einhvern hátt að sýna fram á að
veiran væri manngerð þá myndi
það ekki skipta neinu máli í stóra
samhenginu. Kínverjum yrði ekki
refsað fyrir slys á tilraunastofu.
„Þessi umræða hjálpar okkur ekki
í baráttunni við þessa veiru eða
veirur framtíðarinnar.“ ■
Ákvörðun Bidens tekin til að sverja
af sér meinta fylgispekt við Kínverja
Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur óskað eftir því að leyniþjónustan rannsaki hvort Covid-19 hafi sloppið af tilrauna-
stofu í Wuhan. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Konungleg þrif
Maxíma Hollandsdrottning lætur hendur standa fram úr ermum og spúlar stéttina fyrir framan menningarhús í bænum Oegstgeest. Tiltektin er hluti af verk-
efnum sjálfboðaliðahreyfingar sem hollensku konungshjónin hafa tekið þátt í undanfarin ár og meðal annars sinnt hreingerningum og aðstoð við aldraða.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Þessi umræða hjálpar
okkur ekki í barátt-
unni við þessa veiru
eða veirur framtíðar-
innar.
Kári Stefáns-
son, forstjóri
Íslenskrar erfða-
greiningar.
arnartomas@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Árið 2019 var fjöldi
reykingafólks í heiminum um 1,1
milljarður. Þetta kemur fram í rann-
sókn sem birt var í læknatímaritinu
The Lancet.
Þar kemur fram að aldrei hafi
f leiri reykt í heiminum en í dag og
að tæplega átta milljónir hafi látist
af völdum reykinga árið 2019.
Höf undar rannsók nar innar
benda á mikilvægi þess að gripið sé
inn í reykingar hjá ungu fólki, en um
89 prósent af nýju reykingafólki er
orðið 25 ára. Ólíklegt er að fólk byrji
að reykja eftir þann aldur.
Þrátt fyrir að reykingar hafi
minnkað á heimsvísu á síðustu
þremur áratugum jókst það hjá
körlum í 20 löndum og hjá konum
í 12. Tveir þriðju þeirra sem reykja
búa í tíu löndum og einn af hverjum
þremur sem reykja býr í Kína.■
Aldrei fleiri reykt
í heiminum en nú
Tæplega átta milljónir létust af
völdum reykinga árið 2019.
Þýska ríkið mun greiða Namibíu 1,1
milljarð evra. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
arnartomas@frettabladid.is
ÞÝSKALAND Stjórnvöld í Þýskalandi
viðurkenndu í gær að þýska ríkið
hefði framið þjóðarmorð í Namibíu
á nýlendutímanum. Þetta kom fram
í yfirlýsingu Heiko Maas, utanríkis-
ráðherra Þýskalands, í gærmorgun.
„Við munum nú vísa til þessara
atburða fyrir það sem þeir eru út
frá sjónarhorni nútímans: þjóðar-
morð,“ sagði Maas og bætti við að
ræða ætti hörmungar nýlendutím-
ans án þess að stikla yfir þær.
Þá hafa þýsk stjórnvöld samþykkt
að veita Namibíu um 1,1 milljarðs
evra styrk til uppbyggingar í land-
inu sem greiddur verður á 30 ára
tímabili.
Namibía laut nýlendustjórn
Þýskalands frá árunum 1884 til
1915. Tugþúsundir úr röðum Herera
voru drepnar snemma á 20. öldinni,
og hafa sagnfræðingar kallað voða-
verkin gleymt þjóðarmorð. ■
Viðurkenna
þjóðarmorð
Einn af hverjum
þremur sem reykja býr
í Kína.
12 Fréttir 29. maí 2021 LAUGARDAGUR