Fréttablaðið - 29.05.2021, Page 20

Fréttablaðið - 29.05.2021, Page 20
heldur kemur sagan fram í römm- unum sem segja vonandi á stundum meira en þúsund orð. Að sjá hann elda grautinn sinn markar allar hinar stundirnar sem hann hefur gert grautinn sinn.“ Jón Bjarki bætir þá við: „Hend- urnar á 100 ára gömlum manni eða 97 ára gamalli konu segja einar og sér mikla sögu.“ Sjötíu ára hjónaband er flókið Hlín segir þau hafa viljað gæta sín á að smætta viðfangsefni sín ekki niður í ellina sem markerar þau. „Það er svo klassískt að spyrja eldra fólk hverju það þakkar langlífið og þar fram eftir götunum. Við vildum leyfa áhorfendum að skynja hver þau væru, hér og nú. Það er fallegt að eldast og líka erfitt. Sjötíu ára hjónaband er f lókið og það er alls konar en það þarf ekki að mata áhorfandann á öllu.“ Verkefnið var sannarlega knýj- andi enda tók Jón Bjarki upp síðasta æviár afa síns og fylgdi honum alla leið í kirkjugarðinn. „Þetta var síðasti séns, síðasta sinn sem hann eldaði grautinn sinn, síðasta sinn sem hann gekk göngu- túrinn og hún að fara með uppá- haldsvísurnar sínar í síðasta sinn,“ segir Jón Bjarki, sem þurfti vissulega að skilja á milli þess að vera kvik- myndagerðarmaður og barnabarn. „Ég lagði vélina frá mér þegar afi varð mikið veikur,“ segir hann. Þau segja það þó hafa auðveldað verkefnið mjög að Trausti vildi láta gera þessa mynd og vildi láta fylgja sér alla leið inn í dauðann. Það hafi auðveldað mjög að vera með svo skýrt leyfi. „Ég lagði mikið upp úr því að dvelja með þeim í lengri tíma og það gerði það að verkum að smám saman vöndust þau vélinni og þetta varð leikur okkar á milli. Ég held við höfum verið komin með 50 til 60 klukkustundir af myndefni og eitthvað umfram það í bara hljóði,“ segir hann. Möguleg álfabölvun á myndinni Þau Jón Bjarki og Hlín komu til landsins undir lok júlí í fyrra því fyrirhugað var að frumsýna myndina á Skjaldborgarhátíðinni. Hátíðinni var svo frestað degi áður en hún átti að hefjast vegna Covid- takmarkana. „Svo tókst að halda hátíðina í septemberlok í Bíó Paradís og ætl- uðum við að fara með myndina í sýningar í framhaldi hátíðarinnar. Þetta reyndust þó síðustu dagarnir fyrir hertar takmarkanir enda kom upp bylgja á sama tíma. Þá var frest- að fram í nóvember en ekkert varð úr því. Svo vorum við komin fram í lok mars og komin að frumsýning- ardegi. Þá aftur var öllu skellt í lás og við rétt náðum að halda lokaða sýn- ingu daginn áður fyrir styrktaraðila og fjölskyldu,“ útskýrir hann. „Ég var nú farinn að gera grín að því að það væri mögulega einhver álfabölvun á myndinni því það komu alltaf upp bylgjur ofan í fyrir- hugaðar frumsýningar,“ segir Jón Bjarki, en álfar koma töluvert við sögu í myndinni eins og titillinn gefur til kynna. „Svo við héldum eins konar frumsýningu í álfa- höfuðborginni sjálfri í Hellisgerði í Hafnarfirði þar sem við vörpuðum myndinni á Álfastein og eftir það hefur þetta gengið.“ Aðspurður hvort hann trúi þá á álfa segist Jón Bjarki í upphafi hafa gefið lítið fyrir það enda sé það þreytt klisja erlendis að við Íslend- ingar gerum það. „En það má segja að þegar afi fór að tengjast álfunum meira þegar hann fór að nálgast dauðann sá maður fegurðina í því, og kannski ekki síður myndlíkinguna fyrir ferðalagið sem fram undan var. Það er kannski ekki rétt að segja að ég trúi á álfa en það er eitthvað virki- lega fallegt í þessari hugmynd og tenging við okkar menningararf sem mér er farið að þykja mjög vænt um.“ Safnaði víni fyrir eigin jarðarför Aðspurður segir hann stórfjöl- skylduna gríðarlega þakkláta fyrir myndina og Hlín bætir við að þau hafi fundið vel að allir væru með þeim í liði við gerð hennar. „Meira að segja í jarðarför Trausta norður á Ströndum voru allir með, meira að segja presturinn, Hjálmar Jónsson, fyrrum dómkirkjuprestur, sem gaf líkförinni merki um að hinkra með kistuna á meðan ég stökk á milli með kameruna.“ „Afi hafði skipulagt jarðarför sína í þaula og fólk vissi af því. Hann hafði til dæmis safnað sterku víni fyrir hana árum saman og geymt í kjallaranum hjá pabba. Hann hafði valið staðinn, tónlistarmennina og lögin og sagt mér að við yrðum auðvitað að taka hana upp þegar að því kæmi,“ segir Jón Bjarki en við upphaf athafnar var skenkt í glös brennivíni, viskíi og gini, allt að ósk hins látna. ■ + + + = 19.990 kr. A L LT ÓTA K M A R K A Ð Fjölskyldupakkinn: Þau Jón Bjarki Magnússon og Hlín Ólafsdóttir hafa þurft að sýna mikla biðlund í aðdraganda frumsýningar frumraunar sinnar í heim- ildamyndagerð, en mynd Jóns Bjarka, Hálfur álfur, sem Hlín gerði tónlistina við og með- framleiddi, er loks sýnd í Bíó Paradís. En áður en það gat orðið héldu þau sérstaka álfa- sýningu í Hellisgerði. Myndin, sem fjallar um lokaæviskeið afa Jóns Bjarka, Trausta Breiðfjörð Magnússonar, og ömmu, Huldu Jónsdóttur, var loka- verkefni Jóns Bjarka í sjónrænni mannfræði frá Freie Universitat í Berlín. Parið hefur búið í borginni frá árinu 2015 og Hlín lagt þar stund á nám í myndlist og er að ljúka mastersgráðu. „Við duttum bæði inn í drauma- námið í Berlín. Þetta var lokaverk- efnið í námi Jóns Bjarka og það að við unnum þetta saman gerðist frekar ómeðvitað og náttúrulega. Við eyðum ófáum stundum saman,“ segir Hlín. „Við búum saman og tölum mikið saman um verkefni hvort annars og þetta skarast mikið, skapandi heimildarmyndagerð og myndlist, svo þetta átti bara vel saman,“ segir Jón Bjarki og Hlín bætir við: „Þessi tegund heimildarmyndargerðar er mjög baseruð í myndlist. Ég hafði í upphafi trú á að við gætum gert þögla heimildarmynd þar sem áherslan væri öll á hið sjónræna. Tilvera þeirra Huldu og Trausta væri þar í forgrunni. Þessi daglegi veruleiki.“ Mikið sungið og mikið sagt Jón Bjarki, sem starfaði árum saman sem blaðamaður, hafði viðrað önnur umfjöllunarefni fyrir loka- verkefni og var með ákveðnar efa- semdir í upphafi verkefnisins. „En Hlín benti á að það þyrfti ekki mikið að gerast í myndinni, heldur myndi samspil þeirra hjóna bera hana uppi. Það að þessi maður væri að undirbúa 100 ára afmæli sitt og um leið jarðarför, það væri nóg,“ segir Jón Bjarki og hlær að því að þau hafi íhugað að hafa myndina þögla. „Hún endar svo á að vera nánast söngvamynd, það er mikið sungið og mikið sagt. En grunnur- inn hvílir svo líka þarna í þögninni, rétt eins og í tifinu í klukkunni sem minnir á tímann sem er senn á þrotum.“ Hlín bendir á að ekki sé um klass- íska heimildarmynd sem er uppfull af upplýsingum og spurningum að ræða. „Við fókuserum ekki mikið á atriði eins og æsku þeirra eða fortíð Hélt sérstaka sýningu fyrir álfana í Hellisgerði Þau Hlín og Jón Bjarki unnu myndina að miklu leyti saman meðan á draumanáminu í Berlín stóð. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Mynd frá útför Trausta á Ströndum. Trausti Breiðfjörð, afi Jóns Bjarka. Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is Afi hafði skipulagt jarðarför sína í þaula og fólk vissi af því. Hann hafði til dæmis safnað sterku víni fyrir hana árum saman og geymt í kjallar- anum hjá pabba. Það er fallegt að eldast og líka erfitt. HELGIN 29. maí 2021 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.