Fréttablaðið - 29.05.2021, Side 22

Fréttablaðið - 29.05.2021, Side 22
Fida Abu Libdeh f lutti hingað frá Palestínu 16 ára gömul ásamt móður sinni og fjórum systkinum.  Hún segist enn há daglega baráttu við for- dóma en þrátt fyrir að hafa lært íslensku og menntað sig hér er hún enn spurð hvort hún sé komin til að þrífa. Móðir Fidu, Amal Tamimi, sem síðar var fyrsta erlenda konan til að sitja á Alþingi, f lutti með fimm börn sín hingað til lands árið 1995 þegar hún skildi við eigin- mann sinn. „Bróðir hennar, Salman Tamimi, sem lést í fyrra, var hér fyrir og hjálpaði okkur í upphafi, en þremur mánuðum eftir að við komum flutti hann til Svíþjóðar.“ Fjölskyldan bjó sér heimili við Álfhólsveg í Kópavogi og lýsir Fida fyrstu árunum sem erfiðum. „Við þekktum engan, áttum enga peninga og skildum ekkert. Þegar auglýsingabæklingar duttu inn um lúguna vissum við ekki hvort það væru rukkanir, hótanir um útburð eða hvað, þetta voru hræðilegir tímar,“ segir hún. Fida var eins og fyrr segir 16 ára, næstelst í hópnum, en systir hennar var ári eldri og yngri börnin tíu ára, níu ára og fjögurra ára. Amal, móðir þeirra, sá fjölskyldunni farborða með þrifum í heimahúsum og síðar vinnu í fiski. „Á þessum tíma voru fáir inn- flytjendur hér á landi,“ segir Fida, sem lýsir einangrun f jölskyld- unnar. „En við áttum rosalega góða nágranna sem voru sífellt að passa upp á okkur, mættu í öll afmæli þegar við kunnum ekki einu sinni að syngja afmælissönginn og komu með kökur og hjálpuðu okkur að líða vel í okkar umhverfi.“ Kerfið gerði ekki ráð fyrir þeim Fida og systir hennar luku síðasta ári í Austurbæjarskóla og skráðust í Iðnskólann en hún segir að þá hafi áskoranirnar hafist af alvöru. „Þá vorum við allt í einu orðnar fullorðnar og ekkert sniðið að okkur. Innflytjendur á okkar aldri voru fáséðir og kerfið gerði ekki ráð fyrir okkur. Við fórum í Iðn- skólann því það þótti sniðugt að setja okkur í meira verklegt nám en bóklegt.“ Fida segir þær hafa notið sín í verklegu fögunum en ekki náð þeim bóklegu. Hún gafst þó ekki upp strax og reyndi í tvö ár þar til hún flosnaði upp úr námi. „Ég fór að vinna í Ömmubakstri með mömmu og kynntist þar fólki sem var að fara að vinna í fiski og fór með þeim í það. Þannig bjó maður til sitt eigið samfélag, þar var fólk sem skildi mig. Þar hafði fólk sama útlit, upp- lifanir og tilfinningar og ég náði að tengja betur við það.“ Einskis virði án menntunar Fida segir þetta hafa verið erfiða tíma fyrir hana persónulega enda alin upp við mikilvægi menntunar. „Stríðið í Palestínu hefur nú stað- ið í 73 ár en menntunarstig þjóðar- innar hefur ekkert lækkað. Mér fannst ég einskis virði án mennt- unar. Hvernig ætlaði ég að láta rödd mína heyrast og breyta samfélaginu án menntunar? Ég var mjög óham- ingjusöm og reið yfir stöðunni. Ég var reið út í Ísland, út í mömmu og út í sjálfa mig. Við komum hingað til að leita að betra lífi en líf mitt var ekkert betra hér.“ Fida segir lífið í Palestínu vissu- lega hafa verið erfitt, bæði vegna stríðsástands og heimilisaðstæðna. „Það ríkti mikið óöryggi en ég var samt sem áður hamingjusam- ari enda voru þetta allt utanað- komandi aðstæður sem ég hafði ekki stjórn á. Ég gat ekki breytt Þetta er dagleg barátta Fida segir for- dóma aukast því ofar sem hún komist. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is stríðinu en ég gat lært, ég átti vini og gat tjáð mig.“ Situr enn alltaf upp við vegg Að alast upp við stríðsástand segir Fida setja mark sitt á allt lífið og ástandið á Gaza undanfarið hafi ýft upp sárar æskuminningar. „Svo nú þegar ástandið er svona á Gaza upplifir maður mikið óöryggi og hræðslu. Reiðin og allar þessar neikvæðu tilfinningar blossa upp.“ Fida segist hafa lifað í stöðugum ótta á meðan hún bjó í Palestínu. „Ég var alltaf hrædd og enn þann dag í dag sit ég alltaf upp við vegg og vil ekki að neinn labbi aftur fyrir mig. Ég skutla dætrum mínum alltaf í skólann og fer ekki fyrr en þær eru komnar inn. Ég reyni að sannfæra mig um að ég sé örugg á Íslandi en maður losnar aldr- ei alveg við þennan ótta. Ég sef aldrei með lokaða hurð og það er fleira sem aldrei breytist.“ Eins og fyrr segir hætti Fida í Iðn- skólanum og fór að vinna í fiski. Meðfram því tók hún nokkra áfanga í kvöldskóla Fjölbrautaskólans í Breiðholti. „Ég var hálfnuð með stúdentspróf en féll alltaf í íslensku og dönsku.“ Þega r hú n svo hey rði a f háskólabrú Keilis ákvað hún að sækja um skólavist. „Ég hafði þá reynt að fá undan- þágu við Háskóla Íslands en fengið afsvar svo ég var rosalega kvíðin og óttaðist höfnun. Ég var svo boðuð í viðtal og man enn tilfinninguna þegar ég fékk samþykkta skólavist,“ segir Fida og upprifjunin kallar fram tár. „Þar fékk ég jafnframt greiningu á lesblindu og stuðning vegna hennar. Það sem Keilir gerði fyrir mig og marga aðra innflytj- endur var ótrúlegt og þannig fékk ég aðgang að háskólanámi,“ segir Fida uppnumin. Mamma gafst ekki upp Fida hóf nám í hag fræði við Háskóla Íslands en skipti f ljótlega yfir í orku- og umhverfistækni- fræði þaðan sem hún lauk prófi. Fida kynntist eiginmanni sínum, Jóni Kristni Ingasyni, þegar þau störfuðu saman á Olísstöðinni við Álfheima. „Við fórum svo saman í Keili og í framhaldi í háskólanám en hann fór í viðskiptafræði.“ Saman eiga þau Fida og Jón þrjár dætur, átta, tólf og fimmtán ára. „Ég varð fyrst fyrir alvöru ákveð- in í að gefast ekki upp á menntun- inni þegar ég vissi að ég ætti von á elstu stelpunni. Ég vildi sýna henni að mamma hennar hefði ekki gefist upp,“ segir Fida og það er augljóst að frásögnin tekur á. „Ég vissi að þetta væri stelpa og var ákveðin í að vera henni fyrir- mynd og veita henni gott líf. Ég var meðvituð um að dætur mínar Ég var alltaf hrædd og enn þann dag í dag sit ég alltaf upp við vegg og vil ekki að neinn labbi aftur fyrir mig. Fida Abu Libdeh 22 Helgin 29. maí 2021 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.