Fréttablaðið - 29.05.2021, Síða 23
myndu tilheyra jaðarhóp hér á
landi. Þær eru af erlendum upp-
runa og við blönduð fjölskylda, en
faðir þeirra var ættleiddur hingað
frá Indónesíu sem kornabarn. Ég
hef því í kringum þriðja bekk átt
samtal um þessi mál við þær. Þá
hafa þær verið farnar að fá athuga-
semdir frá skólafélögunum. Ég segi
þeim að sumir munu dæma þær
vegna nafns þeirra og útlits. Ég veit
að oftast er þetta ekki illa meint
þegar börn eiga í hlut en ég verð
að sjá til þess að mín börn upplifi
slíkar athugasemdir ekki á nei-
kvæðan hátt og taki þær ekki inn
á sig. Ég hvet þær til að vera þær
sjálfar og bendi þeim á jákvæðar
kvenkyns fyrirmyndir. Það er erfitt
að útskýra fyrir börnum að þetta sé
staðan. Að segja þeim að þau verði
minni en aðrir því þau séu aðeins
dekkri. En ég verð að gera það því
við höfum bara daginn í dag og þær
verða að vera undirbúnar,“ segir
Fida ákveðin.
Launalaus í stofunni
Fida vann lokaverkefni sitt í orku-
og umhverfistæknifræði ásamt
skólafélaga sínum, Burkna Páls-
syni. „Ég skoðaði þá áhrif kísils á
mannslíkamann og hann hreins-
unaraðferðir á kísli. Þegar við
útskrifuðumst fengum við enga
vinnu enda ekki með neina starfs-
reynslu. Við sóttum þá um og feng-
um styrk úr Tækniþróunarsjóði til
að halda áfram með lokaverkefnið
og stofnuðum þá Geo Silica árið
2012.“ Geo Silica framleiðir nátt-
úruleg íslensk fæðubótarefni og
hefur sett á markað fimm vörur.
„Það tók fjögur ár að koma fyrstu
vöru á markað og byrjaði auðvitað
inni í stofu launalaust. En hún sló
í gegn og 2019 fengum við utan-
aðkomandi fjármagn,“ segir Fida,
en fyrirtækið er í dag metið á 700
milljónir króna.
Aðspurð um upphafið segist Fida
hafa verið full af eldmóð í upphafi
en fengið einhverja bakþanka
þegar hún hafði verið launalaus í
nokkra mánuði.
„Maður sveif last upp og niður
en þá skiptir máli að trúa á hug-
myndina og vera með gott teymi
í kringum sig sem hvetur mann
áfram. Ég er líka vön að synda á
móti straumnum og þekki ekkert
annað en að berjast.“
Munurinn eru karlmennirnir
Fida segist oft spurð um muninn á
palestínskum konum og íslenskum
en palestínskar konur eru þekktar
baráttukonur og hafa tekið mikinn
þátt í frelsisbaráttu Palestínu.
„Ég svara þá að það sé nánast
enginn munur á baráttuviljanum,
mu nu r inn sé karlmennir nir.
Íslenskir karlar standa með konun-
um sínum, þar liggur munurinn,“
segir Fida og segir eiginmann sinn
þar enga undantekningu.
„Íslenskir karlmenn eru komnir
miklu lengra en karlar annars stað-
ar í heiminum og það er að miklu
leyti skýringin á því að konur eru
komnar þangað sem þær eru hér
á landi. Það er kannski skrítið að
segja það en stríðið í Palestínu
hefur hjálpað konum þar mikið þar
sem það hefur ýtt þeim framar. Þær
eru í forsvari í baráttu Palestínu og
hefur sú staðreynd breytt menn-
ingunni mikið. Ég var til dæmis
send í eins konar kvennabúðir níu
ára gömul. Þar var mér kennt að
ég hefði rödd og hvernig ég ætti
að bera ábyrgð á henni. Hvernig
maður ætti að nýta sér frelsið.“
Aðspurð um það hvernig karakt-
er móðir hennar, sem kom hingað
ein með fimm börn án þess að tala
tungumálið, sé, segir Fida hana
mikla baráttukonu.
„Ég veit ekki hvort ég hefði getað
gert það sem hún gerði. Það segir
mikið um karakter hennar.“
Verða að vita hvaðan þær koma
Systkini Fidu gengu öll menntaveg-
inn og gengur vel í dag en hún segir
palestínskan bakgrunninn hafa
mikil áhrif á það hver þau eru í dag.
„Við erum svolítið vænisjúk og
æst,“ segir hún og hlær. „Það eru
mikil læti þegar við komum öll
saman. Við erum lítil fjölskylda og
eigum okkur ekki sögu hér þó svo
við séum öll gift Íslendingum, svo
við leggjum mikið upp úr því að
börnin okkar tengist og eigi hvert
annað að.“
Dæturnar þrjár bera allar bæði
íslensk og palestínsk nöfn og það
er augljóst að sú ákvörðun var Fidu
hjartans mál. „Ég veit að það er
erfiðara fyrir þær að bera palestínsk
nöfn,“ segir hún og gerir stutt hlé á
máli sínu. „Enda eru þær ólíklegri
til að fá vinnu með útlenskt nafn.
En þær verða að vita hvaðan þær
koma.“
Fida hefur frætt þær um upp-
runaland sitt en þær hafa þó enn
ekki heimsótt það. Sú mynd sem
birtist þeim í fréttum gerir það að
verkum að þær þora ekki að heim-
sækja heimaland móður þeirra. „Sú
ímynd er ekki rétt en þó ég reyni að
segja það við þær eru þær hræddar.
Elsta systurdóttir mín fór með mér í
heimsókn árið 2019, en hún er orðin
21 árs, og hún varð yfir sig hrifin.“
Sjálf reynir Fida að heimsækja
Palestínu á tveggja ára fresti enda
býr faðir hennar þar ásamt eigin-
konu sinni og þremur systkinum
Fidu. „Það er gott að upplifa menn-
inguna og hver maður er og fara svo
aftur þangað sem maður á heima.“
Talandi um heima viðurkennir
Fida að alls staðar sé litið á hana sem
útlending. Á dögunum var Fida ein
þeirra sem stóðu fyrir mótmælum á
Austurvelli vegna hernaðaraðgerða
Ísraela í Palestínu.
Þar töluðu allir við mig á ensku.
Það sem ég tók út úr þessu var að ég
er ekki nægilega mikill Palestínu-
Það er erfitt að útskýra
fyrir börnum að þetta
sé staðan. Að segja
þeim að þau verði
minni en aðrir því þau
séu aðeins dekkri.
Fida Abu Libdeh
skatturinn@skatturinn.is
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Niðurstaða álagningar
er nú aðgengileg á
þjónustuvefnum skattur.is
Barnabætur, sérstakur barnabótaauki, vaxtabætur
og inneignir verða greiddar út 1. júní.
Upplýsingar um greiðslustöðu veitir Skatturinn
og sýslumenn utan höfuðborgarsvæðisins.
Kærufresti lýkur 31. ágúst 2021.
Álagningu skatta á
einstaklinga er lokið
skattur.is
Sími 442 1414 vegna upplýsinga um álagningu.
Sími 442 1000 vegna almennra fyrirspurna og innheimtu.
Helgin 23LAUGARDAGUR 29. maí 2021