Fréttablaðið - 29.05.2021, Qupperneq 34
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
„Sleggjan hefur tekið yfir þjónustu,
viðgerðir og viðhald á Mercedes-
Benz vöru- og hópferðabílum og
á sama tíma tekið við atvinnu-
bílaverkstæði Öskju sem hefur
alfarið færst úr húsnæði Öskju til
Sleggjunnar,“ upplýsir Guðmundur
Björnsson, framkvæmdastjóri og
eigandi Sleggjunnar.
Hann segir starfsemi Sleggjunn-
ar þó haldast óbreytta.
„Áfram verða allir og öll bíla-
merki velkomin í nýtt og vel útbúið
verkstæði okkar að Desjamýri 10
í Mosfellsbæ og Klettagörðum 4
í Reykjavík, og verða starfsmenn
félagsins við þessa breytingu hátt í
30 talsins.“
30 ára traust og góð þjónusta
Sleggjan var stofnuð árið 1990 og
byggir því á 30 ára grunni með
traustan hóp viðskiptavina.
„Við fögnum mjög samstarfinu
við Öskju um þjónustu við Merce-
des-Benz vörubíla og hópbifreiðar.
Mercedes-Benz er meðal bestu
framleiðenda heims, og jákvæð
og spennandi áskorun að taka við
allri þjónustu við þessa bíla,“ segir
Guðmundur.
Sleggjan mun áfram sinna
alhliða viðhaldi við vörubíla og
vagna af öllum tegundum eins
og félagið hefur gert undanfarna
áratugi.
„Jafnframt fáum við til Sleggj-
unnar vel þjálfaðan mannskap og
allan þann tækjabúnað sem Askja
hefur byggt upp í kringum þessa
þjónustu. Starfsstöðvar okkar
eru á tveimur stöðum og er lögð
áhersla á að veita alla þá þjónustu
sem viðskiptavinurinn þarfnast á
báðum stöðum.“
Þó verður lögð áhersla á for-
greiningu og hraðþjónustu í
Klettagörðum og smurþjónusta
verður í Desjamýri.
„Þannig munu viðskiptavinir
Mercedes-Benz og Sleggjunnar
nú hafa aukinn aðgang að fjöl-
breyttri þjónustu okkar, til dæmis
í tengslum við aftanívagna og eldri
bíla,“ segir Guðmundur.
Aukin fjölbreytni og aðgengi
Sleggjan býður upp á þjónustu
fyrir allar tegundir vörubíla og
hópbifreiða, gamlar sem nýjar.
„Við erum alltaf að bæta við
þjónustu okkar og bjóðum meðal
annars upp á hjólastillingu fyrir
allar tegundir vörubifreiða, lög-
gildingu ökurita, vistun gagna úr
ökurita og ökuritakorta, viðhald
á loftkælingarkerfi (AC-kerfi),
bremsuprófanir, ástandsskoðun,
ljósastillingu og fyrirbyggjandi
viðhaldsviðgerðir, svo eitthvað sé
nefnt,“ greinir Guðmundur frá.
Undanfarin ár hefur Mercedes-
Benz verið annar mest seldi vöru-
bíllinn á Íslandi og í gegnum tíðina
hafa Mercedes-Benz og Setra-hóp-
ferðabílar verið langvinsælustu
gerðirnar í hópferðaakstur.
Bílaumboðið Askja mun áfram
vera með sölu nýrra bíla og vara-
hluti.
„Við hjá Öskju fögnum því að
koma að starfsemi Sleggjunnar.
Félagið hefur verið vel rekið fjöl-
skyldufyrirtæki og hefur gott
orðspor meðal sinna og einnig
okkar viðskiptavina. Með okkar
innkomu í félagið verður til enn
öflugra þjónustufyrirtæki sem
mun taka næstu skref í að þjónusta
og auka enn fjölbreytni og aðgengi
eigenda Mercedes-Benz, Setra og
Unimog vöru- og hópferðabíla að
góðri þjónustu,“ segir Jón Trausti
Ólafsson, framkvæmdastjóri
Öskju. ■
Allar nánari upplýsingar og tíma
pantanir fást í síma 588 4970 og á
sleggjan.is
Sleggjan er
alltaf að bæta
við þjónustu
sína og býður
meðal annars
hjólastillingar
fyrir allar teg
undir vörubíla,
bremsuprófanir
og fyrirbyggj
andi viðhalds
viðgerðir.
MercedesBenz er meðal bestu framleiðenda heims og hefur undanfarin ár verið annar mest seldi vörubíllinn á Íslandi. MYND/AÐSEND
Aðstaða og allur tækjabúnaður á verkstæðum Sleggjunnar er fyrsta flokks. Starfsstöðvar Sleggjunnar eru á tveimur stöðum og þar starfa nú hátt í 30 manns. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sleggjan þjónustar allar tegundir og
merki vörubíla og hópferðabíla.
Verkefni Sleggjunnar eru fjölbreytt
við þjónustu allra bíltegunda.
Vörubíll á verkstæði Sleggjunnar.
Sleggjan mun
áfram sinna alhliða
viðhaldi við vörubíla og
vagna af öllum tegund-
um, eins og félagið hefur
gert undanfarna áratugi,
og áfram verða allir og
öll bílamerki velkomin í
nýtt og vel útbúið verk-
stæði okkar.
Guðmundur Björnsson.
2 kynningarblað 29. maí 2021 LAUGARDAGURVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR