Fréttablaðið - 29.05.2021, Page 36
Enginn vinnudagur er eins
hjá Óskari Þór Gunnarssyni
sem rekur vörubíl með krana
sem hann stýrir með þráð-
lausri fjarstýringu. Vinnu-
dagarnir geta verið langir
en um leið skemmtilegir því
verkefnin eru fjölbreytt.
Óskar Þór Gunnarsson vekur oft
athygli þegar hann mætir í íbúðar-
hverfi á vörubílnum sínum en bíll-
inn er með krana sem Óskar stýrir
með fjarstýringu af mikilli leikni.
Vörubíllinn er af gerðinni Volvo
FM 440 árgerð 2008 en kraninn
er HIAB XC 408 E8 HIPRO með
hámarks lyftigetu upp á 10.000
kíló. Með slíka græju í vopnabúr-
inu er verkefnalistinn oft langur og
inniheldur ansi fjölbreytt verkefni.
„Ég tek að mér alls konar verk-
efni og segja má að enginn einn
dagur sé eins hjá mér. Meðal verk-
efna sem ég tek að mér má nefna
þjónustu við byggingaverktaka,
ýmiss konar jarðvinnu og fram-
kvæmdir í görðum heimila. Ég
þjónusta einnig mikið skipafélagið
Eimskip og keyri út ýmsar vörur
þar sem ég nota kranann og svo
bara fullt af öðrum verkefnum þar
sem kraninn er í fyrirrúmi.“
Óskar Þór starfar sjálfstætt og
er bíllinn skráður hjá vörubíla-
stöðinni Þrótti.
Einföld í notkun
Fjarstýringin sem Óskar notar er
svokölluð radíófjarstýring og er
mjög þægileg og einföld í notkun.
„Ég hef alla tíð unnið með þessa
fjarstýringu en áður fyrr voru
aðstæður auðvitað talsvert frum-
stæðari. Lengi vel voru stangir
fastar öðrum megin við bílinn
sem gerði bílstjórum oft erfitt
fyrir þegar það þurfti að sækja eða
flytja hlass á hinni hlið bílsins.
Seinna meir komu fjarstýringar
með snúru en þær voru að hámarki
20 metrar að lengd. Fjarstýringar í
dag eru beintengdar við kranann
og fyrir vikið erum við bílstjórar
miklu frjálsari en áður og náum
að stýra verkefnum mun betur
en áður. Mörgum finnst gaman
að fylgjast með mér vinna og
skemmtilegt að sjá hvernig hægt er
að stýra öflugum krana með nettri
fjarstýringu. Börnum finnst sér-
staklega gaman að fylgjast með og
spyrja mig út í hvernig þetta virkar
allt saman.“
Lítið um sumarfrí
Óskar hefur unnið á vörubíl síðan
í nóvember 2006 og segir starfið
vera fjölbreytt og skemmtilegt.
„Eins og fyrr segir er enginn einn
dagur eins hjá mér, verkefnin eru
ansi fjölbreytt og ég er líka stöðugt
að hitta nýtt fólk. Oftast klára ég
um fjögur verkefni á hverjum degi
og ég er sjaldan að vinna í verkum
sem taka marga daga. Fyrir vikið
er ég oft í stöðugu kapphlaupi
við klukkuna svo allt gangi upp.
Vertíðin byrjar yfirleitt í mars og
stendur oft yfir til áramóta, sér-
staklega ef það snjóar lítið. Þetta er
mjög annasamur tími með löngum
vinnudögum enda fara bílstjórar í
mínum bransa varla í hefðbundið
sumarfrí. Það má líkja starfi okkar
við sjómennsku að mörgu leyti
þar sem enginn fer í sumarfrí á
miðri vertíð. Í staðinn fer ég á skíði
og snjósleða auk þess sem ég á
mótorhjól og hjól sem ég nota líka
mikið í frístundum mínum.“ n
Kapphlaup við klukkuna á hverjum degi
Vinnudagurinn er oft langur hjá Óskari Þór Gunnarssyni enda verkefnin mörg. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Vertíðin byrjar
yfirleitt í mars og
stendur oft yfir til
áramóta, sérstaklega ef
það snjóar lítið. Þetta er
mjög annasamur tími
með löngum vinnudög-
um enda fara bílstjórar
í mínum bransa varla í
hefðbundið sumarfrí.
Óskar Þór Gunnarsson
LANDSBANKINN. IS
Komum
hlutunum
á hreyfingu
Við bjóðum hagstæðar leiðir
til að fjármagna ný og notuð
atvinnutæki og bíla sem henta
rekstrinum þínum.
4 kynningarblað 29. maí 2021 LAUGARDAGURVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR