Fréttablaðið - 29.05.2021, Page 41
Sorpa auglýsir eftir verkefnastjóra framkvæmdastjórnar sem hefur það hlutverk að styðja
við stjórn/deildarstjóra í þeim fjölmörgu umbreytingaverkefnum sem framundan eru
í tækni og rekstri. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri.
VERKEFNASTJÓRI
FRAMKVÆMDASTJÓRNAR
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Þátttaka í skilgreiningu, innleiðingu og stjórn
verkefna af hálfu SORPU
• Gerð verk- og kostnaðaráætlana og eftirfylgni
með þeim
• Halda utan um verkefnastofna
• Samhæfing og samstarf við ráðgjafa
og aðra stjórnendur
• Samskipti við stjórnvöld, m.a. vegna
leyfismála
• Mat á umfangi verkefna með gerð
fýsileikaskýrslu
• Stuðla að stöðugum umbótum
í rekstrar- og tækniumhverfi SORPU
Byggðasamlagið SORPA er í eigu sex
sveitarfélaga; Reykjavíkur, Kópavogs,
Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar
og Seltjarnarness. Hlutverk SORPU bs. er
að annast meðhöndlun úrgangs og sinna
þannig lögbundinni skyldu sveitarfélaganna
og á sama tíma endurspegla áherslur
eigenda sinna í að ná markmiðum
hringrásarhagkerfisins. SORPA bs. sér um
rekstur móttöku- og flokkunarstöðvar, gas-
og jarðgerðarstöðvar, urðunarstaðar og sex
endurvinnslustöðva. Þá hefur félagið einnig
umsjón með grenndargámum fyrir hönd
sveitarfélaganna, rekur nytjamarkaðinn
Góða hirðinn og Efnismiðlun Góða hirðisins.
Starfsstöðvar fyrirtækisins eru tíu talsins og
eru höfuðstöðvar SORPU bs. að Gylfaflöt 5
í Reykjavík
Umsóknarfrestur er til og með 14. júní 2021. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Nánari upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is.
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði tæknifræði
eða verkfræði
• Formleg menntun í verkefnastjórnun er æskileg,
t.d. MPM nám eða sambærilegt
• Alþjóðleg vottun í verkefnastjórnun er æskileg
(C eða B vottun eða sambærilegt)
• Að minnsta kosti 5 ára reynsla af stýringu
verkefna og verkstofna
• Reynsla og þekking á gæðakerfum
og hagnýtingu þeirra í verkefnum
• Þekking og reynsla af notkun
verkefnastjórnunarforrita
• Góð almenn tölvukunnátta, þ.m.t. á Office, Visio
og SharePoint
• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
• Geta til að vinna í breytilegu umhverfi
• Framúrskarandi skipulagsfærni og sjálfstæði
í starfi
• Eiga auðvelt með að tileinka sér öguð, nákvæm
og regluföst vinnubrögð
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Brennandi áhugi á umhverfismálum
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
hagvangur.is
ATVINNUBLAÐIÐ 3LAUGARDAGUR 29. maí 2021