Fréttablaðið - 29.05.2021, Qupperneq 49
Fasteignamarkaðurinn ehf., sem er ein elsta og rótgrónasta fasteignasala landsins,
óskar eftir að ráða til starfa löggiltan fasteignasala til að sinna sölu fasteigna
og ýmsu öðru er viðkemur daglegum rekstri fasteignasölu.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af sölu fasteigna.
Föst góð laun í boði fyrir réttan aðila auk mögulegrar árangurstengingar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf umsækjenda
berist á netfangið: gtj@fastmark.is
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
Sími 570 4500 • fastmark@fastmark.is • www.fastmark.is
Jón Guðmundsson lögg. fasteignasali
Guðmundur Th. Jónsson lögg. fasteignasali
Fasteignamarkaðurinn ehf.
- lögg. fasteignasali
Hlutverk Veðurstofu Íslands er að stuðla að bættu öryggi almennings, eigna og innviða gagnvart öflum náttúrunnar,
jafnframt því að styðja sjálfbæra nýtingu náttúrunnar og samfélagslega hagkvæmni. Því hlutverki sinnir starfsfólk
Veðurstofunnar með vöktun lofts, láðs og lagar, byggðri á öflun, varðveislu og greiningu gagna, rannsóknum, þróun og
miðlun upplýsinga.
Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðuneytið. Á Veðurstofunni starfa um 140
manns með fjölbreytta menntun og starfsreynslu sem spannar mörg fræðasvið. Auk þess starfar fjöldi fólks við athugana-
og eftirlitsstörf víðsvegar um landið.
Nánari upplýsingar um Veðurstofu Íslands má finna á vedur.is
Veðurstofa Íslands auglýsir eftir sérfræðingi í fullt starf á sviði veðurgagna og veðurfarsfræði. Viðkomandi mun starfa
á úrvinnslu- og rannsóknarsviði en þar vinna um 50 manns við ýmis spennandi þróunar- og rannsóknarverkefni er
tengjast veður- og loftslagsrannsóknum, ofanflóðahættumati, jökla-, vatna- og haffræði, jarðskorpuhreyfingum og
eldgosum.
Veðurstofan aflar veðurgagna í miklu magni og er umsjón þeirra, rannsóknir og ráðgjöf tengdar veðurfari, hluti af
kjarnastarfsemi stofnunarinnar. Veðurfarsgrunnur stofnunarinnar geymir veðurfarssögu rúmlega 200 ára og gögn
síðustu ára sýna merki um hraðar loftslagsbreytingar sem mikilvægt er að vakta frekar. Verulegar breytingar hafa
orðið á síðustu árum í öflun og miðlun gagna og eru miklir möguleikar á að þróa það frekar.
Starfsmaðurinn verður hluti af hópi sérfræðinga sem vinna með veðurgögn, haf- og veðurlíkön og rannsóknir á lofthjúpi
og loftslagsbreytingum, auk þess sem verkefni hans tengjast mjög verkefnum á öðrum sviðum stofnunarinnar.
SÉRFRÆÐINGUR Í
VEÐURGAGNAÚRVINNSLU
Gildi Veðurstofunnar eru þekking, áreiðanleiki,
framsækni og samvinna. Ráðningar hjá stofnuninni
taka mið af þessum gildum.
Sérfræðivinna í úrvinnslu veðurgagna
Afgreiðsla og miðlun veðurtengdra
gagna til notenda
Yfirferð veðurgagna og frágangur þeirra
fyrir veðurfarsgagnagrunn
Þátttaka í þróun aðferða til úrvinnslu og
miðlunar veðurtengdra gagna
Þátttaka í samþættingu veðurfarsgagna
við önnur rannsóknarverkefni tengd
loftslagsbreytingum og öðrum þáttum
jarðkerfisins
Þátttaka í tímabundnum
rannsóknarverkefnum tengdum
veðurfarsfræði
Gert er ráð fyrir að viðkomandi
starfsmaður fái viðeigandi þjálfun á
þeim fagsviðum sem þörf er á.
Háskólapróf og framhaldsmenntun á
sviði raunvísinda eða verkfræði
Farsæl reynsla á sviði rannsókna og
úrvinnslu mæligagna
Kunnátta í tölfræðilegum greiningum
og framsetningu
Kunnátta og reynsla af úrvinnslukerfum,
s.s. R eða Python eða sambærilegum
kerfum
Lipurð og hæfni í mannlegum
samskiptum
Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í
teymisvinnu
Færni og geta til að miðla niðurstöðum
innan teymis og út á við
Skipulögð og fagleg vinnubrögð í starfi
Góð tölvukunnátta nauðsynleg,
kunnátta í notkun venslagagnagrunna
er kostur
Góð færni í íslensku og ensku
nauðsynleg. Þekking á einu norrænu
máli er kostur
Nánari upplýsingar um starfið veita
Jórunn Harðardóttir, framkvæmda-
stjóri (jorunn@vedur.is), Halldór
Björnsson, hópstjóri veðurs og loftslags
(halldor@vedur.is) og Borgar Ævar
Axelsson, mannauðsstjóri
(borgar@vedur.is), í síma 522 6000.
Um er að ræða fullt starf og taka laun
mið af kjarasamningum ríkisins og
viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með
7. júní nk.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir
um að sækja um starfið á
www.starfatorg.is
HELSTU VERKEFNI
Veðurstofan geymir veðurfarssögu rúmlega 200 ára og gögn síðustu ára
sýna merki um hraðar loftslagsbreytingar sem mikilvægt er að vakta frekar
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR FREKARI UPPLÝSINGAR
hagvangur.is
Sterk tengsl
í íslensku
atvinnulífi