Fréttablaðið - 29.05.2021, Page 49

Fréttablaðið - 29.05.2021, Page 49
Fasteignamarkaðurinn ehf., sem er ein elsta og rótgrónasta fasteignasala landsins, óskar eftir að ráða til starfa löggiltan fasteignasala til að sinna sölu fasteigna og ýmsu öðru er viðkemur daglegum rekstri fasteignasölu. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af sölu fasteigna. Föst góð laun í boði fyrir réttan aðila auk mögulegrar árangurstengingar. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf umsækjenda berist á netfangið: gtj@fastmark.is Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík Sími 570 4500 • fastmark@fastmark.is • www.fastmark.is Jón Guðmundsson lögg. fasteignasali Guðmundur Th. Jónsson lögg. fasteignasali Fasteignamarkaðurinn ehf. - lögg. fasteignasali Hlutverk Veðurstofu Íslands er að stuðla að bættu öryggi almennings, eigna og innviða gagnvart öflum náttúrunnar, jafnframt því að styðja sjálfbæra nýtingu náttúrunnar og samfélagslega hagkvæmni. Því hlutverki sinnir starfsfólk Veðurstofunnar með vöktun lofts, láðs og lagar, byggðri á öflun, varðveislu og greiningu gagna, rannsóknum, þróun og miðlun upplýsinga. Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðuneytið. Á Veðurstofunni starfa um 140 manns með fjölbreytta menntun og starfsreynslu sem spannar mörg fræðasvið. Auk þess starfar fjöldi fólks við athugana- og eftirlitsstörf víðsvegar um landið. Nánari upplýsingar um Veðurstofu Íslands má finna á vedur.is Veðurstofa Íslands auglýsir eftir sérfræðingi í fullt starf á sviði veðurgagna og veðurfarsfræði. Viðkomandi mun starfa á úrvinnslu- og rannsóknarsviði en þar vinna um 50 manns við ýmis spennandi þróunar- og rannsóknarverkefni er tengjast veður- og loftslagsrannsóknum, ofanflóðahættumati, jökla-, vatna- og haffræði, jarðskorpuhreyfingum og eldgosum. Veðurstofan aflar veðurgagna í miklu magni og er umsjón þeirra, rannsóknir og ráðgjöf tengdar veðurfari, hluti af kjarnastarfsemi stofnunarinnar. Veðurfarsgrunnur stofnunarinnar geymir veðurfarssögu rúmlega 200 ára og gögn síðustu ára sýna merki um hraðar loftslagsbreytingar sem mikilvægt er að vakta frekar. Verulegar breytingar hafa orðið á síðustu árum í öflun og miðlun gagna og eru miklir möguleikar á að þróa það frekar. Starfsmaðurinn verður hluti af hópi sérfræðinga sem vinna með veðurgögn, haf- og veðurlíkön og rannsóknir á lofthjúpi og loftslagsbreytingum, auk þess sem verkefni hans tengjast mjög verkefnum á öðrum sviðum stofnunarinnar. SÉRFRÆÐINGUR Í VEÐURGAGNAÚRVINNSLU Gildi Veðurstofunnar eru þekking, áreiðanleiki, framsækni og samvinna. Ráðningar hjá stofnuninni taka mið af þessum gildum. Sérfræðivinna í úrvinnslu veðurgagna Afgreiðsla og miðlun veðurtengdra gagna til notenda Yfirferð veðurgagna og frágangur þeirra fyrir veðurfarsgagnagrunn Þátttaka í þróun aðferða til úrvinnslu og miðlunar veðurtengdra gagna Þátttaka í samþættingu veðurfarsgagna við önnur rannsóknarverkefni tengd loftslagsbreytingum og öðrum þáttum jarðkerfisins Þátttaka í tímabundnum rannsóknarverkefnum tengdum veðurfarsfræði Gert er ráð fyrir að viðkomandi starfsmaður fái viðeigandi þjálfun á þeim fagsviðum sem þörf er á. Háskólapróf og framhaldsmenntun á sviði raunvísinda eða verkfræði Farsæl reynsla á sviði rannsókna og úrvinnslu mæligagna Kunnátta í tölfræðilegum greiningum og framsetningu Kunnátta og reynsla af úrvinnslukerfum, s.s. R eða Python eða sambærilegum kerfum Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu Færni og geta til að miðla niðurstöðum innan teymis og út á við Skipulögð og fagleg vinnubrögð í starfi Góð tölvukunnátta nauðsynleg, kunnátta í notkun venslagagnagrunna er kostur Góð færni í íslensku og ensku nauðsynleg. Þekking á einu norrænu máli er kostur Nánari upplýsingar um starfið veita Jórunn Harðardóttir, framkvæmda- stjóri (jorunn@vedur.is), Halldór Björnsson, hópstjóri veðurs og loftslags (halldor@vedur.is) og Borgar Ævar Axelsson, mannauðsstjóri (borgar@vedur.is), í síma 522 6000. Um er að ræða fullt starf og taka laun mið af kjarasamningum ríkisins og viðeigandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 7. júní nk. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á www.starfatorg.is HELSTU VERKEFNI Veðurstofan geymir veðurfarssögu rúmlega 200 ára og gögn síðustu ára sýna merki um hraðar loftslagsbreytingar sem mikilvægt er að vakta frekar MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR FREKARI UPPLÝSINGAR hagvangur.is Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.