Fréttablaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 78
Við
tókum
það
saman
að hér er
ræktað
undir
gleri á
um
tuttugu
hekt-
urum en
á meðan
er talan í
Hollandi
10 þús-
und
hektarar.
Þú færð ekki unga
fólkið nema með fyrsta
flokks aðstöðu, það
eru gerðar kröfur þegar
fólk velur sér háskóla.
Við erum að reyna að
standast þær.
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor er sannfærð um að tækifærin liggi í nýsköpun. MYND/AÐSEND
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir
ver um hálfri vikunni í róm-
antísku samfélagi Hvanneyrar
en í byrjun árs 2019 tók hún
við stöðu rektors Landbún-
aðarháskóla Íslands. Hann
hefur aldrei verið vinsælli og
komast færri að en vilja.
Ég er verkfræðingur og hef farið úr einu í annað má segja. En ég tók meist-aragráðu í efnaverkfræði með næringarfræði og
lífefnafræði sem grunn.“
Ragnheiður lærði í Danmörku
en tók við starfi á Keldnaholti við
heimkomuna. „Þá fór ég að vinna
með plastefni og svo málma og
endaði á að taka doktorsgráðu við
Danska tækniháskólann um tær-
ingu málma. Í beinu framhaldi af
doktorsprófinu fór ég í MBA-nám
við Háskóla Íslands.“
Ragnheiður starfaði á Keldna-
holti og síðan á Orkustofnun
þar til hún fór að vinna að eigin
sprotafyrirtækjum en meðfram því
starfaði hún sem stundakennari
við Háskóla Íslands og birti fræði-
greinar.
„Þegar ég sá stöðu rektors aug-
lýsta fannst mér það spennandi
áskorun enda er ég sannfærð um að
landbúnaður eigi sér bjarta framtíð
hér á landi, auk þess sem svo margt
er að gerast í umhverfis- og lofts-
lagsmálum.“
Hundrað og þrjátíu ára saga
Ragnheiður segir sögu skólans
ríka en árið 1889 var stofnaður
Búnaðarskóli á Hvanneyri sem svo
varð að Bændaskólanum árið 1907.
Það var svo fjörutíu árum síðar
sem kennsla í búvísindum hófst á
háskólastigi.
„Þetta er því orðin rúmlega 130
ára saga og segja má að það hafi ríkt
mikil framsýni þarna 1947 þegar
nám hófst á háskólastigi. Í dag
erum við með búfræðina á fram-
haldsskólastigi og búvísindin á
háskólastigi. Þetta var samtvinnað
frá upphafi og styður vel hvort við
annað. Það komast færri að en vilja
í búfræðina og hefur það lengi verið
þannig. Ungir bændur hafa verið
að biðja okkur að taka f leiri inn en
það er í raun verklegi hlutinn sem
er f löskuhálsinn í því,“ segir Ragn-
heiður. Nú er einn bekkur tekinn
inn í búfræðinni en unnið er í því
að taka inn f leiri nemendur í fjar-
nám í haust.
Ragnheiður segir starfsmenn
skólans hafa tamið sér ný jar
vinnuaðferðir á liðnu ári, en á vor-
mánuðum 2020 var kennsla færð í
fjarkennslu á einni nóttu.
„Lærdómsferlið var krefjandi og
kennarar, nemendur og starfsmenn
lögðu hart að sér til að láta hlutina
ganga upp,“ segir hún.
Þrettán þjóðlönd
„Hér hefur verið mikil aukning
í bæði fjölda starfsfólks og nem-
enda og ég taldi það um daginn að
á þessum litla vinnustað er fólk frá
þrettán þjóðlöndum. Bæði hefur
gengið vel að fá fólk til starfa hjá
okkur og við höfum fengið mikið
af styrkjum frá samkeppnissjóðum
hér og erlendis,“ segir Ragnheiður
en styrkir úr samkeppnissjóðum
hafa hátt í þrefaldast og með aukn-
um styrkjum hefur verið hægt að
ráða inn f leiri sérfræðinga og bæta
við doktorsnemum.
„Sem dæmi þá hafa sjö doktors-
nemendur útskrifast frá upphafi en
nú stunda fimmtán doktorsnám
við skólann.“
Landbúnaðarháskóli Íslands
tók til starfa árið 2005 með sam-
einingu Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri, Garðyrkjuskóla ríkisins
á Reykjum og Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins, Keldnaholti. Í
Gjöfult land framleiðir gæðaafurðir
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
byrjun síðasta árs voru gerðar
ákveðnar breytingar á skipulagi
skólans og litu þrjár nýjar fagdeild-
ir dagsins ljós: Ræktun og fæða,
Náttúra og skógur og Skipulag og
hönnun og er kennt á Hvanneyri,
Keldum og á Reykjum.
Land orðið mikil auðlind
„Krafan er alltaf að aukast í fram-
leiðslu ferlinu og Ísland með
allar þessar auðlindir og orðstír í
útf lutningi býr að ótal tækifærum.
Ég sé fyrir mér að landbúnaður
muni vaxa mikið á næstu árum
hér enda er land orðið svo mikil
auðlind og við getum nýtt okkar
mikið betur. Við erum rík þjóð og
við tökum ýmsu sem gefnu. Þegar
okkur vantar vatn er einfaldlega
opnuð ný borhola á meðan aðrir
þurfa að kreista meira úr þeirri
sem er fyrir.
Hollenskir gróðurhúsabændur
sögðu mér til að mynda að þar væri
landið undir gróðurhúsið jafndýrt
og gróðurhúsið sjálft með öllum
græjunum,“ útskýrir Ragnheiður
sem segist sjá gríðarleg tækifæri í
ræktun hér á landi.
„Við tókum það saman að hér er
ræktað undir gleri á um tuttugu
hekturum en á meðan er talan í
Hollandi 10 þúsund hektarar.“
Ragnheiður segir sjálfvirkni vera
mikið að taka yfir og þannig fækki
störfum í landbúnaði um leið og
framleiðslan aukist. „Launakostn-
aður hér á landi er hár miðað við
önnur lönd svo ef við ætlum að vera
samkeppnishæf við innf lutning
þarf að horfa til þess. Það er blá-
kaldur veruleikinn.“
Ragnheiður segir samfélagið á
Hvanneyri einstakt.
„Við erum á votlendissvæði þar
sem ríkir alþjóðleg fuglavernd
en fáir vita af þessu. Þetta skapar
okkur mikla sérstöðu sem við
eigum eftir að nýta betur og vinna
áfram með Umhverf isstofnun.
Okkur langar að hægt sé að koma
og skoða fuglana á meðan verndun
þeirra er gætt. Hér er 300 manna
byggð, skóli og Landbúnaðarsafn.
Svo það er ýmislegt í gangi hér.
Ég held að f lestir keyri bara fram
hjá Hvanneyri án þess að beygja
hingað inn og fatta ekki að hér er
ýmislegt að skoða.“
Lambakjötið of ódýrt
Á Hvanneyri er boðið upp á stúd-
entagarða og búsetuúrræði af
ýmsum stærðum. „Hér er jafnframt
leikskóli og grunnskóli svo fjöl-
skyldufólk með yngri börn getur
varla fundið neitt betra.“
„Við höfum verið í góðu sam-
starfi við atvinnu- og nýsköpunar-
ráðuneytið og höfum meðal annars
unnið skýrslu um fæðuöryggi sem
mun leggja grunninn að mótun
fæðuöryggisstefnu fyrir Ísland sem
hingað til hefur ekki verið til. Við
höfum líka verið að taka út stöðu
sauðfjárbænda sem hefur verið
slæm. Að mínu mati greiðum við
alltof lítið fyrir lambakjötið og
bændur fá ekki upp í framleiðslu-
kostnaðinn,“ segir hún.
Ragnheiður segir ekki vanta
áhugann á bændastarfinu en erfitt
geti verið að byrja frá grunni.
„Það er eitt að taka við skuldlitlu
búi en annað að starta frá grunni.
En svo eru tækifærin í frumhrá-
efnisframleiðslu gríðarleg og mikil
nýsköpun í gangi. Í fæðuöryggis-
skýrslunni kom fram að um eitt
prósent korns til manneldis er
framleitt hér á landi en gæti verið
mikið meira,“ segir Ragnheiður og
bendir á tækifærin þar.
Skordýr og þörungar
„Svo ef maður horfir á nýju fyrir-
tækin í þörungaframleiðslu, en þar
höfum við sem skóli til dæmis enn
ekki haslað okkur völl. En þarna
þarf að mennta fólk og efla það svið
ef upp koma fleiri og f leiri fyrirtæki
í þörungaræktun. Svo finnst mér
skordýraræktun líka mjög spenn-
andi í fóðurhráefni og það er heil-
mikið um að vera í því á alþjóðlegu
sviði. Ef þú ert með hugmynd og ert
nógu sniðugur þá eru til peningar
og tækifærin eru endalaus,“ segir
Ragnheiður og bendir á nýsköpun
í ferðatengdum landbúnaði eins og
til dæmis Friðheima í Reykholti og
Garð í Eyjafirði.
Mikið er lagt upp úr aðstöðu
skólans enda segir hún engan
sækja í spennandi nám ef aðstaðan
er léleg. „Þú færð ekki unga fólkið
nema með fyrsta f lokks aðstöðu,
það eru gerðar kröfur þegar fólk
velur sér háskóla. Við erum að
reyna að standast þær,“ segir Ragn-
heiður og bendir á að á Hvanneyri
sé kúabú, reiðhöll fyrir um 80 hross
og sauðfjárbú.
„Íslenskur landbúnaður á bjarta
framtíð og mun vafalítið spila stórt
hlutverk í íslenskri matvælafram-
leiðslu fyrir innanlandsmarkað og
aukinn útf lutning. Áskoranir eru
margar en tækifærin fylgja þeim
og drög að landbúnaðarstefnu,
vinna við gerð loftslagsstefnu,
aukinn áhugi og almenn umræða
um landbúnað, umhverfis-, lofts-
lags- og skipulagsmál fylla okkur
öll bjartsýni, enda landið okkar
gjöfult á auðlindir og landið þekkt
fyrir hreinleika og gæðaafurðir,“
segir hún að lokum. n
Ragnheiður segir mikinn áhuga meðal unga fólksins á
bændastarfinu en erfitt sé að byrja á búskap frá grunni.
Samfélagið á Hvanneyri er einstakt þar sem eru stúd-
entagarðar, kúabú, stærðar reiðhöll og sauðfjárbú.
30 Helgin 29. maí 2021 LAUGARDAGUR