Fréttablaðið - 29.05.2021, Qupperneq 82
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir
síðan 1996
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Katrín Kristjánsdóttir
frá Geirakoti,
lést á hjúkrunarheimilinu Fossheimum
Selfossi, miðvikudaginn 26. maí.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Munda K. Aagestad
Roar Aagestad Halldóra S. Ásgeirsdóttir
Anna Gína Aagestad Guðmundur Árni Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir
okkar, tengdamóðir, amma,
langamma, langalangamma og
langalangalangamma,
Svanborg Ólafsdóttir
frá Litla Laugardal, Tálknafirði,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði 26. maí.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 3. júní kl. 13.00.
Baldur Jóhannsson
Reynir Baldursson Karitas Jóhannsdóttir
Jóhann Baldursson Kristín Reynisdóttir
Anna Björk Baldursdóttir Sigurjón Andersen
Birgitta Baldursdóttir Elías Ívarsson
Brynja Baldursdóttir Gunnar Óli Pétursson
Erla Baldursdóttir Gísli Vattnes Bryngeirsson
Ólafur Jósúa Baldursson Ramona Balaciu
og fjölskyldur þeirra.
Kæru ættingjar og vinir. Hjartans
þakkir fyrir þá samúð og hlýju sem
þið sýnduð okkur við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, stjúpföður, afa og langafa,
Sveins Ármanns Sigurðssonar
Birkigrund 21, Selfossi.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk gjörgæslu og
lungnadeildar Landspítala í Fossvogi fyrir kærleiksríka
umönnun og Karlakór Selfoss fyrir yndislegan söng
og stuðning við útförina.
Guðrún Jóna Guðbjartsdóttir
Bryndís Sveinsdóttir Hreinn Jónsson
Magnús Gísli Sveinsson Linda Björg Perludóttir
Kristín Sveinsdóttir Andrés G. Ólafsson
Guðbjartur Örn Einarsson Sóley Einarsdóttir
Bergljót Einarsdóttir Guðjón Birkisson
afabörn og langafabörn.
gun@frettabladid.is
„Bíddu aðeins, ég verð að fara út með
símann, hér er svo mikill hávaði,“ er það
fyrsta sem Halla Ingólfsdóttir, ferða
mógúll í Grímsey, segir þegar ég slæ á
þráðinn. Komin út á stétt útskýrir hún
að iðnaðarmenn séu að störfum í hús
inu hennar, Sveinsstöðum. „Það eru við
gerðir hér og verið að brjóta og bramla.
En svo verður allt mjög fínt.“
Halla rekur fyrirtækið Arctic Trip
í Grímsey og á Sveinsstöðum er hún
með gistihús, auk þess að bjóða upp á
ferðir og leiðsögn. „Sumarið lítur betur
út hvað ferðaþjónustuna snertir en
við þorðum að vona,“ segir hún. „Auð
vitað munar okkur um skemmtiferða
skipin – þau verða víst fá á ferðinni hér
við land í sumar. En góðu fréttirnar eru
þær að mun f leiri Íslendingar heim
sóttu Grímsey í fyrrasumar en áður
og það stefnir í fjölgun þeirra í sumar.
Margir sem komu í fyrra eru búnir að
bóka aftur. Þá komum við að því lúxus
vandamáli að það er orðið fullt hjá mér
í gistingu í júlí, ég veit ekki hvernig það
er hjá hinum, hér eru þrjú gistiheimili og
öll fremur lítil.“
Spurð hvort Grímseyingar geti notað
samkomuhúsið fyrir gesti svarar Halla:
„Ekki nema skólafólk eða slíka hópa. Ég
held að hinn almenni Íslendingur sem
er vanur fínum hótelum sé ekki tilbúinn
til að liggja á gólfi í félagsheimili, innan
um mann og annan. En það er prýðis
gott tjaldstæði hjá okkur, rétt við sund
laugina, og þar var settur upp grillskáli
í fyrra sem er til sóma fyrir þá sem að
honum stóðu.“
Kokkur, þerna og háseti
Halla kveðst hafa unnið á ferjunni
Sæfara síðustu tvo vetur. „Ég hef verið
kokkur, þerna og háseti um borð. Við
erum tvö sem skiptum þeim embættum
á milli okkar en ég er hætt í bili. Ætla að
vera hér í eyjunni í sumar og vonandi
fram eftir vetri, er komin með bókanir
fram í september og er svo bjartsýn að
vera að útbúa pakkaferðir fyrir næsta
vetur. Markhópurinn er meðal annars
atvinnuljósmyndarar sem langar að
koma og mynda í myrkrinu. Hér er líka
hentugt fyrir rithöfunda sem vilja klára
bókina sína að dvelja og alla sem kunna
að meta friðsæld.“
Íbúum í Grímsey hefur fækkað til
finnanlega á undanförnum árum. „Við
erum aðeins að jafna okkur á því og þó
við séum ósköp fá þá finnst mér hljóðið
í fólki aðeins hafa breyst aftur til hins
betra,“ segir Halla. „Það fæddist drengur
í vetur, Svafar Ingólfsson heitir hann. Svo
fundum við það þegar skólum og vinnu
stöðum var lokað í kófinu að margir
mundu eftir eyjunni og f lúðu hingað í
öryggið með tölvurnar.“
Styttist í sólstöðuhátíð
Strandveiðarnar eru byrjaðar en veiðin
hefur verið treg í kuldanum, að sögn
Höllu. Nú er hins vegar brostið á með
blíðu. Hún reiknar með að sjómenn af
fastalandinu sem vanir eru að róa frá
Grímsey láti sjá sig á næstu dögum með
bátana sína og segir þá lífga upp á plássið.
Krían er mætt og búið er að síga í
björgin eftir langvíueggjum. „Það er allt
af spenna kringum þann viðburð,“ segir
Halla. „Við stefnum svo að því að halda
sumarsólstöðuhátíð 18. til 20. júní og þá
verður líf og fjör!“ n
Sömu gestir bókaðir aftur í ár
Þótt kuldatíð hafi litað vorið í
Grímsey, eins og víðar, er fugla
lífið með eðlilegum hætti og
ferðasumarið lítur betur út en
búast mátti við, að sögn Höllu
Ingólfsdóttur. Hún fagnar því.
Halla segir ferðasumarið lofa góðu í Grímsey þó svo farþegaskipum fækki, en þau skiptu tugum 2019. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Álkan og
lundinn lifa
í sátt og
samlyndi
á syllum
Grímseyjar.
Ástkær faðir minn, sambýlismaður,
bróðir, afi og tengdafaðir,
Jón Gunnarsson
flugvirki og
framkvæmdastjóri,
lést þriðjudaginn 18. maí
á líknardeild Landspítalans.
Vilborg Edda Lárusdóttir
Gunnar Jónsson
Anna Lilja Karlsdóttir
Stefanía Ösp Guðmundsdóttir
Unnur Karen Karlsdóttir
Anna Lilja Gunnarsdóttir
Björn Gunnarsson
Guðleif Gunnarsdóttir
makar og langafabörn.
TÍMAMÓT 29. maí 2021 LAUGARDAGUR