Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.05.2021, Qupperneq 90

Fréttablaðið - 29.05.2021, Qupperneq 90
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS ÍSLENSK HÖNNUN Útskriftar- tilboð SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS ÍSLENSK HÖNNUN Útskriftar- tilboð njall@frettabladid.is Lamborghini hefur staðfest að von sé á fyrsta raf bíl merkisins árið 2024 um leið og merkið staðfesti að allir bílar þess yrðu að einhverju leyti rafdrifnir á sama tímapunkti. Stjórnarformaður Lamborghini, Stefan Winklemann, tilkynnti þessa nýju stefnu fyrirtækisins sem kall- ast „Direzione Cor Tauri“ og sagði hana nauðsynlega á tímum mikilla breytinga. Skiptist þessi áætlun Lamborg- hini í þrjá hluta. Sú fyrsta felur í sér að kveðja brunahreyfilinn með því að frumsýna tvö módel með V12-vél- um á þessu og næsta ári. Er litið á það sem virðingarvott við arfleifð merk- isins og mjög líklegt er að um nýjan Aventador sé að ræða. Árið 2023 mun merkið færa sig yfir á tvinn útfærslur, en fyrsti tvinnbíllinn er þegar kom- inn í formi Sian-ofurbílsins. Búist er við að árið 2024 verði allir bílar merkisins komnir í tvinnútfærslum og því megum við búast við tvinnút- gáfu Urus-sportjeppans líka. Að lokum er von á fyrsta rafdrifna Lamborghini-bílnum 2024 og þótt hann hafi ekki fengið nafn enn þá er þó staðfest að um alveg nýjan bíl sé að ræða. Verður hann með kol- trefjum í grind og yfirbyggingu til að vega upp á móti aukinni þyngd rafhlöðunnar, og mun hann keppa við bíla eins og NIO EP9 og Lotus Evija. n Rafdrifinn Lamborghini árið 2024 Sian er fyrsti tvinnbíll merkisins en allir bílar þess verða tvinnbílar árið 2024. njall@frettabladid.is Að mati Ford-bílaframleiðandans þurfa 40 prósent af bílaframleiðslu þeirra í Bandaríkjunum að verða rafvædd fyrir árið 2030. Til þess að það markmið náist þurfa f leiri gerðir Ford-bifreiða að rafvæðast og samkvæmt Twitter-reikningi Mike Levine, sem er markaðsstjóri Ford í Bandaríkjunum, er von á ýmsu spennandi frá Ford. Meðal þess sem birtist á Twitter-reikningi hans var mynd af útlínum bíls sem líkist mjög Bronco sem að sögn Levine verður rafvæddur. Meira að segja sést að bíllinn er með varadekki á afturhlera svo að tilvísunin gæti varla verið augljósari. Hins vegar staðfesti Levine að næsti Ford Explorer yrði rafbíll en Ford selur um 200.000 slíka árlega. Auk þess er Ford að þróa bæði nýjan pall- bíl og sendibíl í rafútgáfum. n Rafvæddur Ford Bronco í deiglunni Myndin af Twitter-reikningi Levine sýnir útlínur rafvædds jeppa með varadekki svo líkast til er rafdrifinn Bronco í pípunum. Hyundai hefur tilkynnt að von sé á sjö sæta rafbíl frá Ionic árið 2024 sem kallast mun einfaldlega Ionic 7. Hann verður eins og gefur að skilja stærri bíll en Ionic 5 og mun keppa við bíla eins og Tesla Model X. njall@frettabladid.is Eins og allir væntanlegir raf bílar Hyundai Group verður Ionic 7 byggður á skalanlegum E-GMP raf bílaundirvagninum. Það þýðir að hann notar sama vélbúnað og Ionic 5 sem getur haft mest tvo rafmótora sem samtals skila 301 hestaf li með 605 Nm togi. Ionic 7 verður einnig með sama 800 volta raf kerfi og annaðhvort 58 eða 73 kWst raf hlöðum. Einn af helstu kostum þess er snögg hraðhleðsla en með 350 kW hraðhleðslustöð tekur aðeins 17 mínútur að ná 80 prósenta hleðslu. Tengdur við venjulega 50 kW hraðhleðslu verður bíllinn full- hlaðinn á innan við klukkustund. Búast má við svipaðri innréttingu og mælaborði og í Ionic 5, með 12,3 tommu upplýsingaskjá. Á undan Ionic 7 munum við fyrst sjá Ionic 6 koma fram á sjónarsviðið. Hann verður byggður á Prophecy tilrauna- bílnum og er væntanlegur á næsta ári. Herma fregnir innanbúðarfólks hjá Hyundai að hann verði mjög líkur tilraunabílnum þegar hann kemur á markað. n Hyundai tilkynnir að Ionic 7 komi 2024 Eina myndin sem birt hefur verið af hinum sjö sæta Ionic 7 sýnir útlínur framenda hans ásamt upplýsingum um hvenær bílarnir koma á markað. Telja má góðar líkur á því að Renault muni endurvekja Renault 4 í formi rafbíls á næstu misserum. Stutt er síðan merkið tilkynnti um að von væri á Renault 5 sem rafbíl og framkvæmdastjóri Renault, Luca de Meo, hefur látið hafa það eftir sér að annað „númer“ úr fortíðinni verði endurvakið. njall@frettabladid.is Fram hefur komið að Fjarkinn og Fimman verði hluti sjö nýrra raf- bíla sem koma frá merkinu fyrir 2025. Verða þeir byggðir á sama undirvagni sem er CMF-B sem einnig er notaður undir Renault Zoe. Fyrir fáeinum dögum birtust svo tölvugerðar einkaleyfismyndir sem sýna bíl sem byggir greinilega útlit sitt á gamla Renault 4 bílnum. Sá bíll átti sér langa sögu en hann kom fyrst á markað árið 1961 og var framleiddur í átta milljónum eintaka í 31 ár tiltölulega lítið breyttur. Myndirnar sýna kassa- laga bíl með áherslum sem minna sterklega á gamla bílinn, eins og grill sem nær utan um aðalljósin og afturhallandi C-bita. Bíllinn er greinilega með jepplingslagi, eins og verklegum stuðurum og hlífum kringum hjólbogana ásamt hærri veghæð. Um eiginlegan jeppling er þó ekki að ræða þar sem hann verður aðeins framhjóladrifinn. Margir aðrir framleiðendur hafa sótt í fræg eldri módel að undanförnu svo hægt er að tala um stefnu. Nægir að nefna til dæmis Honda og Opel í þeim efnum. n Ætlar Renault að endurvekja Fjarkann? Renault 4 var framleiddur í rúma þrjá ára- tugi í meira en átta milljónum eintaka. Nýlega komu fram þessar tölvugerðu einkaleyfis- myndir á útliti nýs Renault sem svipar mjög til Fjarkans. njall@frettabladid.is Náðst hafa fyrstu njósnamyndir af hinum væntanlega Nissan 400Z- sportbíl við prófanir í Bandaríkjun- um en hann verður kynntur seinna á árinu. Þó að bíllinn á myndinni sé í miklum felubúningi má þó sjá að bíllinn fylgir talsvert Z Proto til- raunabílnum í útliti. Hann sækir framendann til Nissan 240Z frá 1969 sem var vinsæll í Bandaríkjunum. Afturljósin sækja líka í 240Z- bílinn, eru innrömmuð og ná alla breidd stuðarans. Margt í bílnum kemur líka frá 370 Z-bílnum, eins og hurðahandföng og afstaða glugga- bita sem dæmi, en hann verður 120 mm lengri en áður. Lítið hefur verið gefið upp um hvað verði ofan í vélarsalnum annað en að um er að ræða endurhannaða útgáfu af V6- vélinni með tveimur forþjöppum. Búast má við afturdrifi með sex gíra beinskiptingu. Því miður lítur ekki út fyrir að bíllinn verði seldur í Evr- ópu því að mengunarreglur koma í veg fyrir sölu slíkra bíla. n Fyrstu njósnamyndir af 400Z-sportbílnum Sportbíllinn náðist á mynd í Banda- ríkjunum þar sem hann verður í sölu. 42 Bílar 29. maí 2021 LAUGARDAGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.