Fréttablaðið - 29.05.2021, Síða 92
TÓNLIST
Korda Samfónía
Korda Samfónía flutti eigin
tónlist undir stjórn Sigrúnar
Sævarsdóttur-Griffiths.
Eldborg í Hörpu
föstudaginn 21. maí
Jónas Sen
Hvernig nær maður sambandi við
geimverur? Sennilega með tón-
listarmiðlun. Best er að senda þeim
lagalista og bjóða þeim í partí til
Jarðarinnar. Þetta var a.m.k. gert
árið 1977. Síðla sumars var tveimur
ómönnuðum geimförum skotið á
loft og hvort um sig innihélt gull-
plötu með lagalistum. Tónlistin
var fjölbreytt, sekkjapípuleikur,
panf lautur, áströlsk frumbyggja-
tónlist, Bach, Mozart, Chuck Berry
og margt f leira. Markmiðið var að
fá geimverur, sem myndu rekast á
förin, til að átta sig á menningarstigi
mannkyns með því að heyra tón-
list Jarðar. Það gæti orðið byrjunin
á „fagurri vináttu“ eins og það er
kallað í kvikmyndinni Casablanca.
Alls konar fólk spilaði og söng
Ég hugsa að skapandi tónlistar-
miðlun, samstarf 35 einstaklinga
sem tróðu upp í fyrsta skipti í
Hörpu á föstudagskvöldið, hafi
líka verið upphaf fagurrar vináttu.
Þarna var býsna ólíkur hópur hljóð-
færaleikara úr Sinfóníuhljómsveit
Íslands, tónlistarnemendur, spil-
arar úr poppgeiranum, sem og
skjólstæðingar Hugarafls og Starfs-
endurhæfingarstöðva Vesturlands,
Hafnarfjarðar og Suðurnesja. Til-
gangurinn var að virkja fólkið til að
semja sína eigin tónlist saman, og
frumflytja hana. Ekki skipti máli
þótt einhverjir kynnu alls ekki á
hljóðfæri, það var alltaf eitthvað
hægt að finna til að gera; söngur,
bakraddir, hristur, ásláttarhljóð-
færi, og svo framvegis.
Hljómsveitin kallaði sig Korda
Samfóníu og laut stjórn Sigrúnar
Sævarsdóttur-Griffiths. Tónleik-
arnir voru um klukkustundar langir
og voru skemmtilegir. Nokkur löng
verk voru flutt sem voru margbrotin
og miðluðu mismunandi tilfinn-
ingum. Þau höfðu öll verið samin
af hópnum á aðeins tíu dögum.
Óhjákvæmilega var áferðin dálítið
hrá, söngurinn óhef laður, sam-
hljómurinn grófur. En það var bara
ekki málið. Virkni þeirra sem kljást
við kulnun og ýmiss konar krísur vó
þyngst hér, og útkoman var ótrúlega
fögur.
Popp og framúrstefna
Fáein smáverk voru einnig á dag-
skránni, sem voru tilraunakennd
og skörtuðu mörgum góðum hug-
myndum. Tónleikarnir buðu því upp
á bæði hefðbundna popptónlist sem
byggðist mjög á endurtekningum, en
líka skemmtilega framúrstefnu, og
allt þar á milli. Best var leik- og söng-
gleðin sem var smitandi, og æ meira
eftir því sem á leið.
Skapandi tónlistarmiðlun hefur
verið hér við lýði um allnokkurt
skeið. Það má rekja til námskeiðs
sem Peter Renshaw og Paul Griff-
iths frá Guildhall listaháskólanum
í London héldu á vegum Tónlistar-
skólans í Reykjavík. Á námskeið-
unum fengu þeir nemendur til að
semja nýja tónlist á staðnum og
áheyrendur til að leika á einföld
slagverkshljóðfæri eða syngja.
Markmiðið var að losa um sköpun-
armátt nemendanna, og að tengja
saman huga og hönd. Námskeiðið
heppnaðist svo vel að það varð að
föstum lið og nánu samstarfi á milli
skólanna. Vonandi mun Korda Sam-
fónía líka lifa um ókomna tíð. n
NIÐURSTAÐA: Óvanalegir tón-
leikar sem voru skemmtilegir.
Upphaf fagurrar vináttu í Hörpu
Korda Samfónía sést hér á æfingu, en gagnrýnandi Fréttablaðsins hrósar sveitinni. MYND/AÐSEND
Virkni þeirra sem
kljást við kulnun og
ýmiss konar krísur vó
þyngst hér, og útkom-
an var ótrúlega fögur.
kolbrunb@frettabladid.is
Í Listasafninu á Akureyri opna í dag,
laugardaginn 29. maí, tvær nýjar
sýningar. Annars vegar sýning á
verkum úr safneign Listasafnsins,
Nýleg aðföng, og hins vegar samsýn-
ing norðlenskra myndlistarmanna,
Takmarkanir. Sýningarstjóri beggja
sýninga er Hlynur Hallsson.
Þetta er í fjórða sinn sem tvíær-
ingur, sýning á verkum norðlenskra
listamanna, er haldinn í Listasafn-
inu á Akureyri. Að þessu sinni var
unnið út frá þemanu takmarkanir.
Sýningunni er ætlað að gefa innsýn
í þá fjölbreyttu f lóru myndlistar
sem tengist Norðurlandi og vekja
umræður um stöðu norðlenskra
listamanna og myndlistar almennt.
Listamenn sem eiga verk á sýn-
ingunni Takmarkanir eru: Aðal-
heiður S. Eysteinsdóttir, Auður Lóa
Guðnadóttir, Árni Jónsson, Bergþór
Morthens, Brák Jónsdóttir, Egill Logi
Jónasson, Guðmundur Ármann
Sigurjónsson, Hekla Björt Helga-
dóttir, Hrefna Harðardóttir, Íris Ólöf
Sigurjónsdóttir, Jonna – Jónborg
Sigurðardóttir, Joris Rademaker,
Jón Laxdal Halldórsson, María Sig-
ríður Jónsdóttir, Sigurður Mar Hall-
dórsson, Stefán Boulter og Tanja
Stefanovic.
Listamenn sem eiga verk á sýn-
ingunni Nýleg aðföng eru: Elín Pjet.
Bjarnason, Friðgeir Helgason, Jessica
Tawczynski, Louisa Matthíasdóttir,
Magnús Helgason, Óli G. Jóhanns-
son og Tomas Colbengtson. n
Nýjar myndlistarsýningar á Akureyri
Verk eftir Valgerði í Sal Íslenskrar grafíkur.
kolbrunb@frettabladid.is
Um síðustu helgi var sýning Val-
gerðar Hauksdóttur, Síbreytileiki,
opnuð í Sal Íslenskrar grafíkur,
Hafnarhúsi við Tryggvagötu. Sýn-
ingin stendur til 6. júní.
Valgerður sýnir grafíkverk frá
síðustu tíu árum og fram á daginn
í dag. Flest verkanna sem eru á
sýningunni hafa ekki verið sýnd á
Íslandi áður.
Viðfangsefni verka Valgerðar í
gegnum árin eru sótt í ólík áhuga-
svið sem þó tengjast; náttúruvís-
indi, tónlist, tímann og tilveruna. n
Síbreytileiki í Hafnarhúsinu
Sumarnótt eftir Bergþór Morthens
verður á sýningunni Takmarkanir.
Minningarsjóður um Jean-Pierre Jacquillat, fyrrum
aðal stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands, mun á
þessu ári veita efnilegum tónlistarmanni styrk til
framhaldsnáms erlendis á skólaárinu 2021-2022.
Veittur er einn styrkur að upphæð 1.500.000 kr.
Umsóknir, með upplýsingum um námsferil
og framtíðaráform, sendist til formanns
sjóðsins á netfangið: jpj@i8.is fyrir 20. júní nk.
Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár
frumsaminna verka eða önnur gögn sem sýna
hæfni umsækjenda.
2019 Geirþrúður A. Guðmundsdóttir- selló
2018 Hrafnhildur M. Guðmundsdóttir-selló
2017 Sölvi Kolbeinsson-saxófón
2016 Baldvin Oddsson-trompet
2015 Rannveig Marta Sarc-fiðla
2014 Sólveig Thoroddsen-harpa
2013 Hulda Jónsdóttir-fiðla
2012 Benedikt Kristjánsson-söngur
2011 Matthías I. Sigurðsson-klarinett
2010 Gunnhildur Daðadóttir-fiðla
2009 Helga Þóra Björgvinsdóttir-fiðla
2008 Jóhann Nardeau-trompet
2007 Melkorka Ólafsdóttir-flauta
2006 Elfa Rún Kristinsdóttir-fiðla
2005 Ögmundur Þór Jóhannesson-gítar
2004 Víkingur Heiðar Ólafsson-píanó
2003 Birna Helgadóttir-píanó
2002 Lára Bryndís Eggertsdóttir-orgel
2001 Pálína Árnadóttir-fiðla
2000 Hrafnkell Orri Egilsson-selló
1999 Una Sveinbjarnardóttir-fiðla
1998 Árni Heimir Ingólfsson-píanó
1997 Þórður Magnússon-tónsmíðar
1996 Ingibjörg Guðjónsdóttir-söngur
1995 Sigurbjörn Bernharðsson-fiðla
1994 Guðni A. Emilsson-hljómsveitarstjórn
1993 Tómas Tómasson-söngur
1992 Þóra Einarsdóttir-söngur
Ím
y
n
d
u
n
a
ra
fl
/
M
-J
PJ
F Y R R U M S T Y R K Þ E G A R
www.minningarsjodur-jpj.is
MINNINGAR
SJÓÐUR
JPJ
Tilkynnt verður samtímis um styrkhafa fyrir 2020 og 2021.
Styrkur til
tónlistarnáms
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM
með og án rafmagns lyftibúnaði
Komið og
skoðið úrvalið
MENNING 29. maí 2021 LAUGARDAGUR