Fréttablaðið - 29.05.2021, Qupperneq 98
Textarnir eru skrifaðir
út frá minni reynslu og
kannski dálítið átakan-
legir, allavega var oft
erfitt að flytja þá.
Brynhildur Karlsdóttir.
stod2.is
Brynhildur og Friðrik, sem
skipa hljómsveitina Kvikindi,
tileinka lagið Okei og mynd-
bandið við það minningu
Elísabetar Segler Guðbjörns-
dóttur, vinkonu Brynhildar,
sem svipti sig lífi í kjölfar þess
að nauðgunarkæra hennar
var látin niður falla.
steingerdur@frettabladid.is
Í síðustu viku kom út lagið Okei
með hljómsveitinni Kvikindi og á
fimmtudeginum var myndband
við það frumsýnt í Bíó Paradís.
Hljómsveitina skipa Brynhildur
Karlsdóttir og Friðrik Margrétar-
Guðmundsson. Brynhildur vakti
fyrst athygli sem söngkona hljóm-
sveitarinnar Hormóna, sem sigraði
Músíktilraunir 2016.
„Svo er ég útskrifaður sviðshöf-
undur og hef mikið starfað innan
leikhússins sem aðstoðarleikstjóri,
leikstjóri, danshöfundur og f leira.
Ég á djúpar rætur í leikhúsinu þar
sem pabbi minn er leikari með
meiru svo ég ólst mikið upp í leik-
húsi, í stúdíóum og á leiksýningum
sem ég tel hafa mótað mig mikið.
Þessa dagana er ég mest að einbeita
mér að Kvikindi, að semja, gefa út
lög og stækka þann heim sem Kvik-
indi er,“ útskýrir Brynhildur.
„Ég útskrifaðist úr tónsmíðum
frá LHÍ árið 2017 og hef síðan þá
unnið sem tónskáld og útvarps-
maður á Rás 1. Ólíkt Brynhildi kem
ég ekki úr listafjölskyldu og það
þykir mörgum hin mesta furða að
ég hafi valið mér þann starfsvett-
vang,“ segir Friðrik, sem hefur spilað
á píanó frá unga aldri. Hann fór svo
í tónsmíðar í LHÍ. „Þar fann ég mig
mest í að semja tónlist fyrir leikhús
og það er þannig sem ég og Bryn-
hildur kynntumst. Eftir útskrift
samdi ég nokkur verk fyrir kóra
og hljóðfærahópa meðfram því að
útsetja fyrir aðra.“
Eru með skýr markmið
Brynhildur byrjaði einnig sem barn
að læra á píanó.
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga
á tónlist og elska að kynnast nýrri
tónlist og hlusta á mismunandi
tónlist en áhuginn á því að semja
og koma fram byrjaði þegar ég var
um tvítugt. Þá stofnuðu ég og vinir
mínir pönkhljómsveit og kepptum
í Músíktilraunum. Eiginlega var
þetta mönun á okkur sjálf að hætta
að tala um hlutina og bara fram-
kvæma. Ekkert okkar hafði mikla
reynslu á það hljóðfæri sem við
spiluðum á. Núna er öll mín athygli
beind að Kvikindi. Mér finnst við
Frikki vera með mjög skýr markmið
og stefnu. Okkur langar að verða rík
og fræg,“ segir hún og hlær.
Engar reglur
Nú komið þið úr ólíkum tónlistar-
legum bakgrunni, hvernig gengur
að tvinna þetta saman hjá ykkur?
„Það gengur bara ágætlega, held
ég. Við erum búin að semja fullt
af lögum sem eru langt komin og
hvert er öðru ólíkara. Stundum er
best að reyna að skilja eftir vænt-
ingar um hvernig lög „eigi að verða“
og leyfa sér bara að gera hvað sem
er. Það eru engar reglur og okkur
finnst það langskemmtilegast,“
svarar Friðrik.
Textar Hormóna vöktu athygli,
þar sem Brynhildur var óhrædd við
að syngja um átakanleg málefni.
„Í Hormónum skrifaði ég texta
um afleiðingar kynferðisof beldis,
um ofbeldissamband og um að vera
kynsvelt kona. Textarnir eru skrif-
aðir út frá minni reynslu og kannski
dálítið átakanlegir, allavega var oft
erfitt að flytja þá.“
Þurfum öll stuðning
Brynhildur segir að lagið Okei fjalli
um hennar eigin upplifun á því að
leita sér hjálpar.
„Að finna fyrir pressu að vera ókei
þegar ég er það ekki. Ég hef gengið
í gegnum dimm tímabil í mínu lífi
þar sem ég hefði þurft einhvern
stuðning og utanumhald sem mér
fannst ég ekki fá. En öllum fannst
ég vera ókei, ég leit út fyrir að vera
hress og það er erfitt að viðurkenna
að einhver sem maður elskar sé á
vondum stað, hvað þá að viður-
kenna það fyrir sjálfum sér. Við
erum öll ekki alveg ókei, ef ókei er
viðmiðið að vera með allt á hreinu,
og það er ekkert vandræðalegt eða
eitthvað sem þarf að hvísla og ófull-
komleiki er fallegur,“ útskýrir hún.
Friðrik segir þau hafa verið
nokkuð blaut á bak við eyrun þegar
kemur að kvikmyndagerð þegar þau
hófu gerð myndbandsins.
„En sem betur fer vorum við með
rosalega gott listrænt teymi, Þorra
Líndal kvikmyndagerðarmann og
Katrínu Guðbjartsdóttur, sem sá um
búninga og förðun. Fjölnir Gísla-
son sá um leikstjórn. Við stöndum í
þakkarskuld við þau öll, þau lögðu
blóð, svita og tár í þetta myndband
og það sést á útkomunni.“
Erfiðast að missa Elísabetu
Brynhildur tileinkar lagið og mynd-
bandið vinkonu sinni, Elísabetu
Segler Guðbjörnsdóttur. Hún svipti
sig lífi eftir að hafa ítrekað verið
vísað frá geðdeild, í kjölfar þess að
kæra hennar fyrir nauðgun var látin
niður falla.
„Elísabet var fallegasta og einstak-
asta manneskja sem ég hef kynnst.
Við kynntumst á fyrsta árinu okkar
í MH og vorum óaðskiljanlegar eftir
það. Við áttum stóran þátt í að móta
hvor aðra. Það að missa hana er það
allra erfiðasta sem ég hef gengið í
gegnum. Við að missa hana missti
Ófullkomleikinn er fallegur
Brynhildur og
Friðrik, sem
stofnuðu
Kvikindi 2019,
fengu aðstoð
vina sinna til
að velja nafn á
bandið. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ERNIR
ég líka stóran part af sjálfri mér, af
minni sögu og það sem gerir mig að
mér,“ segir Brynhildur.
Brynhildur segist hafa verið ótrú-
lega týnd eftir að hafa misst Elísa-
betu.
„Ég vissi ekkert hvert ég ætti að
leita eða hvað ég ætti að gera við
mig. Þegar maður elskar einhvern
svona mikið held ég að maður
ósjálfrátt líti fram hjá vanlíðan
manneskjunnar, allavega finnst
mér ég hafa gert það þegar ég lít til
baka. “
Henni finnst margir hafa brugðist
Elísabetu.
„Það sem ég hugsa mest um er að
hún kærði nauðgun og málið var
fellt niður. Það var virkilega sárs-
aukafullt og ég held að við höfum
báðar misst trúna á kerfið og rétt-
lætið eftir það. Mér finnst ég ekki
geta tjáð mig of mikið um þá hjálp
sem hún fékk eða ekki fékk, en mín
upplifun er sú að enginn hafi raun-
verulega skilið hana og hennar
vanda,“ útskýrir Brynhildur.
Hægt er að hlusta lagið Okei á
Spot ify. Myndbandið er komið á
YouTube. ■
Nánar á frettabladid.is
LÍFIÐ 29. maí 2021 LAUGARDAGUR