Fréttablaðið - 29.05.2021, Síða 100

Fréttablaðið - 29.05.2021, Síða 100
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is n Lífið í vikunni 23.05.21 29.05.21 Laddi listmálari snýr aftur Laddi var spenntur í vikunni þegar hann opnaði nýja málverkasýningu eftir tveggja ára hlé. Verkin, sem prýða veggina í Smiðjunni Galleríi við Ármúla 36, dundaði hann sér við á meðan hann beið eftir að heims- faraldurinn gengi yfir. Emmsjé Gauti í Eyjum Aldamótatónleikarnir, skipaðir þeim Birgittu Haukdal, Hreimi Erni, Magna, Einari Ágústi og Gunnari Ólafssyni, munu skemmta á Þjóð- hátíð. Emmsjé Gauti mætir einnig spenntur til leiks eftir að hafa þurft að sitja hjá í fyrra þegar faraldurinn gerði út af við hátíðina. Fjögurra stjörnu álfur Heimildarmyndin Hálfur álfur fær nú loksins að njóta sín í Bíó Paradís í friði fyrir Covid. Myndin hverf- ist um ömmu og afa leikstjórans, Trausta og Huldu, sem syngja og kveða lífinu einstakan óð. Óhætt er að mæla með myndinni sem Frétta- blaðið gefur Mario stekkur á striga Myndlistarmaðurinn Juan lífgaði upp á Hofsvallagötuna með grind- verki prýddu íslenskri staðfæringu á tölvuleiknum Super Mario Bros. Almenn ánægja með götulista- verkið er slík að hann býður það nú til sölu á striga og pappír. Jón Gunnar Geirdal snýr aftur í djúsa- og samlokubransann með opnun veitingastaðarins Djúsí í Borgartúni þar sem hann rekur fyrir flatbökustað- inn Blackbox. Djúsinn mun einnig renna inn á stöðvar N1 enda má merkja aukinn áhuga olíufélaganna á slíkum vökva. thorarinn@frettabladid.is Þegar djúsar og samlokur eru ann- ars vegar er ekki komið að tómum kofanum hjá Jóni Gunnari Geirdal sem ruddi slíkum veitingum braut á Íslandi þegar hann stofnaði Lemon fyrir átta árum. Eftir að hann seldi hlut sinn í Lemon fyrir tveimur árum sneri hann sér að súrdeigspitsum undir merkjum Blackbox en snýr nú aftur á kunnuglegar slóðir með safa- og samlokustaðnum Djúsí sem verður opnaður við hlið Blackbox í Borgar- túni um miðjan júní. „Það er greinileg þörf fyrir djús og samlokur í Borgartúninu og við hjá Blackbox vildum svara því kalli með því að útvíkka þá heildarhugmynd enn frekar með þessari fersku og safaríku viðbót,“ segir Jón Gunnar og auðheyrt að hann stendur enn undir nafnbótinni frasakóngur Íslands. „Og nú er komið að því að flytja Blackbox erfðaefnið út í sam- lokur og djúsa með þessum nýja stað, Djúsí by Blackbox.“ Sama erfðaefnið Jón Gunnar segir Blackbox flatbök- urnar hafa verið í stöðugri þróun með áherslu á bragðgott súrdeig. „Við höfum til dæmis stækkað vöru- línu okkar í Krónunni jafnt og þétt en frá upphafi hefur okkur langað að fara lengra með vörumerkið og Djúsí er þannig hluti af stærra verk- efni og kemur inn á þennan markað með háleit markmið um að gera sér- lega ljúffengar samlokur og geggjaða djúsa.“ Jón Gunnar bætir við að hann búi að yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu af djúsa- og samlokugeir- anum eftir Lemon-árin. „Við þetta bætist svo botnlaus þekking sælker- ans og félaga míns, Karls Viggós Vig- fússonar, sem kom sterkur inn þegar við vorum að þróa Djúsí.“ Máli sínu til stuðnings vindur Jón Gunnar sér síðan í upptalningu á fyrri afrekum Viggós, sem er jafn- vígur á súkkulaði og ís. Annars vegar sem einn stofnenda Omnom og Skúbb hins vegar. „Síðan stofnaði hann Blackbox með mér og næst á sælkera-masterclass-dagskránni eru djúsar og samlokur. Þetta verður öskrandi ferskur bast- arður sprottinn upp úr nákvæmlega sömu hugmyndafræði og Blackbox en þótt DNA-ið sé það sama verður þarna skýr aðgreining og önnur ein- kenni sem fólk mun upplifa.“ Djús og olía Jón Gunnar ætlar ekki að binda Djúsí við Borgartúnið og fram undan er útrás víða um land í sam- starfi við olíufélagið N1. „N1 ætlar að opna Djúsí um allt land á sínum helstu stöðvum,“ segir Jón Gunnar. Jón Viðar Stefánsson, rekstrar- stjóri þjónustustöðva N1, segir fyrirtækið stefna að því að opna Djúsí-staði víða um land á næstu misserum en fyrstu tveir muni opna á landsbyggðinni í sumar. Allt stefn- ir því í samkeppni olíufélaganna á djúsmarkaði þar sem hugmyndir eru uppi um að opna Lemon-staði á Olísstöðvum. „Eftir að hafa tekið þátt í þess- ari þróun frá upphafi með reglu- legu smakki erum við komin með frábæra vörulínu sem á það svo sannarlega skilið að fara víða,“ segir Jón Viðar og bætir við að samlokur og djúsar falli vel að þeirri stefnu fyrirtækisins að auka fjölbreytileika hollra og ferskra veitinga á stöðvum N1. „Við erum sannfærðir um að landinn muni fagna þessari viðbót í veitingaflóruna og getum ekki beðið eftir að leyfa öllum að smakka,“ segir Jón Gunnar. n Djúsnum dælt í Borgartúni Félagarnir Jón Gunnar Geirdal og Karl Viggó Vigfússon hugsuðu innan svarta kassans þegar þeir smökkuðu sig áfram og þróuðu Djúsí sem þeir ætla að opna í húsnæði Blackbox í Borgartúni um miðjan næsta mánuð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Við erum sannfærðir um að landinn muni fagna þessari viðbót í veitingaflóruna og getum ekki beðið eftir að leyfa öllum að smakka. Jón Gunnar. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Sumarið er komið í DORMA Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði STYTTU ÞÉR LEIÐ GEGNUM BÆKLINGINN OKKAR Sófar 2-9 | Svefnsófar 10–11 | Stólar 12–13 | RÚM 14–23 | Mjúkvara og dúnn 24–25 | Smávörur 26–33 SUMAR TILBOÐIN 2021 www.dorma.is VEFVERSLUN ALLTAF OPIN ÞÚ FINNUR SUMARTILBOÐ DORMA OG NÝJAN BÆKLING Á DORMA.IS www.dorma.is V E F V E R S LU N ALLTAF OPIN CANNES hægindastóll með skemli Vandaður, glæsilegur og þægilegur hægindastóll með þykku leðri á slitflötum á sterkum snúningsfæti. Bakhæð: 73 cm. Sethæð: 47 cm. Stærð: 87x75 H: 104 cm. Fullt verð: 159.900 kr. Aðeins 135.992 kr. 15% AFSLÁTTUR SUMAR TILBOÐ 52 Lífið 29. maí 2021 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.