Fréttablaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 100
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
n Lífið í
vikunni
23.05.21
29.05.21
Laddi listmálari snýr aftur
Laddi var spenntur í vikunni þegar
hann opnaði nýja málverkasýningu
eftir tveggja ára hlé. Verkin, sem
prýða veggina í Smiðjunni Galleríi
við Ármúla 36, dundaði hann sér við
á meðan hann beið eftir að heims-
faraldurinn gengi yfir.
Emmsjé Gauti í Eyjum
Aldamótatónleikarnir, skipaðir
þeim Birgittu Haukdal, Hreimi Erni,
Magna, Einari Ágústi og Gunnari
Ólafssyni, munu skemmta á Þjóð-
hátíð. Emmsjé Gauti mætir einnig
spenntur til leiks eftir að hafa þurft
að sitja hjá í fyrra þegar faraldurinn
gerði út af við hátíðina.
Fjögurra stjörnu álfur
Heimildarmyndin Hálfur álfur fær
nú loksins að njóta sín í Bíó Paradís
í friði fyrir Covid. Myndin hverf-
ist um ömmu og afa leikstjórans,
Trausta og Huldu, sem syngja og
kveða lífinu einstakan óð. Óhætt er
að mæla með myndinni sem Frétta-
blaðið gefur
Mario stekkur á striga
Myndlistarmaðurinn Juan lífgaði
upp á Hofsvallagötuna með grind-
verki prýddu íslenskri staðfæringu
á tölvuleiknum Super Mario Bros.
Almenn ánægja með götulista-
verkið er slík að hann býður það nú
til sölu á striga og pappír.
Jón Gunnar Geirdal snýr aftur
í djúsa- og samlokubransann
með opnun veitingastaðarins
Djúsí í Borgartúni þar sem
hann rekur fyrir flatbökustað-
inn Blackbox. Djúsinn mun
einnig renna inn á stöðvar N1
enda má merkja aukinn áhuga
olíufélaganna á slíkum vökva.
thorarinn@frettabladid.is
Þegar djúsar og samlokur eru ann-
ars vegar er ekki komið að tómum
kofanum hjá Jóni Gunnari Geirdal
sem ruddi slíkum veitingum braut á
Íslandi þegar hann stofnaði Lemon
fyrir átta árum.
Eftir að hann seldi hlut sinn í
Lemon fyrir tveimur árum sneri
hann sér að súrdeigspitsum undir
merkjum Blackbox en snýr nú aftur
á kunnuglegar slóðir með safa- og
samlokustaðnum Djúsí sem verður
opnaður við hlið Blackbox í Borgar-
túni um miðjan júní.
„Það er greinileg þörf fyrir djús og
samlokur í Borgartúninu og við hjá
Blackbox vildum svara því kalli með
því að útvíkka þá heildarhugmynd
enn frekar með þessari fersku og
safaríku viðbót,“ segir Jón Gunnar
og auðheyrt að hann stendur enn
undir nafnbótinni frasakóngur
Íslands. „Og nú er komið að því að
flytja Blackbox erfðaefnið út í sam-
lokur og djúsa með þessum nýja
stað, Djúsí by Blackbox.“
Sama erfðaefnið
Jón Gunnar segir Blackbox flatbök-
urnar hafa verið í stöðugri þróun
með áherslu á bragðgott súrdeig.
„Við höfum til dæmis stækkað vöru-
línu okkar í Krónunni jafnt og þétt
en frá upphafi hefur okkur langað
að fara lengra með vörumerkið og
Djúsí er þannig hluti af stærra verk-
efni og kemur inn á þennan markað
með háleit markmið um að gera sér-
lega ljúffengar samlokur og geggjaða
djúsa.“
Jón Gunnar bætir við að hann
búi að yfirgripsmikilli þekkingu og
reynslu af djúsa- og samlokugeir-
anum eftir Lemon-árin. „Við þetta
bætist svo botnlaus þekking sælker-
ans og félaga míns, Karls Viggós Vig-
fússonar, sem kom sterkur inn þegar
við vorum að þróa Djúsí.“
Máli sínu til stuðnings vindur
Jón Gunnar sér síðan í upptalningu
á fyrri afrekum Viggós, sem er jafn-
vígur á súkkulaði og ís. Annars vegar
sem einn stofnenda Omnom og
Skúbb hins vegar. „Síðan stofnaði
hann Blackbox með mér og næst á
sælkera-masterclass-dagskránni eru
djúsar og samlokur.
Þetta verður öskrandi ferskur bast-
arður sprottinn upp úr nákvæmlega
sömu hugmyndafræði og Blackbox
en þótt DNA-ið sé það sama verður
þarna skýr aðgreining og önnur ein-
kenni sem fólk mun upplifa.“
Djús og olía
Jón Gunnar ætlar ekki að binda
Djúsí við Borgartúnið og fram
undan er útrás víða um land í sam-
starfi við olíufélagið N1. „N1 ætlar
að opna Djúsí um allt land á sínum
helstu stöðvum,“ segir Jón Gunnar.
Jón Viðar Stefánsson, rekstrar-
stjóri þjónustustöðva N1, segir
fyrirtækið stefna að því að opna
Djúsí-staði víða um land á næstu
misserum en fyrstu tveir muni opna
á landsbyggðinni í sumar. Allt stefn-
ir því í samkeppni olíufélaganna á
djúsmarkaði þar sem hugmyndir
eru uppi um að opna Lemon-staði á
Olísstöðvum.
„Eftir að hafa tekið þátt í þess-
ari þróun frá upphafi með reglu-
legu smakki erum við komin með
frábæra vörulínu sem á það svo
sannarlega skilið að fara víða,“ segir
Jón Viðar og bætir við að samlokur
og djúsar falli vel að þeirri stefnu
fyrirtækisins að auka fjölbreytileika
hollra og ferskra veitinga á stöðvum
N1.
„Við erum sannfærðir um að
landinn muni fagna þessari viðbót í
veitingaflóruna og getum ekki beðið
eftir að leyfa öllum að smakka,“
segir Jón Gunnar. n
Djúsnum dælt í Borgartúni
Félagarnir Jón Gunnar Geirdal og Karl Viggó Vigfússon hugsuðu innan svarta kassans þegar þeir smökkuðu sig áfram
og þróuðu Djúsí sem þeir ætla að opna í húsnæði Blackbox í Borgartúni um miðjan næsta mánuð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Við erum sannfærðir
um að landinn muni
fagna þessari viðbót í
veitingaflóruna og
getum ekki beðið eftir
að leyfa öllum að
smakka.
Jón Gunnar.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Sumarið er
komið í DORMA
Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði
STYTTU ÞÉR LEIÐ GEGNUM BÆKLINGINN OKKAR
Sófar 2-9 | Svefnsófar 10–11 | Stólar 12–13 | RÚM 14–23 | Mjúkvara og dúnn 24–25 | Smávörur 26–33
SUMAR
TILBOÐIN
2021
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
ÞÚ FINNUR SUMARTILBOÐ
DORMA OG NÝJAN
BÆKLING Á DORMA.IS
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
CANNES
hægindastóll
með skemli
Vandaður, glæsilegur og þægilegur
hægindastóll með þykku leðri á slitflötum
á sterkum snúningsfæti. Bakhæð: 73 cm.
Sethæð: 47 cm. Stærð: 87x75 H: 104 cm.
Fullt verð: 159.900 kr.
Aðeins 135.992 kr.
15%
AFSLÁTTUR
SUMAR
TILBOÐ
52 Lífið 29. maí 2021 LAUGARDAGUR