Bændablaðið - 12.05.2021, Blaðsíða 6

Bændablaðið - 12.05.2021, Blaðsíða 6
Bændablaðið | Miðvikudagur 12. maí 20216 Landbúnaðarráðherra boðaði til streymis­ fundar í síðustu viku um umræðuskjal um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland. Ég hvet bændur til að kynna sér þau áhersluat­ riði sem þar koma fram. Í skjalinu er að finna fjölmörg atriði sem gefa bændum tækifæri til að efla framleiðslu á afurð­ um tengdum landbúnaði. Einnig hefur ráðherra tilkynnt um fundaröð um landið til að kynna drögin og vil ég einnig hvetja bændur til að fjölmenna á þá fundi því á slíkum fundum skapast tækifæri til að koma sjónarmiðum og athugasemdum á framfæri. Umræðuskjalið er komið inn á samráðsgátt Stjórnarráðsins og hvetjum við bændur til þess að skila inn athugasemdum en jafnframt munu samtökin taka saman athugasemdir um þau atriði sem þau verða áskynja um og sem betur megi fara. Það er löngu tímabært að sett verði fram stefna um landbúnað til lengri tíma. Ég vil fagna framkomnu umræðuskjali en auðvitað er margt þarna inni sem á eftir að útfæra, en nýtum tækifærin sem eru til staðar, því eins og fram kemur þá er íslenskur land- búnaður lykilstoð í okkar samfélagi. Starfsmenn Ég vil hvetja atvinnurekendur í landbúnaði til þess að huga að starfsmönnum sínum á þessum fordæmalausum tímum. Það eru margir starfsmenn af erlendu bergi brotnir sem starfa í landbúnaði og því er mikilvægt að vinnuveitendur tryggi að starfsmenn skrái sig á heilsugæslustöð svo heilbrigð- isyfirvöld komi skilaboðum til þeirra um mætingu í bólusetningu. Það er okkur öllum mikilvægt að ná til allra í bólusetningarferl- inu og atvinnurekendur sinni skyldu sinni um að upplýsa sína starfsmenn um fyrir- komulagið hér á Íslandi. Allar upplýsingar um bólusetningar og málefni því tengt er að finna á covid.is og þar má einnig finna leið- beiningarnar á fjölmörgum tungumálum. Búnaðarþing Fyrirhugað er aukabúnaðarþing þann 10. júní næstkomandi þar sem stefnt verður að samþykkt á nýjum samþykktum Bændasamtakanna á grundvelli samþykktar Búnaðarþings frá 23. mars síðastliðnum. Búnaðarþingið verður haldið á fjarfundar- formi og einungis eitt mál á dagskrá, sem er staðfesting á nýjum samþykktum ásamt samþykktum um uppstillingarnefnd og kosningu tveggja fulltrúa til viðbótar inn í stjórn Bændasamtakanna. Einnig verða fyrstu drög að stefnumörkun fyrir Bændasamtökin kynnt Fjölmörg aðildarfélög hafa þegar haldið sína aðalfundi og samþykkt nýtt fyrir- komulag. Það er von mín að frá og með 1. júlí næstkomandi munum við starfa eftir nýjum samþykktum og fyrirkomulagi. Mikill undirbúningur hefur farið fram hér á skrifstofu samtakanna um að innleiða nýtt skipurit og verður það áskorun að takast á við það og ná fram þeim slagkrafti sem felst í nýju fyrirkomulagi bændum til heilla. Merking matvæla Hafinn er undirbúningur að búvörumerki fyrir íslenskar landbúnaðarafurðir. Það er unnið á grundvelli sambærilegra merkja sem er við lýði í Skandinavíu. Nauðsynlegt er að undirbúningur að innleiðingunni verði í góðu samtali við framleiðendur og afurðastöðvar í greininni svo og verslunina og neytendur. Nauðsynlegt er að merkið standi undir merki um íslenskar afurðir og verði öllum til hags- bóta til að upplýsa um afurðir sem framleiddar eru hér og unnar hvort sem er í verslunum, veitingastöðum og mötuneytum. Þetta er eitt af mikilvægustu atriðum er lýtur að mark- aðssetningu á afurðum sem framleiddar eru með hreinu vatni í heilnæmu umhverfi og án sýklalyfja. Bændablaðið kemur út 24 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum á landinu og á öll lögbýli landsins. Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti gegn greiðslu. Árgangurinn kostar þá kr. 11.600 með vsk. (innheimt í tvennu lagi). Ársáskrift fyrir eldri borgara og öryrkja kostar 7.600 með vsk. Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279 Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar − SKOÐUN Íslensk stjórnvöld eru komin í dálítið undarlega stöðu vegna nær alsjálfvirkra samþykkta á reglum sem hlaðið hefur verið einhliða og óumbeðið ofan á EES­ samninginn. Eitthvað sem íslenska þjóð­ in hefur aldrei fengið að kjósa um. Þjóðin fékk ekki heldur að kjósa um samninginn sem gerður var af þrem aðildarríkjum Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA), Íslandi, Noregi og Liechtenstein við 28 aðildarríki Evrópusambandsins 1993. Margir lofa EES-samninginn sem tók gildi 1. janúar 1994 í hástert og segja gildi hans fyrir íslenskan efnahag ótvírætt. Vissulega breytti aðlögun Íslands að þessum samningi heilmiklu í okkar viðskiptum, en samt er útilokað að fullyrða að án hans væri væri allt hér miklu verra. Einfaldlega vegna þess að Íslendingar og EFTA-þjóðirnar sem heild hefðu aldrei setið með hendur í skauti og sett öll sín viðskipti í núllstöðu. EFTA-ríkið Sviss hefur t.d. aldrei verið hluti af EES-samningnum, en trúlega stendur engin Evrópuþjóð efnahagslega betur en Svisslendingar í dag, nema borgríkin í Liechtenstein og Lúxemborg. Tölur Alþjóðabankans (World Bank) sýna að verg landsframleiðsla (VLF) á mann 2019, eða fyrir COVID-19, var mest í Liechtenstein, eða 181.402 (US) dollarar á mann. Þar eru íbúar 38.896 og búa í 160 ferkílómetra (km2) landi sem er ekki aðildarríki ESB. Lúxemborg var í öðru sæti með 114.685 dollara. Þar eru íbúar 633.622 og búa á 2.586,4 km2. Síðan kom Sviss með 81.989, þá Írland með 78.779 dollara, Noregur 75.420 dollara og Ísland með 67.085 dollara á mann. Bandaríkin koma svo fast á hæla Íslandi, 65.298 dollara. Þegar menn líta til Evrópusambandsins sjá margir beina aðild sem lokatakmarkið í innleiðingu á óumbeðnu viðbótar reglu- verki EES-samningsins. Þá er Þýskaland yfirleitt talið límið sem heldur því saman. Þjóðverjar eru vissulega til fyrirmyndar á mörgum sviðum. Þessi hornsteinn ESB er samt mikill eftirbátur Íslands þegar kemur að vergri landsframleiðslu á mann sem gjarnan er notað til að meta efnahagsstyrkleika þjóða. Þar var landsframleiðslan samkvæmt tölum Alþjóðabankans „aðeins“ 46.468 dollarar á árinu 2019. Eða nær þriðjungi lægri en á Íslandi og 35.521 dollurum lægri á mann en í Sviss sem stendur utan við bæði ESB og EES. ESB-landið Danmörk er með talsvert minni verga landsframleiðslu á mann en Ísland, eða 60.213 dollara. Svíþjóð er með 51.648 dollara og Finnland með 48.771 dollar. Bretland, sem er nýgengið úr ESB, var 42.329 dollara VLF á mann 2019. Fyrir utan fjölmennasta ESB-ríkið Þýskaland, þá er Frakkland næstfjölmennasta ríkið og ein af meginstoðum bandalagsins með 40.495 dollara á mann. Þriðja stærsta aðildarríkið, Ítalía, var með 33.226 dollara og fjórða stærsta ESB-ríkið, Spánn, var með 29.565 dollara VLF á mann á árinu 2019. Þegar litið er á þessar tölur mætti öllum vera ljóst að Ísland er efnahagslega betur statt en öll ESB-löndin að undanskildu borgríkinu Lúxemborg og Írlandi. Því ætti mönnum líka að vera það ljóst að Ísland mun aldrei fá einhverja ölmusu úr sjóðum ESB. Það er hrein blekking að halda slíku fram. Nettó aðildargjöld hljóta því að verða mjög há fyrir Ísland. Spurningin er bara hvort EES-samn- ingurinn muni með rúllupylsu aðlögunar- aðferðinni, á endanum gera íbúa Liechten- stein, Noregs og Íslands sjálfkrafa að hæstu skattgreiðendum í heimi í sjóði ESB. Eitthvað sem sem aldrei hefur verið borið undir íbúa þessara þjóða. /HKr. Umræðuskjal um íslenska landbúnaðarstefnu Gunnar Þorgeirsson formaður Bændasamtaka Íslands gunnar@bondi.is ÍSLAND ER LAND ÞITT Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 − Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is – Blaðamenn: Erla Hjördís Gunnarsdóttir ehg@bondi.is – Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is – Auglýsingastjóri: Guðrún Hulda Pálsdóttir ghp@bondi.is – Sími: 563 0303 – Netfang auglýsinga: augl@bondi.is − Vefur blaðsins: www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Frágangur fyrir prentun: Ágústa Kristín Bjarnadóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621 Hofsós er þorp á Höfðaströnd við austanverðan Skagafjörð, báðum megin við ósa Hofsár. Þar er Vesturfarasetrið, safn og rannsóknarsetur tengt vesturferðum Íslendinga 1870-1914. Það er í gömlu timburhúsi þar sem Kaupfélag Austur-Skagfirðinga var áður til húsa, og í nýbyggingu sem reist var í sama stíl. Þar er ágætt skipalægi frá náttúrunnar hendi, einkum í norðaustanátt, og betra en annars staðar við Skagafjörð. Talið er að verslun hafi hafist á staðnum á 16. öld, og er Hofsós því einn elsti verslunarstaður landsins. Þangað sóttu Skagfirðingar nær alla sína verslun þar til byggð hófst á Sauðárkróki upp úr 1870. Föst búseta hófst á Hofsósi á 19. öld og flestir urðu íbúar þorpsins um 300 um miðja 20. öld. Aðalatvinnuvegurinn var lengst af fiskveiðar og vinnsla sjávarafla og þjónusta við sveitirnar í kring en á síðustu árum hefur ferðamannaþjónusta skipað æ stærri sess. Á Hofsósi er að finna eitt elsta bjálkahús landsins, Pakkhúsið, vörugeymslu frá tíma einokunarverslunarinnar. Það var reist árið 1772. Í Pakkhúsinu er nú Drangeyjarsafn, helgað Drangey og nýtingu hennar fyrr og nú. Mynd / Hörður Kristjánsson Af rúllupylsuaðferðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.