Bændablaðið - 12.05.2021, Blaðsíða 49
Bændablaðið | Miðvikudagur 12. maí 2021 49
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
3
5 3 9 1
9 5
1 4
3 8
2 6 7 3
9 2 5
6 5
4 9 7
Þyngst
7 8
2 6 9 7
1 4
5 2 1
2 5 6
8 7 9
4 9
9 1
3 8 6
1 5 2
5 9
7 6
1 6 5
6 3 5 2
8 2 9
6 8
7 2
4 3 8
6 1
5 9 2
6 7 9
4 1 3
1 6
5 8 9
8 4 1
9 6 8
3 2
Tók á móti tveimur lömbum
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Dagrún Dröfn býr á Króknum
ásamt foreldrum sínum, Gunnari
og Klöru, og systur sinni, Glódísi,
11 ára. Dagrún er mjög fjörug og
skemmtileg stelpa sem hefur alltaf
nóg að gera.
Henni finnst geggjað að fara
á Gaukstaði á Skaga og Bólu í
Blönduhlíð og brasa heilan helling
þar. Enda fer sauðburðurinn hjá Fríðu
frænku á Gauk að byrja. Hún tók á
móti tveimur lömbum í fyrra og ætlar
að taka á móti fleirum í ár. Í Bólu
vilja þær byggja kofa í sumar, taka
endalausa rúnta á krossaranum og
fara að vaða og veiða.
Nafn: Dagrún Dröfn Gunnarsdóttir.
Aldur: Verð 10 ára, 9. júní nk.
Stjörnumerki: Tvíburi.
Búseta: Freyjugata 42 á Sauðárkróki.
Skóli: Árskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Stærðfræði og útiíþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hestur.
Uppáhaldsmatur: Svínakjötsneiðar
með kartöflusalati.
Uppáhaldshljómsveit: Tiësto.
Uppáhaldskvikmynd: Matilda.
Fyrsta minning þín? Þegar vinkona
mín fékk blóðnasir þegar við vorum
4 ára í leikskóla.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Já, æfi fótbolta og körfu-
bolta.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Hárgreiðslukona eða
vinna á Lemon.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Prjóna með pabba á
sleðanum hans.
Hvað gerðir þú skemmtilegt um
páskana? Við spiluðum, fórum á
sleða, út að renna, í heita pottinn og
elduðum góðan mat.
Næst » Ég skora á Ísak Hrafn að
svara næst.
Hamrahlíð 17
Hús Blindrafélagsins
Sími • 552-2002
ÓDÝR
Margskipt gleraugu
Verð 39.900 kr
Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tvær vikur)
Gleraugu með glampa og rispuvörn
Sérsmíðum samdægurs í
styrk +/- 6,0 með cyl. til 2,0
19.900 kr.
Margskipt gleraugu
Margskipt gler frá Essilor
(afgreiðslutími +/- tv r vikur)
39.900 kr.
gleraugu
umgjörð og gler
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Nokkrir uppskriftahönnuðir hafa
sammælst um að senda uppskriftir
í Bændablaðið sem mæla með
íslensku garni í uppskriftirnar.
Hér kemur sú fyrsta úr smiðju
Margrétar Jónsdóttur.
Efni:
50-60 gr Þingborgarlopi eða hulduband frá Uppspuna
í aðallit
15-20 gr Þingborgarlopi eða hulduband frá Uppspuna
í mynstur
40 eða 50 cm langir hringprjónar nr 4 og 5
Sokkaprjónar nr 5
Prjónafesta:
22 umf og 15 l = 10 x 10 cm
Gætið að prjónafestu og notið minni eða stærri prjóna
ef þarf. Eins ef notað er annað band eða lopi en hér
er mælt með.
Húfan
Fitjið upp á hringprjón nr 4 80-90 lykkjur í aðallit og
prjónið stroff 8 umferðir, sjá teikningu.
(Ef þétt er prjónað þarf að bæta 10 lykkjum við
stærðina þegar prjónað er úr huldubandi)
Hægt er að hafa stroffið breiðara ef vill og hafa húfuna
þannig dýpri eða bretta upp á. Þegar stroffi lýkur er
skipt yfir á hringprjón nr 5.
Prjónið áfram eftir teikningunni. Skiftið yfir á sokka-
prjónana þegar hringprjónninn verður of langur í
úrtökunni. Þegar 16 lykkjur eru eftir á prjóninum er
slitið frá og spottinn hafður 30-40 cm langur. Notið
nál til að þræða í gegnum lykkjurnar, fyrst í gegnum
lykkjurnar í aðallit og hinar geymdar á prjónum á
meðan og þræðið svo í gegnum þær líka og dragið
prjóninn úr, gangið vel frá öllum endum að innan-
verðu.
Þvoið húfuna í höndunum í mildu sápuvatni, kreistið
vatnið vel úr og leggið til þerris.
Notið hugmyndaflugið til að skreyta húfuna í toppinn.
Ullarvikuhúfa
VIÐ ÆTLUM AÐ HALDA ULLARVIKU
Ullarvika á Suðurlandi verður að veruleika 3.-9. október 2021.
Fylgist með dagskrá og framvindu á ullarvikan.is
ÞINGBORG ULLARVINNSLA