Bændablaðið - 12.05.2021, Blaðsíða 7
Bændablaðið | Miðvikudagur 12. maí 2021 7
Frístundaklúbbur Grímsnes- og Grafnings-
hrepps, sem eru nemendur á miðstigi
Kerhólsskóla fór nýlega í tvær áhugaverðar
heimsóknir á Stóru-Borg.
Fyrst heimsóttu krakkarnir kirkjuna á
staðnum þar sem Hörður Óli Guðmundsson,
formaður sóknarnefndar, tók á móti hópnum
og sagði frá sögu og starfsemi kirkjunnar.
Eftir það var bílaverkstæði feðganna Þrastar
Sigurjónssonar og Sigurjóns Þrastarsonar
heimsótt, en þeir eru með alhliða bílaviðgerðir
fyrir sveitunga sína og aðra, sem þurfa á slíkri
þjónustu að halda. Báðar heimsóknirnar tókust
stórvel.
Þá má geta þess að klúbburinn fékk
líka skemmtilega heimsókn 5. maí en þá
komu tveir starfsmenn sprengjudeildar
Landhelgisgæslunnar og kynntu starfsemi
deildarinnar og sýndu hluta af þeim búnaði
sem deildin vinnur með. Heimsóknin var
stórskemmtileg og spurðu krakkarnir margra
spurninga. /MHH
LÍF&STARF
Það vakti athygli kunnugra í Eyjafirði frétt í Bændablaðinu af hjónunum í Villingadal,
þeim Guðrúnu Jónsdóttur og Árna
Sigurlaugssyni þar sem þau veita við-
töku viðurkenningu Búnaðarsambands
Eyjafjarðar fyrir afburða árangur í sauð-
fjárrækt. Viðurkenningarskjalið er mynd
af stórhyrndum hrúti, en þau hjón hafa
lagt sérstaka rækt við kollótt fé, og heldur
þótt ami að hyrndu fé. Sveinn bóndi
Sigmundsson á Vatnsenda, sem fitlar
með ágætum við vísnagerð, vék vísu að
þættinum af tilefni verðlauna þeirra hjóna
í Villingadal:
Myndin vekur sorg og sút,
þau sanna fjárrækt kunna.
„Hvað gerum við með hyrndan hrút?”
-hugsa Árni og Gunna.
Árangur í sauðfjárrækt tengist svo um-
talsvert vorkomunni. Þá sjást ljóslifandi
afurðir sæðinga og kynbóta. Þórarinn Már
Baldursson orti af listfengi næstu vísur um
vorkomuna:
Loks er snjóa leysa fer,
linnir Góu taki,
ekki flóafriður er
fyrir lóukvaki.
Litlir fætur fara á ról,
fölgrænt strá er étið.
Bröltir út á bæjarhól
blessað súpuketið.
Bragi Björnsson bóndi á Surtsstöðum orti
á köldu vori:
Skyndilega skipti um svið,
skráðist nýrri saga:
Lífið virtist vonlaus bið
vors og hlýrri daga.
Verða að lifa ýmiss án,
allvel þó svo vegni,
þeir sem eiga allt sitt lán
undir sól og regni.
Vorið gengur von í hag,
varman lengir daginn.
Á þýða strengi ljúflingslag
leikur engi og haginn.
Á vorinu 1967 kvað Bjarni frá Gröf:
Skattana mína ég skulda,
skepnurnar drap ég úr hor.
Blærinn er blár af kulda,
við blessum þig, íslenska vor.
Haraldur Zophoníasson á þessa einstöku
lýsingu á vorkomunni:
Aftur litar vorið veginn,
vefur hita brá og kinn,
vetrarslitum verður feginn
veðurbitinn hugur minn.
En víkjum nú frá vori og vísum tengdum
því. Enn í dag þykir mörgum furðuleg
sú gjörð þegar hinu staðarlega nafni á
bænum Tumsu í Aðaldal var breytt í
Norðurhlíð. Það þótti mörgum undar-
leg tilskipan, enda orti þar um Konráð
Erlendsson:
Nú er komin nýrri tíð,
nú er engin Tumsa,
nú er komið að Norðurhlíð,
nú er ég alveg klumsa.
Friðjón Ólafsson orti um Edda ves-
alinginn sem enga eirð fann fyrir kven-
seminni:
Ástin brennir unga menn,
oft slær henni niður,
einn mun kenna á því senn,
okkar rennismiður.
Eddi, þessi angurgapi
oft á „Skjóna“ mikinn fer,
reglulega röskur knapi
ríður „onaf“ fyrir sér.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
273MÆLT AF
MUNNI FRAM
Nemendurnir sem útskrifuðust frá Lýðskólanum á Flateyri laugardaginn 1. maí síðastliðinn. Mynd / Aðsend
Útskrift og skólastjóraskipti
við Lýðskólann á Flateyri
Útskrift Lýðskólans á Flateyri fór fram
laugardaginn 1. maí í þriðja sinn frá stofnun
skólans. Vegna samkomutakmarkana
var athöfninni streymt á Facebook-síðu
skólans.
Alls útskrifuðust 32 nemendur frá skólan-
um að þessu sinni, 17 af námsbrautinni Hafið,
fjöllin og þú og 15 af námsbrautinni Hugur,
heimurinn og þú.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menn-
ingarmálaráðherra ávarpaði nemendur um
fjarfundabúnað og óskaði þeim til hamingju
með daginn. Hún sagði Lýðskólann efla nem-
endur sína sem einstaklinga en einnig bæði
samfélagið í kring og landið allt.
Við athöfnina tilkynnti nú ver andi skóla-
stjóri, Ingibjörg Guð munds dóttir, að hún
hyggðist láta af störfum sem skólastjóri í
sumar. Runólfur Ágústsson, formaður stjórnar,
þakkaði Ingibjörgu góð og mikilvæg störf á
erfiðum tímum snjóflóða og heimsfaraldurs.
Nýr skólastjóri verður Katrín María
Gísladóttir. Katrín María er Flateyringur.
Hún er með BA í sálfræði frá Háskólanum á
Akureyri og meistaragráðu í forystu og stjórn-
un frá Háskólanum á Bifröst. Katrín María er
nú aðstoðarskólastjóri Lýðskólans á Flateyri
en var áður verkefnastjóri tungumálakennslu
flóttabarna hjá Ísafjarðarbæ og kennari við
Grunnskólann á Flateyri. Hún hefur einnig
frá árinu 2019 átt sæti í stjórn Lýðskólans og
þekkir því starf skólans afar vel. Þetta kemur
m.a. fram í tilkynningu frá skólanum. /MHH
Líflegt hjá krökkunum í Frístundaklúbbi Grímsnes- og Grafningshrepps:
Heimsóttu kirkju, bílaverkstæði og tóku á móti
sprengjudeildarmönnum Landhelgisgæslu
Feðgarnir Þröstur og Sigurjón, sem eru með bílaverkstæði á Stóru-Borg.
Krakkarnir í Frístundaklúbbnum með Herði Óla á stéttinni við
kirkjuna á Stóru-Borg. Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson
Þeir Andri Rafn Helgason (t.v.) og Sigurður Ásgrímsson, yfirmaður
sprengjudeildarinnar, komu í heimsóknina á Borg, sem fór fram á
útivistarsvæðinu við Kerhólsskóla.