Bændablaðið - 12.05.2021, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 12.05.2021, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Miðvikudagur 12. maí 202126 „Ég hóf störf hjá félaginu 10. janúar 1994 og fór þá að læra kjötiðn. Ég er nú fæddur og uppalinn á Selfossi og vann hjá þeim góða manni Ingólfi Bárðarsyni í kjötvinnslu KÁ í tvö sumur og þá kviknaði einhver áhugi á faginu en það var ekki pláss fyrir nema á þeim tíma hjá honum þannig að það varð úr að ég fór austur á Hvolsvöll að læra. Ég hef búið á Hvolsvelli nær allan tímann síðan þá. Ég tel að það hafi verið mjög mikil lukka fyrir mig persónulega að hafa flutt austur og hafa kynnst öllu því góða fólki sem ég þekki í dag. Ég er líklega orðinn meiri Rangæingur en Árnesingur eftir þessi ár á Hvolsvelli. Því hefur stundum verið hent fram að Hvolsvöllur sé nafli alheimsins og ég held að það sé bara nokkuð til í því,“ segir Benedikt Benediktsson, framleiðslustjóri kjötvinnslu SS á Hvolsvelli, þegar hann er spurður hvenær hann hóf störf hjá félaginu og hvað kom til. 1.maí síðastliðinn voru 30 ár frá því að kjötvinnslan hóf starfsemi á Hvolsvelli en ekki var hægt að halda upp á tímamótin með opnu húsi eða slíku vegna Covid 19. Blaðamaður settist niður með Benedikt til að forvitnast um starfsemina á Hvolsvelli. Áttu fullkomið sláturhús á Hvolsvelli Þegar talið berst að því af hverju sláturfélagið ákvað að setja sig niður á Hvolsvelli en ekki á Hellu eða Þykkvabænum er Benedikt með svarið á reiðum höndum. Já, SS átti á þessum tíma fullkomið sláturhús á Hvolsvelli og menn sáu möguleika á að breyta því í kjötvinnslu sem var og gert. Þarna höfðu þeir menn áræði, sem komu að málinu og voru framsýnir þrátt fyrir mjög ótrúlega þrönga stöðu sem SS var í á þeim tíma. Þessi ákvörðun var gríðarlega happadrjúg, bæði fyrir SS og ekki síður fyrir sveitarfélagið. Það er margt fólk sem fær atvinnu hjá okkur og auk þess mörg afleidd störf í ýmiss konar þjónustu við okkur og aðra. Það vinna um 160 manns hjá okkur og fjöldi íbúa í sveitarfélaginu eru um 2.000 talsins, þannig að það er ansi hátt hlutfall sem vinnur hjá SS,“ segir Benedikt. Stöðug þróun í gangi Kjötvinnslan á Hvolsvelli er alltaf að stækka og stækka með tilheyrandi þróun í tæknibúnaði og öðru slíku. „Já, já, það er stöðug þróun í vinnslu, vélvæðing hefur verið tölu- vert undanfarin ár. Vinnslan hefur verið stækkuð í tvígang frá 1991, síðast 2008 þegar vöruafgreiðslan var flutt á Hvolsvöll frá Reykjavík og þá komu 10-15 störf með. Við erum að framleiða rúmlega 500 vörunúmer í dag og stöðug vöru- þróun er í gangi. Vöruþróunarferlið okkar er þannig að við erum með vöruþróunarhóp sem hittist einu sinni í mánuði. Í hópunum eru aðilar úr framleiðslunni, sölu- og markaðsdeild. Margt er prufað en það fer ekki nærri allt í sölu,“ segir Benedikt. SS pylsurnar langvinsælastar Benedikt er næst spurður hvað sé vinsælasta og vinsælustu vörur kjöt- vinnslunnar á Hvolsvelli. „SS pylsurnar eru vissulega okkar vinsælasta vara en 1944 réttirnir eru einnig gríðarlega vin- sælir og viðskiptavinir eru mjög ánægðir með þá breiðu vörulínu sem við framleiðum en við erum einmitt að setja nýjan rétt á markað þessa dagana en það er Panang kjúklingur. Grillkjötið okkar er líka mjög vin- sælt og seljum við töluvert mikið af því. Einnig eru grillpylsurnar okkar mjög vinsælar eins og Ostapylsur, Pólskar pylsur og Pylsur fagmanns- ins, sem eru Chilli ostapylsur. Það er algjör nauðsyn að grilla pylsur í „forrétt“ þegar staðið er við grillið og borða þær berar,“ segir Benedikt og glottir. Starfsmenn frá Íslandi, Póllandi og Búlgaríu Í dag eru starfsmenn kjötvinnsl- unnar um 160 í 150 stöðugildum. Starfsmenn vinnslunnar koma frá Íslandi, Póllandi og Búlgaríu. „Við erum með margt fólk af erlendu bergi brotið. Við erum ótrú- lega heppin á Íslandi að fá þetta fólk til okkar. Það er gaman að vinna í svona margmenningarsamfélagi eins og við erum í. Þó svo að tungu- mál geti stundum verið hamlandi þá eru margir sem tala reiprennandi íslensku og alltaf einhverjir sem eru í íslenskunámi. Þau segja nú mörg að íslenskan sé erfið að læra sem ég skil mjög vel. Ég fór sjálfur á pólskunámskeið fyrir nokkrum misserum síðan og hún er ansi erfið en þetta er auðvitað alltaf spurning um æfingu því hún er nauðsynleg,“ segir Benedikt aðspurður um þjóð- erni starfsfólksins. Styrkir til nærsamfélagsins - Sláturfélagið hefur verið mjög duglegt að styrkja alls konar starf- semi í nærsamfélagi sínu og munar um minna þar. LÍF&STARF Kjötvinnsla Sláturfélags Suðurlands á Hvolsvelli fagnaði 30 ára afmæli 1. maí: Starfsemin gengur glimrandi vel – Starfsmenn eru um 160 og 500 vörunúmer í gangi Benedikt Benediktsson, framleiðslustjóri kjötvinnslu SS á Hvolsvelli, með Olgu Mörk Valsdóttur framleiðslustjóra, sem hefur unnið í 21 ár hjá SS, og Oddi Árnasyni fagmálastjóra, sem hefur starfað í að verða 35 ár hjá félaginu. Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson Starfsfólk kjötvinnslunnar er ánægt með vinnuna þar enda segir Benedikt að staðurinn, sé mjög skemmtilegur og léttur vinnustaður þar sem húmor og gleði er aldrei langt undan. Hér er verið að pakka SS vínarpylsunum, sumar fara í 10 pylsu pakkningar á meðan aðrar fara fimm saman í pakkningu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.