Bændablaðið - 12.05.2021, Qupperneq 26
Bændablaðið | Miðvikudagur 12. maí 202126
„Ég hóf störf hjá félaginu 10.
janúar 1994 og fór þá að læra
kjötiðn. Ég er nú fæddur og
uppalinn á Selfossi og vann
hjá þeim góða manni Ingólfi
Bárðarsyni í kjötvinnslu KÁ í
tvö sumur og þá kviknaði einhver
áhugi á faginu en það var ekki
pláss fyrir nema á þeim tíma hjá
honum þannig að það varð úr að
ég fór austur á Hvolsvöll að læra.
Ég hef búið á Hvolsvelli nær allan
tímann síðan þá. Ég tel að það hafi
verið mjög mikil lukka fyrir mig
persónulega að hafa flutt austur og
hafa kynnst öllu því góða fólki sem
ég þekki í dag. Ég er líklega orðinn
meiri Rangæingur en Árnesingur
eftir þessi ár á Hvolsvelli. Því
hefur stundum verið hent fram að
Hvolsvöllur sé nafli alheimsins og
ég held að það sé bara nokkuð til í
því,“ segir Benedikt Benediktsson,
framleiðslustjóri kjötvinnslu SS á
Hvolsvelli, þegar hann er spurður
hvenær hann hóf störf hjá félaginu
og hvað kom til.
1.maí síðastliðinn voru 30 ár frá
því að kjötvinnslan hóf starfsemi á
Hvolsvelli en ekki var hægt að halda
upp á tímamótin með opnu húsi eða
slíku vegna Covid 19. Blaðamaður
settist niður með Benedikt til
að forvitnast um starfsemina á
Hvolsvelli.
Áttu fullkomið sláturhús
á Hvolsvelli
Þegar talið berst að því af hverju
sláturfélagið ákvað að setja sig
niður á Hvolsvelli en ekki á Hellu
eða Þykkvabænum er Benedikt með
svarið á reiðum höndum. Já, SS átti
á þessum tíma fullkomið sláturhús á
Hvolsvelli og menn sáu möguleika
á að breyta því í kjötvinnslu sem
var og gert. Þarna höfðu þeir menn
áræði, sem komu að málinu og voru
framsýnir þrátt fyrir mjög ótrúlega
þrönga stöðu sem SS var í á þeim
tíma. Þessi ákvörðun var gríðarlega
happadrjúg, bæði fyrir SS og ekki
síður fyrir sveitarfélagið. Það er
margt fólk sem fær atvinnu hjá
okkur og auk þess mörg afleidd störf
í ýmiss konar þjónustu við okkur og
aðra. Það vinna um 160 manns hjá
okkur og fjöldi íbúa í sveitarfélaginu
eru um 2.000 talsins, þannig að það
er ansi hátt hlutfall sem vinnur hjá
SS,“ segir Benedikt.
Stöðug þróun í gangi
Kjötvinnslan á Hvolsvelli er alltaf að
stækka og stækka með tilheyrandi
þróun í tæknibúnaði og öðru slíku.
„Já, já, það er stöðug þróun í
vinnslu, vélvæðing hefur verið tölu-
vert undanfarin ár. Vinnslan hefur
verið stækkuð í tvígang frá 1991,
síðast 2008 þegar vöruafgreiðslan
var flutt á Hvolsvöll frá Reykjavík
og þá komu 10-15 störf með. Við
erum að framleiða rúmlega 500
vörunúmer í dag og stöðug vöru-
þróun er í gangi. Vöruþróunarferlið
okkar er þannig að við erum með
vöruþróunarhóp sem hittist einu
sinni í mánuði. Í hópunum eru
aðilar úr framleiðslunni, sölu- og
markaðsdeild. Margt er prufað en
það fer ekki nærri allt í sölu,“ segir
Benedikt.
SS pylsurnar langvinsælastar
Benedikt er næst spurður hvað sé
vinsælasta og vinsælustu vörur kjöt-
vinnslunnar á Hvolsvelli.
„SS pylsurnar eru vissulega
okkar vinsælasta vara en 1944
réttirnir eru einnig gríðarlega vin-
sælir og viðskiptavinir eru mjög
ánægðir með þá breiðu vörulínu sem
við framleiðum en við erum einmitt
að setja nýjan rétt á markað þessa
dagana en það er Panang kjúklingur.
Grillkjötið okkar er líka mjög vin-
sælt og seljum við töluvert mikið af
því. Einnig eru grillpylsurnar okkar
mjög vinsælar eins og Ostapylsur,
Pólskar pylsur og Pylsur fagmanns-
ins, sem eru Chilli ostapylsur. Það
er algjör nauðsyn að grilla pylsur í
„forrétt“ þegar staðið er við grillið
og borða þær berar,“ segir Benedikt
og glottir.
Starfsmenn frá Íslandi,
Póllandi og Búlgaríu
Í dag eru starfsmenn kjötvinnsl-
unnar um 160 í 150 stöðugildum.
Starfsmenn vinnslunnar koma frá
Íslandi, Póllandi og Búlgaríu.
„Við erum með margt fólk af
erlendu bergi brotið. Við erum ótrú-
lega heppin á Íslandi að fá þetta fólk
til okkar. Það er gaman að vinna
í svona margmenningarsamfélagi
eins og við erum í. Þó svo að tungu-
mál geti stundum verið hamlandi þá
eru margir sem tala reiprennandi
íslensku og alltaf einhverjir sem
eru í íslenskunámi. Þau segja nú
mörg að íslenskan sé erfið að læra
sem ég skil mjög vel. Ég fór sjálfur
á pólskunámskeið fyrir nokkrum
misserum síðan og hún er ansi erfið
en þetta er auðvitað alltaf spurning
um æfingu því hún er nauðsynleg,“
segir Benedikt aðspurður um þjóð-
erni starfsfólksins.
Styrkir til nærsamfélagsins
- Sláturfélagið hefur verið mjög
duglegt að styrkja alls konar starf-
semi í nærsamfélagi sínu og munar
um minna þar.
LÍF&STARF
Kjötvinnsla Sláturfélags Suðurlands á Hvolsvelli fagnaði 30 ára afmæli 1. maí:
Starfsemin gengur glimrandi vel
– Starfsmenn eru um 160 og 500 vörunúmer í gangi
Benedikt Benediktsson, framleiðslustjóri kjötvinnslu SS á Hvolsvelli, með Olgu Mörk Valsdóttur framleiðslustjóra, sem hefur unnið í 21 ár hjá SS, og Oddi Árnasyni fagmálastjóra, sem hefur
starfað í að verða 35 ár hjá félaginu. Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson
Starfsfólk kjötvinnslunnar er ánægt með vinnuna þar enda segir Benedikt
að staðurinn, sé mjög skemmtilegur og léttur vinnustaður þar sem húmor
og gleði er aldrei langt undan.
Hér er verið að pakka SS vínarpylsunum, sumar fara í 10 pylsu pakkningar
á meðan aðrar fara fimm saman í pakkningu.