Bændablaðið - 12.05.2021, Blaðsíða 21
Bændablaðið | Miðvikudagur 12. maí 2021 21
og líffræðilegan fjölbreytileika
hafsvæðisins og að endur-
heimta, þar sem það er gerlegt,
hafsvæði sem hafa orðið fyrir
skaða.
b. Vinna saman að því að gera
áætlanir og ráðstafanir í
þeim tilgangi að hafa stjórn
á athöfnum manna sem
skilgreindar eru með beitingu
viðmiðana í 3. viðauka
samningsins.“
Það eru óhreinindi á fínu
hreinleikaímyndinni
Samkvæmt þessu er alveg ljóst að
Íslendingar eru ekki að uppfylla
skyldur sínar gagnvart OSPAR
samningnum í ljósi þess að aðeins
4% sveitarfélaga á Íslandi með
meira en 2.000 íbúa eru með tveggja
þrepa hreinsun á skólpi sem frá þeim
rennur í hafið.
Tveggja þrepa hreinsun er í raun
það sem mætti kalla lágmarks-
hreinsun úrgangsefna úr skólpi.
Fyrsta stigs hreinsun á skólpi
sem notuð er í 56% sveitarfélaga
á Íslandi með 2.000 íbúa eða fleiri,
felur eiginlega ekki annað í sér en
að grófhreinsa rusl til að koma í veg
fyrir að dælubúnaður skólpdælu-
stöðva stöðvist. Samt skilar þetta
um 120 tonnum af rusli sem sturt-
að er í klósettin og fer í „hreinsi-“-
dælustöðvar í Klettagörðum og
Ánanaustum í Reykjavík á ári. Það
hefur síðan verið urðað í Álfsnesi.
Engin hreinsun í 40%
sveitarfélaga með yfir 2.000 íbúa
Þá hlýtur það að teljast skelfileg
staða að 40% sveitarfélaga með
meira en 2.000 íbúa í landi sem
státar af hreinni matvælafram-
leiðslu og hrósar sér af hreinu hafi
og umhverfi, eru ekki með eina ein-
ustu hreinsun á sínu skólpi. Það er
sannarlega kúkur á fínu hreinleikaí-
myndinni sem Íslendingar verða,
samkvæmt alþjóðlegum skuld-
bindingum, að þrífa upp eftir sig.
Coca-Cola sýnir gott fordæmi
Víða í stórborgum erlendis má sjá
gríðarstórar fjögurra þrepa skólp-
hreinsistöðvar þar sem öll snefilefni
eru gerð óvirk og vatnið hreinsað
þar til það er nothæft að nýju til
áveitu og jafnvel sem drykkjar-
vatn. Hér í Bændablaðinu hefur
verið fjallað um eina hreinsistöð á
Íslandi sem hefur þessa eiginleika,
en hún er í eigu Vífilfells (Coca-
Cola) í Reykjavík og hreinsar allt
affall og skólp sem frá verksmiðj-
unni kemur. Til að sýna fólki fram
á hreinleikann á vatninu sem þar
er hreinsað er vatnið frá stöðinni
m.a. notað í fiskabúr. Þessi stöð var
reist samkvæmt stefnu Coca-Cola
Company sem tekin var upp árið
2007 um að allt vatn sem notað er
í verksmiðjum fyrirtækisins skyldi
100% endurunnið.
Þó Íslendingar geti enn státað af
nægu hreinu vatni, þá er það ekki
svo með allar aðrar þjóðir. Þannig
hefur Coca-Cola t.d sett upp 500
hreinsistöðvar í Indlandi sem skila
yfir 25 milljörðum lítra af hreinu
vatni aftur út í samfélagið til neyslu.
Aukin vitund í heiminum um
mikilvægi skólphreinsunar
Á vefsíðu IGI Global má sjá grein
um mikilvægi skólphreinsunar í ljósi
sögunnar, vaxandi mannfjölgunar
og aukinnar ferðaþjónustu. Þar segir
að skólpmál hafi svo sem ekki verið
mikið áhyggjuefni manna fyrir tvö
hundruð árum eða svo þegar íbúa-
tala jarðar var „einungis“ um einn
milljarður. Með vaxandi fólksfjölda
þar sem jarðarbúar eru nú nálægt
7,6 milljörðum og stórauknu þétt-
býli er lykilatriði að stunduð sé
hreinsun á skólpi. Þá hafa stóraukin
ferðalög fólks líka aukið áherslur
á að þessir þættir séu í lagi sem
og meðvitund sem vaknað hefur
vegna COVID-19 faraldursins um
smithættu af skólpi.
Strangar reglur í Evrópu
Í Evrópusambandinu hafa verið
í gildi reglur um meðferð skólps í
þéttbýli sem byggðar eru á regluverki
sem tekið var upp í maí 1991. Ýmis
sérafbrigði af þeim reglum eru þó í
gildi í einstökum löndum.
Könnun á stöðu þessara mála
í Evrópu var fyrst gerð af EurEau,
landssamtökum vatnsveitna og
skólphreinsunarmála árið 2009
(European Federation of National
Associations of Drinking Water
Suppliers and Wastewater Services).
Í nýrri könnun sem gerð var 2017
kom fram að þó miklar framfarir hafi
átt sér stað væri samt full ástæða til
aðgæslu á sumum svæðum.
18.000 skólphreinsistöðvar og
68,4% af skólpinu fullhreinsað
Í könnuninni kom fram að 18.000
skólphreinsistöðvar af ýmsum
stærðum voru þá starfræktar í allri
Evrópu. Þar kemur líka fram að
upplýsingagjöf um meðferð á skólpi
er víða mjög ábótavant og tölur
um ýmsa liði vantaði frá nokkrum
löndum. Eigi að síður segir að 3,1% af
skólpinu sé meðhöndlað með forstigs,
eða eins þreps hreinsun. (Líkt og
gert er með nær 100% af skólpinu
frá höfuðborgarsvæðinu á Íslandi).
Tveggja þrepa hreinsun var á 28,5% af
skólpinu og fullhreinsun, eða það sem
nefnt er „tertiary level“ var á 68,4% af
skólpinu. Þessi skilgreining „tertiary“
var þó ekki sögð viðurkennd sem slík
í leiðbeiningum um frárennslismál,
„Urban Wastewater Treatment
Direction – UWWTD“.
Meðhöndlaða hratið frá
skólphreinsistöðvunum var að 49,2%
hluta nýtt sem áburður í landbúnaði,
en 24,9% var brennt. Þá fór 12,4% til
uppgræðslu og 8,7% í landfyllingar.
Niðurstaðan er að 95% íbúa
í Evrópu hafa aðgengi að hreinu
drykkjarvatni og hjá þeim er skólp
endurunnið og veitt að nýju út í
náttúruna með öruggum hætti. Þá er
skólphreinsunin líka víða nýtt til að
framleiða metangas.
Með 4,2 milljóna kílómetra
vatnsveitukerfi
Þess má til gamans geta að í könn un
EurEau kom einnig fram að vatns-
veitukerfið í Evrópu er um 4,2
milljónir kílómetra, eða 11 sinnum
vegalengdin frá jörðinni til tungls-
ins. Um þetta kerfi renna árlega
44,7 milljarðar rúmmetra af vatni.
Það þýðir samkvæmt könnuninni að
hver einasti íbúi Evrópu noti að með-
altali 128 lítra af vatni á dag, þá er allt
með talið, iðnaður og annað. Víða er
það miklu minna og á öðrum stöðum
meira. Til samanburðar þá er meðal-
notkun á vatni á reykvískum heim-
ilum um 165 lítrar á dag, sem er það
mesta sem þekkist á Norðurlöndum
samkvæmt tölum Samorku. Rétt
er að taka fram að ýmiss konar at-
vinnustarfsemi notar margfalt meira
af vatni.
Hverju ætla menn að svara?
Í ljósi áherslu annarra þjóða varðandi
skólphreinsun er áhugavert að hugsa
til þess að engin áform séu uppi um
aukna skólphreinsun á Íslandi. Það
er líka áhugavert að velta því fyrir
sér hverju menn ætla að svara þegar
erlendir ferðamenn, sem eru afar
vel meðvitaðir um hreinleikaímynd
landsins, fara að spyrja um ástand
skólpmála hér á landi.
Þetta er einmitt spurning sem
ferðamálafrömuðir eru farnir að
spyrja í auknum mæli um allan
heim, eins og í Malasíu þar sem mikil
aukning varð í ferðaþjónustu upp úr
2013. Þar hefur aukin skólpmengun
m.a. leitt til mengunar grunnvatns og
vatnsbóla. Eða eins og fram kemur í
greininni á vef IGI Global.
Mengun skólps hefur í för með
sér hættu bæði fyrir heilsu manna og
umhverfið, svo sem:
• Hætta fyrir heilsu manna vegna
sýkla, baktería, vírusa og eitur-
efna sem skila sér út í þörunga-
blóma í hafinu.
• Hætta sem skólp getur skapað
fyrir margvíslega ferðaþjónustu.
• Hætta fyrir lífríki sjávar, lífríki
vatns, dýralíf og fleira.
Bandaríkjamenn vöktu
athygli á skólp- og sorpmálum
fyrir rúmum 70 árum
Ýmsir aðrir samningar hafa verið
gerðir til að stemma stigu við losun
úrgangsefna í hafið. Þar má t.d. nefna
London Convention frá 1972 sem gert
var að frumkvæði Bandaríkjamanna
sem höfðu áhyggjur af losun úr-
gangsefna í hafið á árunum frá 1950
til 1980. Í þessu samkomulagi segir
m.a.:
„Samningsaðilar skulu hver og
einn stuðla að virkri stjórn á öllum
uppsprettum mengunar sjávarum-
hverfisins, og beita sér sérstaklega
til að taka öll framkvæmanleg skref
til að koma í veg fyrir mengun sjávar
með því að henda úrgangi og öðru
efni sem er til þess fallið að skapa
hættu fyrir heilsu manna, skaða líf-
ríki sjávar, eða trufla aðra lögmæta
notkun hafsins.“
Fastur úrgangur frá
sveitar félögum í heiminum yfir
2 milljarðar tonna á ári
Samkvæmt gögnum Alþjóða bankans
verða til 2,01 milljarður tonna af
föstum úrgangi í sveitarfélögum
heimsins á hverju ári. Að minnsta
kosti 33 prósent af því er ekki með-
höndlað á umhverfisvænan hátt. Á
heimsvísu er úrgangur sem myndast
á mann á dag að meðaltali 0,74 kíló
en er víða, frá 0,11 til 4,54 kílóum
á mann. Líklega er úrgangurinn frá
Íslendingum með því mesta sem
þekkist.
Þótt í hátekjulöndum búi aðeins
um 16% jarðarbúa, þá framleiða þeir
um 34 prósent, eða 683 milljónir
tonna, af úrgangi heimsins.
Þegar horft er fram á við er búist
við að úrgangur á heimsvísu muni
aukast í 3,40 milljarða tonna árið
2050, sem er meira en tvöföld fólks-
fjölgun á sama tíma.
Á heildina litið er að mati
Alþjóðabankans jákvæð fylgni milli
myndunar úrgangs og tekjustigs.
Spáð er að framleiðsla úrgangs á
hvern íbúa í hátekjulöndum aukist
um 19 prósent árið 2050 samanborið
við lág- og meðaltekjulönd þar sem
búist er við að það aukist um um það
bil 40% eða meira.
Úrvinnsla úrgangs minnkar
upphaflega við lægstu tekjurnar og
eykst síðan hraðar til aukinna tekju-
breytinga við lágar tekjur en við háar
tekjur. Reiknað er með að heildar-
magn úrgangs sem myndast í lág-
tekjulöndum aukist meira en þrisvar
sinnum árið 2050. Austur-Asía og
Kyrrahafssvæðið búa til mestan
úrgang heimsins, 23 prósent, og Mið-
Austurlönd og Norður-Afríka fram-
leiða minnst, 6 prósent. Samt sem
áður eru svæðin sem vaxa hraðast í
Afríku sunnan Sahara, Suður-Asíu
og Mið-Austurlöndum og Norður-
Afríku, þar sem gert er ráð fyrir
að árið 2050 verði heildarúrgangur
meira en þrefaldur, tvöfaldur og tvö-
faldur. Á þessum svæðum er meira en
helmingur úrgangs um þessar mundir
afhentur með opnum hætti og ferlar
vaxtar úrgangs munu hafa mikil áhrif
á umhverfi, heilsu og velmegun og
krefjast þess vegna brýnna aðgerða.
Meðhöndlun á skólpi
og vatnsendurvinnsla er
vaxandi iðnaður
Meðhöndlun á skólpi og
vatnsendurvinnsla er víða stór
iðnaður og fer vaxandi. Samkvæmt
skýrslunni „Water And Sewage
Global Market Report 2021“ þá mun
þessi geiri vaxa árlega á heimsvísu
um 5,5%, eða úr 501,8 milljörðum
dollara árið 2020 í 529,5 milljarða
dollara á árinu 2021. Er stærsti hluti
vaxatarins nú sagður tilkominn vegna
endurskipulagningar fyrirtækja vegna
COVID-19 faraldursins. Faraldurinn
hefur einmitt opnað augu manna fyrir
mikilvægi skólphreinsunar til að hefta
útbreiðslu sjúkdómsfaraldra. Gert er
ráð fyrir að veltan á þessum markaði
verði komin í 711,1 milljarða dollara
árið 2025.
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
Mikið úrval varahluta í Ifor Williams
og allar aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum
Skólphreinsistöð í Amersfoort í Hollandi, þar sem íbúafjöldinn er um 146
þúsund. Stöðin var tekin í notkun 2013.
Bandaríkjamenn hafa verið ásakaðir um ýmsa hluti er varðar slæma
umgengni um náttúruna, ekki síst í loftslagsmálum. Þeir byrjuðu samt
um miðja síðustu öld að hvetja þjóðir heims til að koma í veg fyrir að
úrgangsefni frá margvíslegri starfsemi manna endaði í hafinu. Hér er ein af
14 skólphreinsistöðvum New York-borgar.