Bændablaðið - 12.05.2021, Qupperneq 21

Bændablaðið - 12.05.2021, Qupperneq 21
Bændablaðið | Miðvikudagur 12. maí 2021 21 og líffræðilegan fjölbreytileika hafsvæðisins og að endur- heimta, þar sem það er gerlegt, hafsvæði sem hafa orðið fyrir skaða. b. Vinna saman að því að gera áætlanir og ráðstafanir í þeim tilgangi að hafa stjórn á athöfnum manna sem skilgreindar eru með beitingu viðmiðana í 3. viðauka samningsins.“ Það eru óhreinindi á fínu hreinleikaímyndinni Samkvæmt þessu er alveg ljóst að Íslendingar eru ekki að uppfylla skyldur sínar gagnvart OSPAR samningnum í ljósi þess að aðeins 4% sveitarfélaga á Íslandi með meira en 2.000 íbúa eru með tveggja þrepa hreinsun á skólpi sem frá þeim rennur í hafið. Tveggja þrepa hreinsun er í raun það sem mætti kalla lágmarks- hreinsun úrgangsefna úr skólpi. Fyrsta stigs hreinsun á skólpi sem notuð er í 56% sveitarfélaga á Íslandi með 2.000 íbúa eða fleiri, felur eiginlega ekki annað í sér en að grófhreinsa rusl til að koma í veg fyrir að dælubúnaður skólpdælu- stöðva stöðvist. Samt skilar þetta um 120 tonnum af rusli sem sturt- að er í klósettin og fer í „hreinsi-“- dælustöðvar í Klettagörðum og Ánanaustum í Reykjavík á ári. Það hefur síðan verið urðað í Álfsnesi. Engin hreinsun í 40% sveitarfélaga með yfir 2.000 íbúa Þá hlýtur það að teljast skelfileg staða að 40% sveitarfélaga með meira en 2.000 íbúa í landi sem státar af hreinni matvælafram- leiðslu og hrósar sér af hreinu hafi og umhverfi, eru ekki með eina ein- ustu hreinsun á sínu skólpi. Það er sannarlega kúkur á fínu hreinleikaí- myndinni sem Íslendingar verða, samkvæmt alþjóðlegum skuld- bindingum, að þrífa upp eftir sig. Coca-Cola sýnir gott fordæmi Víða í stórborgum erlendis má sjá gríðarstórar fjögurra þrepa skólp- hreinsistöðvar þar sem öll snefilefni eru gerð óvirk og vatnið hreinsað þar til það er nothæft að nýju til áveitu og jafnvel sem drykkjar- vatn. Hér í Bændablaðinu hefur verið fjallað um eina hreinsistöð á Íslandi sem hefur þessa eiginleika, en hún er í eigu Vífilfells (Coca- Cola) í Reykjavík og hreinsar allt affall og skólp sem frá verksmiðj- unni kemur. Til að sýna fólki fram á hreinleikann á vatninu sem þar er hreinsað er vatnið frá stöðinni m.a. notað í fiskabúr. Þessi stöð var reist samkvæmt stefnu Coca-Cola Company sem tekin var upp árið 2007 um að allt vatn sem notað er í verksmiðjum fyrirtækisins skyldi 100% endurunnið. Þó Íslendingar geti enn státað af nægu hreinu vatni, þá er það ekki svo með allar aðrar þjóðir. Þannig hefur Coca-Cola t.d sett upp 500 hreinsistöðvar í Indlandi sem skila yfir 25 milljörðum lítra af hreinu vatni aftur út í samfélagið til neyslu. Aukin vitund í heiminum um mikilvægi skólphreinsunar Á vefsíðu IGI Global má sjá grein um mikilvægi skólphreinsunar í ljósi sögunnar, vaxandi mannfjölgunar og aukinnar ferðaþjónustu. Þar segir að skólpmál hafi svo sem ekki verið mikið áhyggjuefni manna fyrir tvö hundruð árum eða svo þegar íbúa- tala jarðar var „einungis“ um einn milljarður. Með vaxandi fólksfjölda þar sem jarðarbúar eru nú nálægt 7,6 milljörðum og stórauknu þétt- býli er lykilatriði að stunduð sé hreinsun á skólpi. Þá hafa stóraukin ferðalög fólks líka aukið áherslur á að þessir þættir séu í lagi sem og meðvitund sem vaknað hefur vegna COVID-19 faraldursins um smithættu af skólpi. Strangar reglur í Evrópu Í Evrópusambandinu hafa verið í gildi reglur um meðferð skólps í þéttbýli sem byggðar eru á regluverki sem tekið var upp í maí 1991. Ýmis sérafbrigði af þeim reglum eru þó í gildi í einstökum löndum. Könnun á stöðu þessara mála í Evrópu var fyrst gerð af EurEau, landssamtökum vatnsveitna og skólphreinsunarmála árið 2009 (European Federation of National Associations of Drinking Water Suppliers and Wastewater Services). Í nýrri könnun sem gerð var 2017 kom fram að þó miklar framfarir hafi átt sér stað væri samt full ástæða til aðgæslu á sumum svæðum. 18.000 skólphreinsistöðvar og 68,4% af skólpinu fullhreinsað Í könnuninni kom fram að 18.000 skólphreinsistöðvar af ýmsum stærðum voru þá starfræktar í allri Evrópu. Þar kemur líka fram að upplýsingagjöf um meðferð á skólpi er víða mjög ábótavant og tölur um ýmsa liði vantaði frá nokkrum löndum. Eigi að síður segir að 3,1% af skólpinu sé meðhöndlað með forstigs, eða eins þreps hreinsun. (Líkt og gert er með nær 100% af skólpinu frá höfuðborgarsvæðinu á Íslandi). Tveggja þrepa hreinsun var á 28,5% af skólpinu og fullhreinsun, eða það sem nefnt er „tertiary level“ var á 68,4% af skólpinu. Þessi skilgreining „tertiary“ var þó ekki sögð viðurkennd sem slík í leiðbeiningum um frárennslismál, „Urban Wastewater Treatment Direction – UWWTD“. Meðhöndlaða hratið frá skólphreinsistöðvunum var að 49,2% hluta nýtt sem áburður í landbúnaði, en 24,9% var brennt. Þá fór 12,4% til uppgræðslu og 8,7% í landfyllingar. Niðurstaðan er að 95% íbúa í Evrópu hafa aðgengi að hreinu drykkjarvatni og hjá þeim er skólp endurunnið og veitt að nýju út í náttúruna með öruggum hætti. Þá er skólphreinsunin líka víða nýtt til að framleiða metangas. Með 4,2 milljóna kílómetra vatnsveitukerfi Þess má til gamans geta að í könn un EurEau kom einnig fram að vatns- veitukerfið í Evrópu er um 4,2 milljónir kílómetra, eða 11 sinnum vegalengdin frá jörðinni til tungls- ins. Um þetta kerfi renna árlega 44,7 milljarðar rúmmetra af vatni. Það þýðir samkvæmt könnuninni að hver einasti íbúi Evrópu noti að með- altali 128 lítra af vatni á dag, þá er allt með talið, iðnaður og annað. Víða er það miklu minna og á öðrum stöðum meira. Til samanburðar þá er meðal- notkun á vatni á reykvískum heim- ilum um 165 lítrar á dag, sem er það mesta sem þekkist á Norðurlöndum samkvæmt tölum Samorku. Rétt er að taka fram að ýmiss konar at- vinnustarfsemi notar margfalt meira af vatni. Hverju ætla menn að svara? Í ljósi áherslu annarra þjóða varðandi skólphreinsun er áhugavert að hugsa til þess að engin áform séu uppi um aukna skólphreinsun á Íslandi. Það er líka áhugavert að velta því fyrir sér hverju menn ætla að svara þegar erlendir ferðamenn, sem eru afar vel meðvitaðir um hreinleikaímynd landsins, fara að spyrja um ástand skólpmála hér á landi. Þetta er einmitt spurning sem ferðamálafrömuðir eru farnir að spyrja í auknum mæli um allan heim, eins og í Malasíu þar sem mikil aukning varð í ferðaþjónustu upp úr 2013. Þar hefur aukin skólpmengun m.a. leitt til mengunar grunnvatns og vatnsbóla. Eða eins og fram kemur í greininni á vef IGI Global. Mengun skólps hefur í för með sér hættu bæði fyrir heilsu manna og umhverfið, svo sem: • Hætta fyrir heilsu manna vegna sýkla, baktería, vírusa og eitur- efna sem skila sér út í þörunga- blóma í hafinu. • Hætta sem skólp getur skapað fyrir margvíslega ferðaþjónustu. • Hætta fyrir lífríki sjávar, lífríki vatns, dýralíf og fleira. Bandaríkjamenn vöktu athygli á skólp- og sorpmálum fyrir rúmum 70 árum Ýmsir aðrir samningar hafa verið gerðir til að stemma stigu við losun úrgangsefna í hafið. Þar má t.d. nefna London Convention frá 1972 sem gert var að frumkvæði Bandaríkjamanna sem höfðu áhyggjur af losun úr- gangsefna í hafið á árunum frá 1950 til 1980. Í þessu samkomulagi segir m.a.: „Samningsaðilar skulu hver og einn stuðla að virkri stjórn á öllum uppsprettum mengunar sjávarum- hverfisins, og beita sér sérstaklega til að taka öll framkvæmanleg skref til að koma í veg fyrir mengun sjávar með því að henda úrgangi og öðru efni sem er til þess fallið að skapa hættu fyrir heilsu manna, skaða líf- ríki sjávar, eða trufla aðra lögmæta notkun hafsins.“ Fastur úrgangur frá sveitar félögum í heiminum yfir 2 milljarðar tonna á ári Samkvæmt gögnum Alþjóða bankans verða til 2,01 milljarður tonna af föstum úrgangi í sveitarfélögum heimsins á hverju ári. Að minnsta kosti 33 prósent af því er ekki með- höndlað á umhverfisvænan hátt. Á heimsvísu er úrgangur sem myndast á mann á dag að meðaltali 0,74 kíló en er víða, frá 0,11 til 4,54 kílóum á mann. Líklega er úrgangurinn frá Íslendingum með því mesta sem þekkist. Þótt í hátekjulöndum búi aðeins um 16% jarðarbúa, þá framleiða þeir um 34 prósent, eða 683 milljónir tonna, af úrgangi heimsins. Þegar horft er fram á við er búist við að úrgangur á heimsvísu muni aukast í 3,40 milljarða tonna árið 2050, sem er meira en tvöföld fólks- fjölgun á sama tíma. Á heildina litið er að mati Alþjóðabankans jákvæð fylgni milli myndunar úrgangs og tekjustigs. Spáð er að framleiðsla úrgangs á hvern íbúa í hátekjulöndum aukist um 19 prósent árið 2050 samanborið við lág- og meðaltekjulönd þar sem búist er við að það aukist um um það bil 40% eða meira. Úrvinnsla úrgangs minnkar upphaflega við lægstu tekjurnar og eykst síðan hraðar til aukinna tekju- breytinga við lágar tekjur en við háar tekjur. Reiknað er með að heildar- magn úrgangs sem myndast í lág- tekjulöndum aukist meira en þrisvar sinnum árið 2050. Austur-Asía og Kyrrahafssvæðið búa til mestan úrgang heimsins, 23 prósent, og Mið- Austurlönd og Norður-Afríka fram- leiða minnst, 6 prósent. Samt sem áður eru svæðin sem vaxa hraðast í Afríku sunnan Sahara, Suður-Asíu og Mið-Austurlöndum og Norður- Afríku, þar sem gert er ráð fyrir að árið 2050 verði heildarúrgangur meira en þrefaldur, tvöfaldur og tvö- faldur. Á þessum svæðum er meira en helmingur úrgangs um þessar mundir afhentur með opnum hætti og ferlar vaxtar úrgangs munu hafa mikil áhrif á umhverfi, heilsu og velmegun og krefjast þess vegna brýnna aðgerða. Meðhöndlun á skólpi og vatnsendurvinnsla er vaxandi iðnaður Meðhöndlun á skólpi og vatnsendurvinnsla er víða stór iðnaður og fer vaxandi. Samkvæmt skýrslunni „Water And Sewage Global Market Report 2021“ þá mun þessi geiri vaxa árlega á heimsvísu um 5,5%, eða úr 501,8 milljörðum dollara árið 2020 í 529,5 milljarða dollara á árinu 2021. Er stærsti hluti vaxatarins nú sagður tilkominn vegna endurskipulagningar fyrirtækja vegna COVID-19 faraldursins. Faraldurinn hefur einmitt opnað augu manna fyrir mikilvægi skólphreinsunar til að hefta útbreiðslu sjúkdómsfaraldra. Gert er ráð fyrir að veltan á þessum markaði verði komin í 711,1 milljarða dollara árið 2025. VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is Mikið úrval varahluta í Ifor Williams og allar aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum Skólphreinsistöð í Amersfoort í Hollandi, þar sem íbúafjöldinn er um 146 þúsund. Stöðin var tekin í notkun 2013. Bandaríkjamenn hafa verið ásakaðir um ýmsa hluti er varðar slæma umgengni um náttúruna, ekki síst í loftslagsmálum. Þeir byrjuðu samt um miðja síðustu öld að hvetja þjóðir heims til að koma í veg fyrir að úrgangsefni frá margvíslegri starfsemi manna endaði í hafinu. Hér er ein af 14 skólphreinsistöðvum New York-borgar.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.