Bændablaðið - 12.05.2021, Page 39
Bændablaðið | Miðvikudagur 12. maí 2021 39
Er að leita að kúabúi í fullum rekstri á Suðurlandi
eða Vesturlandi fyrir áhugasaman, fjársterkan aðila
sem þekkir slíkan rekstur mjög vel.
Allar nánari upplýsingar veitir
Björgvin Guðjónsson búfræðingur
og löggiltur fasteignasali í síma
615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is.
KÚABÚ
Í FULLUM
REKSTRI
Hugleiðingar um gróðurfar í bratta, skriðuhættu og beit
Á ferðum um landið verður manni
stundum litið til fjalla. Víða má
sjá varnargarða til að verja byggð
fyrir snjóflóðum, en á og allt um
kring um garðana eru fallegar
breiður af lúpínu.
Alkunna er að lúpína er dugleg
planta af belgjurtaætt sem býr við
þann mikla kost að vera í ,,samlífi“
með bakteríum. Bakteríurnar binda
köfnunarefni úr andrúmsloftinu, sem
lúpínan getur nýtt sér til vaxtarauka,
en þær fá ýmis stein- og snefilefni
í staðinn í hnúðum á rótarkerfi
plöntunnar. Lúpínan bindur mikið
af kolefni og skilur eftir sig ómælt
magn lífrænna efna í hlíðunum. Þær
rotna og verða að lífrænum jarðvegi.
Efni í jarðvegsskriður,
aurskriður?
Lífrænar leifar plantna aukast með
árunum, fái þær að vaxa í friði, skilja
mikið eftir sig og jarðvegurinn verður
æ þykkari með hverju árinu sem
líður. Saman við allar plöntuleifar,
sem smám saman verða að mold,
blandast ólífrænt efni frá veðrun
bergs á svæðinu. Eftir nokkur ár,
kannski 20, 30 eða 40 ár, er þessi
jarðvegur orðinn mjög þykkur. Það
sest snjór í dauðar leifar af stönglum
og blöðum plantnanna, massinn
getur haldið í sér miklu magni af
raka, eins og annar lífrænn jarðvegur.
Eftir asahláku og/eða grenjandandi
rigningu, getur allt farið á flot. Þá
er viðbúið að eitthvað gerist. Það er
allavega ekki ráðlegt þeim sem búa
undir brattri fjallshlíð, að planta eða
sá lúpínu í hlíðarnar ofan við bæinn.
Helst ekki í neinar hlíðar.
Skriðuföllin í Seyðisfirði
Eins og kunnugt er féllu margar
aurskriður, stórar og smáar í
Seyðisfirði 18. desember 2020. Þær
ollu gífurlegu tjóni á mannvirkjum
og menningarminjum, en enginn
fórst í þessum hamförum. Það var
mikil mildi.
Rétt er að rifja upp hvað það er
sem gerist þegar aurskriður eða jarð-
vegsskriður falla, eins og gerðist á
Seyðisfirði. Hvers vegna skapast
þær aðstæður að aur- eða jarðvegs-
skriður falla? Margt þarf til, en
allavega þarf að vera til staðar laus
vatnsdrægur jarðvegur, lífrænn eða
ólífrænn. Samkvæmt áreiðanlegum
upplýsingum kunnugra heimamanna
er óhætt að fullyrða að með sáningu
lúpínu þarna fyrir um 30 árum hafi
lífræni hluti í efsta lagi jarðvegsins
farið mjög vaxandi, einkum vegna
rotnandi lífrænna leifa lúpínunnar.
Jurtaleifar þessar verða fljótt að fljót-
andi eðju í mikilli rigningu, eins og
tilfellið var s.l. haust á Seyðisfirði.
Frostleysi í ólífræna jarðveginum
þar undir blotnaði þá einnig upp og
vatnssósa og níðþung lífræn eðjan
hefur farið að skríða með þeim
afleiðingum að allt fór af stað.
Áreiðanlegar heimildir herma, að
einar 23 stórar og smáar aurskriður
hafi fallið þennan örlagaríka dag,
sem allar féllu úr lúpinugrónum
hlíðum ofan við kaupstaðinn.
Auðvitað fer því fjarri, eins og
margreynt er, ekki síst í Seyðisfirði,
að hægt sé að draga þá ályktun að
aurskiður falli ekki úr lítt eða ógrón-
um hlíðum, og má í því sambandi
minnast á allstóra aurskriðu, sem
féll úr fjalllendi Selstaða í norðan-
verðum Seyðisfirði í þessu ótrúlega
vatnsveðri. Sú skriða kom kunnug-
um þó ekki alls kostar á óvart sökum
aðstæðna í fjallshlíðinni, þar sem
upptök hennar voru.
Hér er rétt að vitna í umræður á
18. og 19. fundi umhverfis- og fram-
kvæmdanefndar Ísafjarðarbæjar,
samkvæmt fundargerðum. Á 18.
fundi var rætt um aðsendan tölvu-
póst sem varðaði ... ,,samhengi
gróðurs og flóðahættu.“ Á 19. fundi
segir umhverfisfulltrúi bæjarins,
Svisslendingurinn Ralf Tylla, vegna
reynslu sinnar frá heimalandinu:
,,Í brattri brekku þar sem mikið
er af lúpínu býr hún til jarðveg ...
Þegar blotnar .... Spurningin er hvað
þarf til að slíkt fari af stað.“ – Enn
fremur:
,,Þetta snýst ekki bara um jarð-
skrið heldur líka hvort meiri líkur
séu á snjóflóðahættu ef plöntur eru
ofan á. Dæmi um þetta eru meðal
annars frá Sviss,“ sagði Ralf Tylla
á téðum fundi umhvefis- og fram-
kvæmdanefndar Ísafjarðarbæjar.
Eins og fram kemur í fyrirsögn
þessa pistils er hér aðeins um hug-
leiðingar að ræða út frá téðum
aðstæðum og upplýsingum kunn-
ugra, en vissulega hafa fleiri en við
sem skrifum þennan pistil velt fyrir
sér áhrifum af gróðri í bröttum fjalls-
hlíðum á skriðu- og snjóflóðahættu,
eins og tilvitnunin frá Ísafirði hér að
framan ber með sér. - Eigi veldur
sá er varar.
Að lokum nokkur orð
um gróður og beit
Sem gróðurverndarsinnar teljum
við gróskumikinn gróður víðast
hvar æskilegan, en eins og fram
hefur komið, getur of mikið af
plöntuleifum verið varasamar í
brattri hlíð. Beit getur breytt þessu
mynstri verulega, m.a. af eftirtöldum
ástæðum:
1. Tegundasamsetningin breytist.
Einærar plöntur og blómjurtir
hverfa að mestu.
2. Plöntur sem þola beit ná
yfirhöndinni. Þær hafa yfirleitt
jarðlæga stöngla, mynda þéttan,
styrkan svörð, sem helst vel
saman. Þannig plöntur eru oftast
notaðar á knattspyrnuvöllum,
mynda sterkan svörð og þola
að vera slegnar oft, með stuttu
millibili. Þola traðk og beit.
3. Beit þéttir jarðveginn og gerir
hann fastari fyrir, ekki síst í
bratta.
4. Sina verður minni og snjór
safnast því síður í gróðurleifar.
5. Miklið af lausum gróðurleifum
hindra að frost fari ofan í
jarðveginn. Hann þiðnar því fyrr
og blotnar í gegn og verður að
leðju. Það eykur skriðuhættu.
6. Sé jarðvegurinn frosinn rennur
vatnið óhindrað niður hlíðina.
Af framansögðu telja höfundar ekki
ráðlegt að sá lúpínu í brattar hlíðar
ofan byggðar, en til bóta að koma
þar upp beitargróðri og viðhalda
honum með hóflegri beit. Svipað
þessu kom fram í Vestmannaeyjum
með flutningi fjár í Eyjarnar eftir
meira og minna fjárleysi í kjöl-
far gossins. Myndaðist þá þéttari
gróður þar vegna beitarinnar í stað
óæskilegs gróðurs, sinu og ekki síst
jarðvegslosi, sem síðan færðist til
betra horfs eftir fjártöku.
Þessu til stuðnings er fróðlegt
að vitna í eftirfarandi kafla úr
afar áhugaverðri grein eftir Önnu
Guðrúnu Þórhallsdóttur, prófess-
or við Háskólann á Hólum, sem
fjallar um náttúrulega og sjálfbæra
beitarræktun, sem jafnframt bindur
mikið kolefni, sem enginn áhuga-
samur ætti að láta fram hjá sér fara
(Bændablaðið 30.04. 2021):
,,Sú hugmynd hefur komið fram
og er lífseig að ekki sé æskilegt að
beita í halla þar sem beitin valdi
rofi – að brekkur og halla þurfi
að friða. Við friðun slíkra svæða
minnkar hlutdeild grasa en mosi
og fléttur koma inn í staðinn. Þar
sem mosi og fléttur hafa ekki eig-
inlegar rætur gisnar svörðurinn,
jarðvegurinn verður lausari og fer
að síga niður hallann. Mikilvægi
beitar til að viðhalda þéttum sverði í
brekkum og miklum halla sést best í
Svissnesku ölpunum þar sem selja-
búskapur hefur verið stundaður í
hundruð – ef ekki þúsundir ára.
Brattar brekkur Svissnesku alpanna
eru víðast grasi grónar – og þar er
þéttur og sterkur svörður sem er
viðhaldið af beitardýrum sem ganga
þar sumarlangt.“
Sveinn Hallgrímsson
Þórarinn Lárusson
SAMFÉLAGSRÝNI
Mynd 1. Gróður, aðallega lúpinubreiður, ofan við Seyðisfjarðarkaupstað 23.
september 2019. Strandatindur rís upp úr þokunni t.v.
Myndir / Ómar Bogason
Mynd 2. Tekin af Búðarárfossi og árgilinu 18. júlí 2020. - Strandatindur sést
gnæfa þar yfir, en úr hlíðum hans hafa oft fallið skriður og einmitt varað
við slíku nú í frostþíðu.
Ársfundur 2021
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda verður haldinn föstudaginn
28. maí 2021 kl. 14 að Stórhöfða 23, 4. hæð, Reykjavík.
Dagskrá:
▪ Venjuleg ársfundarstörf.
▪ Stjórnarkjör skv. samþykktum.
▪ Önnur mál.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til fundarsetu.
Stjórn Lífeyrissjóðs bænda
Lífeyrissjóður bænda - Stórhöfða 23 - 110 Reykjavík
Sími 563 1300 - lsb@lsb.is - www.lsb.is
Sveinn Hallgrímsson. Þórarinn Lárusson.