Skessuhorn


Skessuhorn - 17.02.2021, Side 4

Skessuhorn - 17.02.2021, Side 4
MIÐVIKUDAGUR 17. febRúAR 20214 Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 3.877 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 3.348. Rafræn áskrift kostar 3.040 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.800 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is Finnbogi Rafn Guðmundsson frg@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Eldgamla ísafold fyrr í þessum mánuði sá ég áhugavert viðtal í fréttum Ríkissjónvarpsins við fjóra nemendur í tíunda bekk Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. fréttin var um að þau höfðu stofnað félagið Menntakerfið okkar sem hefur það mark- mið að krefjast breytinga á námskrá grunnskólanna. Í spjallinu kom fram að þegar ungmennin litu til baka, nú við lok grunnskólagöngunnar, segja þau að margt hefðu þau átt að hafa lært sem þau gerðu ekki og söknuðu þess mjög. Þetta unga fólk kom fagmannlega út í þessu spjalli, kurteis og málefnaleg og voru því trúverðug. Meðal annars sögðust krakkarnir sakna kennslu í fjármálalæsi, heilbrigðisfræðslu og tölvufræði, vinnurétti og lestri launaseðla. Hvernig eru til dæmis lífeyrissjóðirnir uppbyggðir og til hvers að greiða gjald til stéttarfélaga? bentu þau réttilega á að ekki væri hægt að ætlast til þess að allir geti lært þetta heima hjá sér. Þá hefðu krakkarnir nú við lok grunnskólans viljað vita meira um geðheilsu, samskipti kynjanna, málefni líðandi stundar og hefðu kosið að hafa fengið meiri starfsfræðslu til að vita hvert hugurinn ætti að stefna varðandi frekara nám. Það síðast- nefnda er einmitt sérlega mikilvægt atriði því hér gilda evrópulög þess efn- is að krökkum er hreinlega bannað að vinna og hvernig eiga þau þá að vita hvert eigi að stefna? Ég vil strax taka það fram að ég er alls enginn sérfræðingur í fræðslu- eða kennslumálum. Hef sjálfur forðast hverskyns endurmenntun og nám frá því ég lauk háskólaprófi fyrir aldarfjórðungi síðan. Hins vegar hef ég oft horft yfir öxlina á bæði börnum og eldri sem hafa verið að læra hitt og þetta. en þrátt fyrir kosti menntakerfisins er ekkert kerfi svo fullkomið eða gott að það megi ekki bæta. Held reyndar að það eigi við um öll skólastig. Þá er staðreyndin sú að flestir reyna að halda sig innan tiltekins þæginda- ramma í lífinu og kannski af þeim sökum verða breytingar í námskrám skóla hægari en breytingarnar í samfélaginu, utan veggja skólanna. Hvort sem það eru þeir sem ákveða hvaða kennsluefni skuli lagt fyrir, semja það eða miðla því, þá gæti mögulega vantað meiri snerpu í mannskapinn. Í ein- hverjum tilfellum ná þó snarpir kennarar að nútímavæða námið en þurfa að halda sig innan ramma námskráa, sem er Nota bene einskonar ríkisvæðing þess námsefnis sem á að vera í boði. Ríkisvæðing námsefnis má hins vegar ekki verða svo geld og óháð að- stæðum að það taki áratugi að gera á henni breytingar. börnin í Víðistaða- skóla voru einmitt að benda á að í stað þess að vera að læra hvernig á að lesa launaseðla, þá voru þau látin læra utanbókar að það var bjarni Thoraren- sen sem samdi eldgamla ísafold. Í framhaldsskólum tekur svo lítið betra við þegar ungmennum á almennum bóknámsbrautum er kennd svo and- styggilega þung tölfræði að útilokað er í fyrsta lagi að þau geti lært hana og sömuleiðis er útilokað að hún komi þeim nokkru sinni að gagni úti í hinu daglega lífi, nema í tilfellum á að giska fimmtíu Íslendinga sem hafa töl- fræði að aðalstarfi. Til hvers þá að kenna þessa ópraktísku fræðigrein? Nú þegar við erum skilgreind á stað sem kallast fjórða iðnbyltingin ger- ast breytingar á ógnarhraða. ekki einvörðungu að gamlir kverúlantar eins og ég eigum bágt með að fylgja með, heldur eru kerfi eins og skólakerfi jafnvel í enn meiri vanda. Kannski af því spyrnt er við fótum, kannski af kerfislægum hægagangi. Af þeim sökum eigum við að galopna eyrun þegar ungt og vel gefið fólk á lokaári í grunnskóla kemur fram og tjáir sig með þeim hætti sem vísað var til. Þeirra er framtíðin og því hafa þau fullt leyfi til að setja fram gagnrýni á það sem þau snertir. Auðvitað eiga ungmenni við lok grunnskóla að búa yfir einhverri þekkingu í fjármálalæsi og hvernig eigi almennt að takast á við lífið utan veggja skólans. ef sú þekking verður til þess að þau viti ekki að bjarni Thorarensen samdi eldgamla ísafold árið 1818, þá verður bara svo að vera. Magnús Magnússon Hópbílar hf. sem sjá um utanbæjar- akstur fyrir Strætó bS eru um þess- ar mundir að taka í notkun fjóra nýja vagna á leið 57, sem ekur milli Reykjavíkur og Akureyrar með við- komu m.a. á Akranesi og borgar- nesi. Um er að ræða VDL vagna, 15 metra langa með 63 sætum. Að auki verður einn bílanna útbúinn með hjólastólalyftu. arg Í liðinni viku var komið með á Æð- arodda á Akranesi fyrstu límtrés- einingarnar í væntanlega reiðhöll hestamannafélagsins Dreyra. Reis- ing hófst svo í gær. Það er fast- eignafélag Akraneskaupstaðar sem verður formlegur eigandi hússins en gerður var langtímasamningur um reksturinn við Dreyra. Það er sambærilegt rekstrarform og milli Akraneskaupstaðar og Golfklúbbs- ins Leynis um frístundamiðstöð- ina við Garðavöll. Reiðhöllin verð- ur 1.125 fermetra límtréshús frá Límtré-Vírneti; 25 metra breitt og 45 metra langt. mm Að gefnu tilefni vill Matvælastofnun benda á mikilvægi þess að við lönd- un úr veiðiskipum og við flutning á afla sé komið í veg fyrir að fiskurinn verði fyrir utanaðkomandi mengun svo sem fugladriti. Þetta krefst þess að kör séu lokuð og að flutningur sé í lokuðum ökutækjum. einnig er ástæða til að benda sérstaklega á að fiskur sem af slysni fellur úr kari á bryggjuna er ekki hæfur til mann- eldis. Í veiðiflotann hafa á síðustu árum bæst við strandveiðibátar. „Strand- veiðar eru stundaðar um allt land yfir sumarið og fer löndun fram á höfnum hringinn í kringum landið. Löndun á fiski yfir sumarið er því umfangsmikil og brýnt að tryggja viðeigandi hreinlæti og kælingu frá veiði og þar til fiskurinn fer á borð neytenda,“ segir í tilkynningu. eftirlitsmenn Matvælastofnunar hafa víða orðið varir við óhreinindi í fiskikörum. einnig berast stofn- uninni reglulega kvartanir frá sjó- mönnum og fiskkaupendum um óhrein og skemmd löndunarkör. Kör sem notuð eru fyrir matvæli þurfa að vera hrein og er það ein- göngu tryggt með hreinsun eftir hverja notkun. Jafnframt er óæski- legt að nota fiskikör fyrir annað en matvæli. Kör til annarra nota skal merkja sem slík og ekki nota aftur fyrir matvæli. Hér eru birtar nokkrar mynd- ir sem eftirlitsmenn hafa tekið af körum á höfnum landsins. Um er að ræða kör sem eru í notkun sem fiskikör, ekki afskrifuð kör sem tek- in hafa verið afsíðis. Matvælastofn- un mun fylgjast áfram með ástandi kara og hvetur þá sem leggja kör fram til löndunar að minnast þess að körin eru ílát undir matvæli. mm/ Ljósm. MAST VDL vagn sem Hópbílar hf. hafa tekið í notkun fyrir leið 57 hjá Strætó. Ljósm. Guðjón Ólafsson. Nýir vagnar á leið 57 Fyrsta skóflustungan að húsinu var tekin 1. maí 2019. Hana framkvæmdu fulltrúar yngri og eldri hestamanna og sveitar- stjórna Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar. Ljósm. mm. Reising reiðhallar hafin á Akranesi Komið var með fyrstu einingar burðarvirkis reiðhallar síðastliðinn fimmtudag og hófst reising þeirra í gær. Ljósm. arg. Verja þarf landaðan afla fyrir fugli

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.