Skessuhorn


Skessuhorn - 17.02.2021, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 17.02.2021, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 17. febRúAR 202126 Pstiill - Geir Konráð Theódórsson Vel sótt reiðnámskeið á Brimilsvöllum Undanfarnar vikur hefur verið boðið upp á reiðnámskeið á brim- ilsvöllum í Snæfellsbæ. Leiðbein- endur á námskeiðunum eru hjón- in Gunnar Tryggvason, tamninga- maður í félagi tamningamanna, og Veronica Osterhammer. Þau hafa ræktað hross á brimilsvöllum ásamt því að vera með skipulagðar hesta- ferðir fyrir ferðamenn í yfir tuttugu ár. Þó aðal kennararnir á námskeið- unum séu hestarnir sjálfir, að sögn Veronicu, segir hún að það væri dýrmætt að geta boðið upp á þæga og vel tamda reiðhesta til að kenna knöpum framtíðarinnar hvernig samskipti knapa og hests eiga að vera. Voru námskeiðin mjög vel sótt og komust færri að en vildu. Að þessu sinni voru 23 þátt- takendur á námskeiðunum og er stefnt að því að halda fleiri. boð- ið var upp á hópatíma fyrir börn á aldrinum 8 til 15 ára, pollanám- skeið fyrir yngstu börnin og nám- skeið fyrir fullorðna byrjendur í hestamennsku. Hestamennska er mjög gefandi og sameinar útivist, félagsskap, tengingu við náttúr- una, hreyfingu og gleði og er það fyrst og fremst samveran, vináttan og samskipti við hrossin sem er það dýrmætasta við hestamennskuna. Á námskeiðunum lærðu þátttakend- ur að umgangast og hirða hesta, kemba þeim, leggja á og teyma. Þegar á bak var komið lærðu þátt- takendur grunnatriði reiðmennsku auk þess sem börnin fengu að njóta sín í leikjum á hestbaki eða í út- reiðatúrum í góða veðrinu. Segir Veronica að gleðilegt væri að sjá hvað áhuginn hjá yngri kynslóðinni er mikill fyrir hestamennskunni. þa Veronica með nokkrum af knöpum fram- tíðarinnar. Það gleður mig að tilkynna ykk- ur að ég hef eignast jörð í útlönd- um, þökk sé rausnarlegri gjöf frá bjarna frey frænda mínum. Sam- kvæmt vafasömu skjali af veraldar- vefnum sem hann sendi mér þá má ég núna kalla mig lávarð yfir þessari jörð - sem er að vísu bara túnblett- ur. Já, samkvæmt þessu skjali á Geir Konráð lávarður blettinn H573206 einhversstaðar í Wigtownshire í Skotlandi - þökk sé gamansömum útúrsnúningum á lögum og hefð- um í gegnum fyrirtækið establis- hed Titles. Þessi gjöf kom mér til að brosa út að eyrum, en þegar ég skoðaði skjalið nánar hugsaði ég að H573206 sé bara alls ekki nógu gott nafn á minni glæsilegu jörð, ég meina glæsilega bletti - ég allavega vona að bletturinn sé glæsilegur. Samkvæmt skjalinu munu mínir af- komendur erfa jörðina og titilinn, og ég tel þetta því kjörið tækifæri að nefna túnblettinn almennilega svo þetta verði kannski upphaf að þrusugóðu ættarnafni. Ættarnöfn hafa nefnilega heillað mig lengi þrátt fyrir þá staðreynd að á Íslandi eru ættarnöfn fátíð og aðeins leyfð með einhverjum und- antekningum í árans mannanafna- lögunum. Samkvæmt Árnastofnun eru yfir 600 ættarnöfn á skrá og ein- hver þúsund af Íslendingum bera einhverskonar ættarnafn. Mörg af þeim ættarnöfnum sem mér hefur þótt hljóma töff eru í raun afbökun á staðarheitum tengd ættinni. Til dæmis er blöndal afbökun á staðar- heitinu blöndudalur í Húnaþingi, briem er afbökun á staðarheitinu brjánslækur í barðarstrandarsýslu og Vídalín er afbökun á staðarheit- inu Víðidalur í Vestur-Húnavatns- sýslu. Ég hoppaði því á internetið og fór að skoða íslensk örnefni til að fá innblástur fyrir almennilegu nafni til að gefa túnblettinum mín- um, sem væri svo hægt að afbaka í eitthvað flott ættarnafn handa af- komendum mínum. Kortasja.lmi.is og vefsja.is eru al- veg hreint magnaðir vefir. Þarna er samansafn af opinberum gögnum sem birtast manni á auðskiljanlegan og myndrænan hátt. Viltu sjá helstu staði sem koma fram í Íslendinga- sögunum, smelltu þá á hnapp. Hvað með útbreiðslu alaskalúp- ínunnar á Íslandi, smelltu á ann- an hnapp. Deiliskipulög, virkjanir, jarðhitaholur, mikilvæg fuglasvæði, vörður, berjalönd, kvikmyndatöku- staðir, flutningskerfi raforku, göm- ul hrepparmörk, dönsk herforingja- ráðskort, þetta og svo miklu meira er þarna aðgengilegt fyrir alla að skoða. Það er margt sem freistar á þess- um síðum, en það voru örnefnin sem ég vildi skoða og því ferðaðist ég stafrænt vítt og breytt um land- ið í leit að áhugaverðum nöfnum. Ég gleymdi mér alveg. Klukkutím- um saman, eins og einhver yfirnátt- úruleg vera, þá gat ég flogið yfir landið á ógnarhraða og horft niður á hæstu fjöll, afskekktar eyjar, vötn og byggðir og vitað nöfnin á öllu sem ég vildi. ef ég vildi forvitnast um söguna á bakvið eitthvað nafn þá gat ég flett því upp á vefnum nafnid.is og séð þar heimildirnar á bakvið kortin. Oft var fátt um svör, en stundum kom skemmtileg skýr- ing á einhverju einföldu nafni. eins og að biskupshóll í Leirárssveit er nefndur eftir einhverjum bisk- up sem missti hest þar frá sér, en í stað þess að taka eitt eða tvö skref eins og sérhver almúgamaður hefði gert, þá frekar hlammaði hann sér á hólinn og beið þar í fýlu þar til fólk úr sveitinni kom með hesta handa honum. fýluskapur sem svo berg- málar niður aldirnar með þessari nafnagift. Ég rak augun í töff örnefni sem ég kannaðist við á þessum kortum, eins og Leggja- brjót, en það er best að passa sig því þegar ég smellti á kortið komu 5 staðir á Vesturlandi með þessu varasama nafni. Svo kom það mér á óvart að Drekkingarpyttur er rétt fyrir neðan Heiðarborg í Leir- árssveit þar sem ég vinn núna - ég veit ekki alveg með svona nafn rétt hjá sundlaug. en til að vega upp á móti þessu niðurdrepandi nafni þá fann ég Himnaríki, það þarf ekkert að spyrja prest um hvernig maður á að komast þangað, Himnaríki er bara rétt fyrir aftan Tjaldfell, milli Skjaldbreiðar og Þórisjökuls. eftir þó nokkra skoðun var niðurstaðan sú að það er fullt af glæsilegum ör- nefnum á Íslandi, mörg sem hljóma svo vel að ég vil gjarnan gera mér ferð sem fyrst til að skoða þessa staði. Glæsivellir, fagrihvammur, Unaðsdalur, fríðá, Gleðivík, Góð- hagar eða Skínandi, þetta eru nöfn sem eru verðug að tengjast lávarða- titlinum og mögulegu ættarnafni. en ég gat ekki ákveðið mig, fjöld- inn af þessum nöfnum gaf mér val- kvíða og ég vildi líka helst að nafnið væri úr því nærumhverfi sem mér þykir vænst um, það er að segja borgarfirðinum. Það er bara eitt að gera í svona stöðu. Loka augunum, hringla kortinu af borgarfirði til og frá í tölvunni, setja fingur á skjáinn, opna augun og láta nafnið bara ráð- ast af tilviljun. bölvað, fari það allt í opið og hurðarlaust horngrýti! Samkvæmt örlögunum er ég víst lávarðurinn af Æluengi í Skotlandi - nefnt eftir stað sem er skammt frá Handklæð- isholti hjá Hvanneyri í borgarfirði. Það verður einhvern veginn að af- baka þetta staðarheiti vel og vand- lega, annars heyri ég að mér bölv- að úr framtíðinni, afkomendurnir allir saman komnir á ættarmóti hjá Æluengjaættinni. Kannski best að breyta þessu strax í Sæluengi, það hljómar miklu betur. Geir Konráð Theódórsson Æluengi. Lávarður yfir óheppilega illa nefndu landi Lord Geirs papers.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.