Skessuhorn - 17.02.2021, Qupperneq 26
MIÐVIKUDAGUR 17. febRúAR 202126
Pstiill - Geir Konráð Theódórsson
Vel sótt reiðnámskeið á Brimilsvöllum
Undanfarnar vikur hefur verið
boðið upp á reiðnámskeið á brim-
ilsvöllum í Snæfellsbæ. Leiðbein-
endur á námskeiðunum eru hjón-
in Gunnar Tryggvason, tamninga-
maður í félagi tamningamanna, og
Veronica Osterhammer. Þau hafa
ræktað hross á brimilsvöllum ásamt
því að vera með skipulagðar hesta-
ferðir fyrir ferðamenn í yfir tuttugu
ár. Þó aðal kennararnir á námskeið-
unum séu hestarnir sjálfir, að sögn
Veronicu, segir hún að það væri
dýrmætt að geta boðið upp á þæga
og vel tamda reiðhesta til að kenna
knöpum framtíðarinnar hvernig
samskipti knapa og hests eiga að
vera. Voru námskeiðin mjög vel
sótt og komust færri að en vildu.
Að þessu sinni voru 23 þátt-
takendur á námskeiðunum og er
stefnt að því að halda fleiri. boð-
ið var upp á hópatíma fyrir börn
á aldrinum 8 til 15 ára, pollanám-
skeið fyrir yngstu börnin og nám-
skeið fyrir fullorðna byrjendur í
hestamennsku. Hestamennska er
mjög gefandi og sameinar útivist,
félagsskap, tengingu við náttúr-
una, hreyfingu og gleði og er það
fyrst og fremst samveran, vináttan
og samskipti við hrossin sem er það
dýrmætasta við hestamennskuna. Á
námskeiðunum lærðu þátttakend-
ur að umgangast og hirða hesta,
kemba þeim, leggja á og teyma.
Þegar á bak var komið lærðu þátt-
takendur grunnatriði reiðmennsku
auk þess sem börnin fengu að njóta
sín í leikjum á hestbaki eða í út-
reiðatúrum í góða veðrinu. Segir
Veronica að gleðilegt væri að sjá
hvað áhuginn hjá yngri kynslóðinni
er mikill fyrir hestamennskunni.
þa
Veronica með nokkrum
af knöpum fram-
tíðarinnar.
Það gleður mig að tilkynna ykk-
ur að ég hef eignast jörð í útlönd-
um, þökk sé rausnarlegri gjöf frá
bjarna frey frænda mínum. Sam-
kvæmt vafasömu skjali af veraldar-
vefnum sem hann sendi mér þá má
ég núna kalla mig lávarð yfir þessari
jörð - sem er að vísu bara túnblett-
ur. Já, samkvæmt þessu skjali á Geir
Konráð lávarður blettinn H573206
einhversstaðar í Wigtownshire í
Skotlandi - þökk sé gamansömum
útúrsnúningum á lögum og hefð-
um í gegnum fyrirtækið establis-
hed Titles. Þessi gjöf kom mér til
að brosa út að eyrum, en þegar ég
skoðaði skjalið nánar hugsaði ég
að H573206 sé bara alls ekki nógu
gott nafn á minni glæsilegu jörð, ég
meina glæsilega bletti - ég allavega
vona að bletturinn sé glæsilegur.
Samkvæmt skjalinu munu mínir af-
komendur erfa jörðina og titilinn,
og ég tel þetta því kjörið tækifæri
að nefna túnblettinn almennilega
svo þetta verði kannski upphaf að
þrusugóðu ættarnafni.
Ættarnöfn hafa nefnilega heillað
mig lengi þrátt fyrir þá staðreynd
að á Íslandi eru ættarnöfn fátíð og
aðeins leyfð með einhverjum und-
antekningum í árans mannanafna-
lögunum. Samkvæmt Árnastofnun
eru yfir 600 ættarnöfn á skrá og ein-
hver þúsund af Íslendingum bera
einhverskonar ættarnafn. Mörg af
þeim ættarnöfnum sem mér hefur
þótt hljóma töff eru í raun afbökun
á staðarheitum tengd ættinni. Til
dæmis er blöndal afbökun á staðar-
heitinu blöndudalur í Húnaþingi,
briem er afbökun á staðarheitinu
brjánslækur í barðarstrandarsýslu
og Vídalín er afbökun á staðarheit-
inu Víðidalur í Vestur-Húnavatns-
sýslu. Ég hoppaði því á internetið
og fór að skoða íslensk örnefni til
að fá innblástur fyrir almennilegu
nafni til að gefa túnblettinum mín-
um, sem væri svo hægt að afbaka í
eitthvað flott ættarnafn handa af-
komendum mínum.
Kortasja.lmi.is og vefsja.is eru al-
veg hreint magnaðir vefir. Þarna er
samansafn af opinberum gögnum
sem birtast manni á auðskiljanlegan
og myndrænan hátt. Viltu sjá helstu
staði sem koma fram í Íslendinga-
sögunum, smelltu þá á hnapp.
Hvað með útbreiðslu alaskalúp-
ínunnar á Íslandi, smelltu á ann-
an hnapp. Deiliskipulög, virkjanir,
jarðhitaholur, mikilvæg fuglasvæði,
vörður, berjalönd, kvikmyndatöku-
staðir, flutningskerfi raforku, göm-
ul hrepparmörk, dönsk herforingja-
ráðskort, þetta og svo miklu meira
er þarna aðgengilegt fyrir alla að
skoða.
Það er margt sem freistar á þess-
um síðum, en það voru örnefnin
sem ég vildi skoða og því ferðaðist
ég stafrænt vítt og breytt um land-
ið í leit að áhugaverðum nöfnum.
Ég gleymdi mér alveg. Klukkutím-
um saman, eins og einhver yfirnátt-
úruleg vera, þá gat ég flogið yfir
landið á ógnarhraða og horft niður
á hæstu fjöll, afskekktar eyjar, vötn
og byggðir og vitað nöfnin á öllu
sem ég vildi. ef ég vildi forvitnast
um söguna á bakvið eitthvað nafn
þá gat ég flett því upp á vefnum
nafnid.is og séð þar heimildirnar á
bakvið kortin. Oft var fátt um svör,
en stundum kom skemmtileg skýr-
ing á einhverju einföldu nafni. eins
og að biskupshóll í Leirárssveit
er nefndur eftir einhverjum bisk-
up sem missti hest þar frá sér, en í
stað þess að taka eitt eða tvö skref
eins og sérhver almúgamaður hefði
gert, þá frekar hlammaði hann sér á
hólinn og beið þar í fýlu þar til fólk
úr sveitinni kom með hesta handa
honum. fýluskapur sem svo berg-
málar niður aldirnar með þessari
nafnagift.
Ég rak augun í
töff örnefni sem ég kannaðist við
á þessum kortum, eins og Leggja-
brjót, en það er best að passa sig
því þegar ég smellti á kortið komu
5 staðir á Vesturlandi með þessu
varasama nafni. Svo kom það mér
á óvart að Drekkingarpyttur er
rétt fyrir neðan Heiðarborg í Leir-
árssveit þar sem ég vinn núna - ég
veit ekki alveg með svona nafn rétt
hjá sundlaug. en til að vega upp á
móti þessu niðurdrepandi nafni þá
fann ég Himnaríki, það þarf ekkert
að spyrja prest um hvernig maður
á að komast þangað, Himnaríki er
bara rétt fyrir aftan Tjaldfell, milli
Skjaldbreiðar og Þórisjökuls. eftir
þó nokkra skoðun var niðurstaðan
sú að það er fullt af glæsilegum ör-
nefnum á Íslandi, mörg sem hljóma
svo vel að ég vil gjarnan gera mér
ferð sem fyrst til að skoða þessa
staði. Glæsivellir, fagrihvammur,
Unaðsdalur, fríðá, Gleðivík, Góð-
hagar eða Skínandi, þetta eru nöfn
sem eru verðug að tengjast lávarða-
titlinum og mögulegu ættarnafni.
en ég gat ekki ákveðið mig, fjöld-
inn af þessum nöfnum gaf mér val-
kvíða og ég vildi líka helst að nafnið
væri úr því nærumhverfi sem mér
þykir vænst um, það er að segja
borgarfirðinum. Það er bara eitt að
gera í svona stöðu. Loka augunum,
hringla kortinu af borgarfirði til og
frá í tölvunni, setja fingur á skjáinn,
opna augun og láta nafnið bara ráð-
ast af tilviljun.
bölvað, fari það allt í opið og
hurðarlaust horngrýti! Samkvæmt
örlögunum er ég víst lávarðurinn
af Æluengi í Skotlandi - nefnt eftir
stað sem er skammt frá Handklæð-
isholti hjá Hvanneyri í borgarfirði.
Það verður einhvern veginn að af-
baka þetta staðarheiti vel og vand-
lega, annars heyri ég að mér bölv-
að úr framtíðinni, afkomendurnir
allir saman komnir á ættarmóti hjá
Æluengjaættinni. Kannski best að
breyta þessu strax í Sæluengi, það
hljómar miklu betur.
Geir Konráð Theódórsson
Æluengi.
Lávarður yfir óheppilega
illa nefndu landi
Lord Geirs papers.