Skessuhorn


Skessuhorn - 17.02.2021, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 17.02.2021, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 17. febRúAR 20218 Uppstilling við röðun VIÐREISN: Landshlutaráð Viðreisnar í Norðvesturkjör- dæmis ákvað á fundi sínum í síðustu viku að nota uppstill- ingu við röðun á framboðslista fyrir kosningar í haust. Upp- stillinganefnd hefur þegar ver- ið skipuð og er vinna hennar að hefjast, samkvæmt tilkynningu frá flokknum. „Hvert lands- hlutaráð fyrir sig tekur ákvörð- un um hvaða aðferð er beitt við skipan framboðslista, í sam- ræmi við samþykktir Viðreisn- ar. Verði uppstilling fyrir valinu skal landshlutaráð skipa upp- stillingarnefnd sem starfar sam- kvæmt reglum sem stjórn Við- reisnar setur. framboðslistar verða bornir undir landshluta- ráð og stjórn Viðreisnar til sam- þykktar. Viðreisn gætir fyllsta jafnréttis kynjanna og vill end- urspegla fjölbreytni mannlífs í framboðslistum sínum. Stjórn Viðreisnar hefur ákveðið að auglýsa eftir áhugasömu fólki til að starfa með flokknum og taka sæti á listum hans,“ segir í til- kynningu. -mm Aflatölur fyrir Vesturland 6. til 12. febrúar Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu Akranes: 2 bátar. Heildarlöndun: 18.655 kg. Mestur afli: eskey Óf-80: 18.399 kg. í fjórum löndunum. Arnarstapi: 10 bátar. Heildarlöndun: 132.262 kg. Mestur afli: Kristinn HU-812: 24.016 kg. í þremur löndunum. Grundarfjörður: 6 bátar. Heildarlöndun: 409.702 kg. Mestur afli: Sigurborg SH-12: 75.690 kg. í einni löndun. Ólafsvík: 11 bátar. Heildarlöndun: 329.231 kg. Mestur afli: Steinunn SH-167: 78.936 kg. í fjórum löndunum. Rif: 16 bátar. Heildarlöndun: 524.676 kg. Mestur afli: Rifsnes SH-44: 93.828 kg. í einni löndun. Stykkishólmur: 4 bátar. Heildarlöndun: 10.637 kg. Mestur afli: fjóla SH-7: 3.988 kg. í fjórum löndunum. Topp fimm landanir á tíma- bilinu: 1. Rifsnes SH-44 RIF: 93.828 kg. 8.feb. 2. Örvar SH-777 RIF: 91.778 kg. 9. feb. 3. Tjaldur SH-270 RIF: 76.655 kg. 6. feb. 4. Sigurborg SH-12 GRU: 75.690 kg. 8. feb. 5. Harðbakur EA-3 GRU: 71.360 kg. 10. feb. -frg Ók á ljósastaur AKRANES: ekið var á ljósa- staur seint á þriðjudagskvöld í síðustu viku. Ökumaður sagð- ist hafa ekið á 50 kílómetra hraða á Innnesvegi þegar hann missti stjórn á bílnum og hafn- aði á ljósastaur en snjóþekja var á veginum. Ökumaður slasað- ist ekki en bæði bifreið og staur skemmdust nokkuð. Þá sló raf- magni út með þeim afleiðingum að ljósastaurar í götunni misstu straum. Orkuveitu var tilkynnt um málið. Draga þurfti bílinn á brott með kranabíl. -frg Skópar á bryggju AKRANES: Síðastliðinn mið- vikudag barst lögreglu tilkynn- ing um skópar við bryggjukant- inn á stóru bryggjunni á Akra- nesi. Þrátt fyrir vott veður voru skórnir þurrir, höfðu greinilega ekki verið þarna lengi og vakn- aði því grunur um að einhver hefði hoppað í sjóinn. fljótlega kom þó í ljós að skórnir höfðu einfaldlega dottið út úr bifreið fyrirtækis sem erindi hafði átt á bryggjuna. Lögregla ítrekar mikilvæg þess að fólk láti vita af öllu sem óeðlilegt getur talist, betra sé að fá of margar tilkynn- ingar en of fáar. -frg Útaf á Holta- vörðuheiði VESTURLAND: Síðdegis á föstudag barst Neyðarlínu til- kynning um útafakstur á Holta- vörðuheiði. Þar hafði móðir með fjögurra ára gamalt barn ekið út af og fest bílinn. Þegar lögregla náði tali af móðurinni hafði hún fengið far til Reykja- víkur og hugðist hún láta at- huga með barnið á heilsugæslu þar sem hana grunaði að barnið hefði jafnvel rekið höfuðið í við útafaksturinn. -frg Hraðakstur áberandi VESTURLAND: Að sögn Lögreglunnar á Vesturlandi hefur hraðakstur verið mjög áberandi í umdæmi hennar undanfarna daga og vikur. Mjög algengt er að ökumenn mælist á milli 110 og 120 kílómetra hraða auk þess sem allt of algengt er að um leið séu ökumenn að tala í símann án handfrjáls búnaðar. Sá sem hraðast ók mældist á 136 kílómetra hraða í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi. Þá mældist ann- ar á 132 kílómetra hraða í borg- arfirði. -frg Athuga notkun öryggisbúnaðar SNÆFELLSN.: Lögreglan á Vesturlandi hefur undanfarið lagt áherslu á eftirlit með notk- un öryggisbúnaðar á Snæfells- nesi. Á sunnudag var ökumaður stöðvaður í Grundarfirði með tvö börn í bílnum þar sem notk- un viðeigandi öryggisbúnaðar var ábótavant. Mikilvægt er að ökumenn gæti að því að örygg- isbúnaður bifreiða henti þeim farþegum sem í bifreiðinni eru hverju sinni. -frg Konur í Kvenfélagi Ólafsvíkur tóku daginn snemma fimmtudaginn 11. febrúar síðastliðinn. Tilefnið var að baka hinar árlegu sólarpönnukök- ur en þetta er ein stærsta fjáröflun félagsins. Öllum sóttvörnum var að sjálfsögðu fylgt í hvívetna og gekk það vel að sögn kvenfélagskvenna. fyrirtæki og einstaklingar á svæð- inu taka alltaf vel við sér þegar þeim eru boðnar sólarpönnukökur og seldust 2200 pönnukökur að þessu sinni. Kvenfélagskonur buðu bæði uppá á pönnurkökur með rjóma og sultu og svo sykri. Gekk baksturinn mjög vel enda kjarnakonur á ferðinni. Deigið voru þær búnar að undirbúa að hluta til daginn áður og hófst bakstur klukk- an 4:30 og var fyrsta pöntun sótt klukkan sex um morguninn. Öll- um frágangi var svo lokið um há- degið og allar pönnukökur komnar á kaffistofur fyrirtækjanna. þa fyrirtækið Creditinfo hefur opnað fyrir gjaldfrjálsan aðgang að skönn- uðum frumritum ársreikninga á vef sínum. Á þjónustuvef Creditinfo og í vefverslun á opnum vef geta al- mennir notendur jafnt sem áskrif- endur nú sótt gjaldfrjálst skönnuð frumrit af ársreikningum. „Creditinfo hefur að geyma stærsta safn viðskiptaupplýsinga á Íslandi en á meðal þeirra eru upp- lýsingar úr ársreikningum íslenskra fyrirtækja allt aftur til ársins 1995. Ársreikningagrunnur Creditinfo hefur að geyma rúmlega 550.000 ársreikninga sem hægt er að sækja með fjölbreyttum hætti bæði á þjónustuvef Creditinfo og í gegn- um vefþjónustu. Áskrifendum Cre- ditinfo gefst jafnframt kostur á að vakta skil á ársreikningum án við- bótarkostnaðar með fyrirtækjavakt Creditinfo,“ segir í tilkynningu. Öllum er frjálst að sækja fjöl- breyttar upplýsingar um stöðu fyr- irtækja í gegnum vefverslun Cre- ditinfo. Hægt er að sækja lánshæf- ismat fyrirtækja sem sýnir líkurn- ar á því að fyrirtæki fari í vanskil á næstu tólf mánuðum, ítarlegt yfirlit yfir endanlega eigendur fyrirtækja, upplýsingar um gildandi skráningu fyrirtækja og margt fleira. Áskrif- endur Creditinfo geta síðan sótt enn fleiri upplýsingar til að taka markvissari ákvarðanir í viðskipt- um. „Það er okkur mikið fagnað- arefni að geta nú boðið skönnuð frumrit af ársreikningum gjald- frjálst. eftir lagabreytingar sem tóku gildi um áramót opnaði Skatturinn á niðurhal reikninga á vef sínum. enn er þó beðið eftir reglugerð sem skýrir áhrif breyt- inganna á samninga um afhend- ingu gagna til miðlara eins og Creditinfo. Við höfum engu að síður ákveðið að afhenda þá gjald- frjálst með einföldum hætti á vef okkar,“ segir brynja baldursdótt- ir, framkvæmdastjóri Creditinfo. Áreiðanlegustu upplýsingar um rekstur fyrirtækja er oftast að finna í ársreikningum þeirra. Með upp- lýsingum úr ársreikningi er meðal annars hægt að leggja mat á það hversu vel rekstur fyrirtækis hef- ur gengið síðustu ár, stærð fyrir- tækisins, skuldsetningu og margt fleira. mm Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hef- ur sent inn umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um slysatryggingar almannatrygginga, sem fjalla m.a. um atvinnusjúk- dóma og miskabætur. Á Íslandi eru starfandi um þúsund slökkviliðs- menn og af þeim eru rúmlega 400 í fullu starfi og sinna þá flestir einnig sjúkraflutningum. Þeir einstakling- ar sem sinna þessum störfum eru útsettir fyrir starfsumhverfi sem vísindalega hefur verið sannað að auki líkur á heilsubresti, þá sérstak- lega ákveðnum gerðum krabba- meina. Slökkviliðsmenn eru allt að tvöfalt líklegri til að fá ákveðn- ar gerðir krabbameina. „LSS telur telur brýnt að þeir atvinnutengdu sjúkdómar sem vísindalegar rann- sóknir hafa staðfest að slökkviliðs- menn séu útsettir fyrir séu viður- kenndir í lögum og einstakling- um sé tryggður bótaréttur vegna þeirra.“ mm Hér má sjá hluta kvennanna sem sá um að setja sykur, sultu og rjóma á pönnu- kökurnar ásamt því að pakka þeim. Seldu á þriðja þúsund sólarpönnukökur Slökkviliðsmenn starfa oft við heilsuspillandi verkefni. Meðfylgjandi er svipmynd frá gróðureldum í Norðurárdal vorið 2019. Vilja að bótaréttur slökkviliðs- manna sé viðurkenndur Skannaðir ársreikningar eru nú gjaldfrjálsir á vef Creditinfo

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.