Skessuhorn - 17.02.2021, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 17. febRúAR 202112
Gunnar Guðlaugsson, forstjóri
Norðuráls, hefur verið ráðinn til
að stýra álverum Century Alumin-
um í evrópu og Norður Ameríku.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu kem-
ur fram að nýr starfstitill Gunn-
ars verður „executive Vice Presi-
dent, Global Operations“ og mun
hann bera ábyrgð á rekstri álvera
Century Aluminum um allan heim.
Century Aluminum á og rekur, auk
Norðuráls á Grundartaka, þrjú ál-
ver í Norður Ameríku og rafskauta-
verksmiðju í Hollandi. Samanlögð
ársframleiðsla er yfir milljón tonn
af áli. Gunnar hefur starfað hjá
Norðuráli frá árinu 2008. fyrst
sem framkvæmdastjóri Norðuráls
Grundartanga og sem forstjóri frá
árinu 2019. Því hlutverki mun hann
sinna áfram.
Gauti Höskuldsson, sem gegnt
hefur starfi framkvæmdastjóra
skautsmiðju og kerskála Norðuráls,
mun jafnframt taka við nýrri stöðu
hjá Century Aluminum sem „Vice
President, Global Operations“
og starfa með Gunnari hér heima
og ytra. Gauti hefur starfað hjá
Norðuráli frá árinu 1999 en hefur
gegnt hlutverki framkvæmdastjóri
skautsmiðju- og kerskála frá 2009.
Sigrún Helgadóttir hefur verið
ráðin framkvæmdastjóri Norðuráls
Grundartanga og mun hafa yfirum-
sjón með daglegum rekstri ál-
versins. Sigrún hefur starfað hjá
Norðuráli frá árinu 2012, síðus-
tu ár sem framkvæmdastjóri star-
fsmanna- og innkaupasviðs. Áður
starfaði Sigrún m.a. hjá Kaupþingi,
í Kauphöllinni í Osló og Verðbré-
faþingi Íslands.
birna björnsdóttir tekur við
stöðu framkvæmdastjóra skaut-
smiðju- og kerskála. birna hóf
störf hjá Norðuráli árið 2005 og
hefur sinnt ýmsum störfum innan
fyrirtækisins. Síðustu ár hefur hún
starfað sem deildarstjóri framleiðs-
lustýringar.
mm/ Ljósm. Norðurál.
Opnað var á viðræður milli sveit-
arfélaganna borgarbyggðar, Hval-
fjarðarsveitar og Akraneskaupstað-
ar um aukið samstarf þeirra á sviði
eldvarna og slökkviliðsmála í lok
síðasta árs. Slíkar hugmyndir höfðu
upphaflega komið til tals fyrir um
þremur árum. Unnið er að því að
safna upplýsingum um mögulegar
leiðir til aukins samstarfs og nú eft-
ir áramót hafa verið vikulegir fund-
ir þar sem bæði forsvarmenn sveit-
arfélaganna og slökkviliðanna taka
þátt. er þá verið að safna í sarp-
inn upplýsingum um hvernig sam-
starf og sameiningar slökkviða hafa
gengið í öðrum landshlutum og
heyra í sérfræðingum á þessu sviði.
Þegar þær upplýsingar liggja fyr-
ir verður málið kynnt í bæjar- og
sveitastjórnum sem ákveða munu
hvort fara eigi dýpra í greiningar á
hagkvæmni þeirra kosta sem gætu
blasað við. Skessuhorn átti af þessu
tilefni samtal við forsvarsmenn
sveitarfélaganna.
Að sögn Sævars freys Þráinsson-
ar bæjarstjóra á Akranesi hefur enn
engin ákvörðun verið tekin, en að
einkum þrjá sviðsmyndir eru í um-
ræðunni varðandi samstarf. Í fyrsta
lagi geti viðræðurnar haft í för með
sér aukið samstarf slökkviliðanna, í
öðru lagi samrekstur um ákveðna
þætti starfseminnar og í þriðja lagi
beinlínis sameining Slökkviliðs
Akraness og Hvalfjarðarsveitar og
Slökkvilið borgarbyggðar í eitt.
„Sveitarfélögin þrjú eru áhuga-
söm um að skoða hvort aukið
samstarf geti skilað öflugra starfi
slökkviliðs eins og undantekning-
arlaust virðist vera raunin hjá öðr-
um slökkviliðum sem hafa samein-
ast. Þær kynningar sem við höfum
fengið fram að þessu hafa verið
mjög gagnlegar og upplýsandi. Við
höfum meðal annars kynnt okkur
hvernig staðið hefur verið að málum
t.d. hjá brunavörnum Suðurnesja,
hjá slökkviliði fjarðarbyggðar og
brunavörnum Árnessýslu, en það
síðastnefnda varð einmitt til þegar
Árnesingar sameinuðu slökkvilið-
in á sínu starfssvæði. Okkar starfs-
svæði er fjölbreytt að gerð og verk-
efnin ólíks eðlis, en aukið samstarf
slökkviliðinna á síðustu árum hefur
sýnt svo ótvírætt sé að samstarf er
af hinu góða. Við leituðum meðal
annars til fjarðarbyggðar sem hef-
ur álver á sínu starfssvæði líkt og við
höfum á atvinnusvæðinu á Grund-
artanga,“ segir Þórdís Sif Sigurðar-
dóttir sveitarstjóri borgarbyggðar.
„Ég bind miklar vonir við að
þetta samtal muni leiða okkur á
þann stað að starfsemi slökkvilið-
anna dafni hvaða leið sem verður
valin. Samstarfið sem verið hefur
hingað til milli slökkviliðanna hef-
ur sýnt okkur fram á að það getur
styrkt varnir, eflt mannauðinn og
aukið búnað að vinna saman en all-
ur tæknibúnaður verður t.d. sífellt
flóknari og dýrari. Þess vegna er
mikilvægt fyrir okkur nú að staldra
við, taka samtalið og meta stöðuna
m.t.t. þess hvað skynsamlegast sé
að gera til framtíðar, íbúum, fyrir-
tækjum og öllum til heilla í þessum
efnum,“ segir Linda björk Páldótt-
ir sveitastjóri Hvalfjarðarsveitar.
Sævar freyr bæjarstjóri á Akra-
nesi tekur í svipaðan streng. „Við
leggjum mikla áherslu á að allir
sem tengjast málinu séu upplýstir
um þær viðræður sem eru í gangi,
hvort sem það er fólkið í sveitar-
stjórnum, slökkviliðsmenn eða aðr-
ir,“ segir Sævar freyr í samtali við
Skessuhorn. Aðspurð vonast þau
Þórdís, Linda og Sævar til þess að
á þessu ári liggi niðurstaða fyrir
um hvernig auknu samstarfi verður
háttað. Þess má einnig geta að gild-
andi samningur milli Hvalfjarðar-
sveitar og Akraneskaupstaðar um
rekstur slökkviliðsins rennur út í
árslok 2021. mm
Slökkviliðin hafa nú þegar samstarf þegar kemur að stærri verkefnum. Meðal annars í gróðureldum í Norðurárdal síðastliðið
vor.
Viðræður um aukið samstarf slökkviliða
Birna Björnsdóttir.
Breytingar á yfirstjórn Norðuráls og móðurfélags þess
Húsakostur Norðuráls séður úr lofti.
Gunnar Guðlaugsson. Gauti Höskuldsson. Sigrún Helgadóttir.