Skessuhorn - 17.02.2021, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 17. febRúAR 202110
Vegna alvarlegra athugasemda
eldvarnaeftirlits og byggingafull-
trúa ákvað borgarbyggð í síðustu
viku að loka um ótiltekinn tíma
nær öllu húsnæði í eigu sveit-
arfélagsins í brákarey. einung-
is starfsemi í Grímshúsi er und-
anskilin og tímabundið verður
áhaldahús sveitarfélagsins áfram
opið. Nú hefur því verið hætt um
tíma starfsemi samtals fjórtán
rekstraraðila í húsunum og á það
við félagasamtök, fyrirtæki og
stofnanir í brákarbraut 25 (fyrr-
um sláturhúsi og frystihúsi) og
að hluta á brákarbraut 27 (fyrr-
um fjárrétt). Rekstraðilum í hús-
inu var tilkynnt ákvörðun þar að
lútandi á fundi sem haldinn var í
Hjálmakletti á fimmtudag í lið-
inni viku og var þeim gert að
hætta starfsemi í húsunum frá og
með laugardeginum 13. febrúar.
Í kjölfar úttektar eldvarnaeft-
irlits og byggingafulltrúa á hús-
næði Öldunnar, í fyrrum matsal
sláturhússins, um mánaðamótin
var ákveðið að framkvæma heild-
arúttekt á húsnæðinu brákar-
braut 25 og 27. Leigutökum var
á fundinum síðastliðinn fimmtu-
dag greint frá niðurstöðu þeirrar
úttektar og að ljóst væri að sveit-
arfélagið ætti ekki annarra kosta
völ en að stöðva starfsemi í hús-
næðinu um óákveðinn tíma.
Ekki aðrir kostir
í stöðunni
Í samtali við Skessuhorn síð-
astliðinn fimmtudag sagði Þór-
dís Sif Sigurðardóttir sveitar-
stjóri að ekki hafi verið um ann-
að að ræða, í ljósi alvarlegra at-
hugasemda vegna brunavarna
í húsinu, en að grípa til lokun-
ar á starfsemi í húsunum. Það
hefði verið gert til að tryggja ör-
yggi og heilsu þeirra sem hingað
til hafa haft starfsemi þar. „Þessi
ákvörðun er okkur ekki léttvæg
en við erum fyrst og fremst að
hugsa um öryggi þeirra aðila sem
hafa notað aðstöðuna í húsnæð-
inu. Niðurstöður úr úttektunum
hafa leitt í ljós að nauðsynlegt
er að gera töluverðar úrbætur á
húsnæðinu, m.t.t. til eldvarna-
og öryggismála. Helstu athuga-
semdir varða flóttaleiðir, vatns-
leka, brunahólfun, rafmagns-
mál og leiðir til reyklosunar.“
Aðspurð segir Þórdís að engin
ákvörðun liggi fyrir um næstu
skref í málinu eða um framtíð
húsanna. byggðarráð borgar-
byggðar mun fjalla um málið á
fundi sínum á morgun, fimmtu-
dag, og verður þá ákvörðun tekin
um næstu skref.
Öll umferð bönnuð
eins og fram kom í Skessuhorni
í síðustu viku var þá búið að
taka ákvörðun um að flytja hluta
af starfsemi Öldunnar annað.
Vinna og hæfing á hennar veg-
um fer í sal á 6. hæð í borgar-
braut 65. Meðal annarra rekstr-
araðila sem nú verða án hús-
næðis má nefna gríðarstórt safn
fornbílafjelags borgarfjarðar og
bifhjólafjelagsins Raftanna, skot-
æfingasvæði Skotfélags Vestur-
lands, innanhúss aðstöðu Golf-
klúbbs borgarness, trésmiðju og
bátasmiðju. Þessir aðilar þurfa
nú að bíða lausna eða hefja leit
að nýju húsnæði fyrir starfsemi
sína. „Umferð um húsið er nú
stranglega bönnuð, en leigu-
tökum verður heimilt að geyma
muni sína í húsnæðinu tíma-
bundið og geta nálgast þá með
heimild verkstjóra áhaldahússins
í hvert skipti,“ sagði í tilkynn-
ingu frá borgarbyggð.
Sveitarstjórn kom
saman
Húsnæðismál í brákarey áttu
næstu daga eftir að vinda upp á
sig. Sveitarstjórn borgarbyggð-
ar var boðuð til aukafundar síð-
degis á mánudaginn þar sem til
umræðu voru störf sveitarstjóra,
eins og sagði í fundarboði. Sam-
þykkt var í upphafi þess fundar
að hann yrði lokaður, en í kjölfar
hans birtar tvær ályktanir.
fyrst lagði Guðveig eygló-
ardóttir fram bókun fyrir hönd
framsóknarflokksins, sem sit-
ur í minnihluta. bókunin var
birt í fundargerð sem gerð var
opinber. Af henni má dæma að
viðbrögð sveitarstjóra við lok-
un húsa í brákarey hafi ver-
ið tilefni fundarins. bókun
Guðveigar er svohljóðandi:
„fulltrúar framsóknarflokksins
gera alvarlegar athugasemdir við
þær yfirlýsingar sem fram hafa
komið af hálfu sveitarstjóra í
kjölfar úttektar eldvarnareftirlits
og fundar með leigjendum, að
búið sé að taka ákvörðun um það
að segja upp öllum samningum
við leigjendur í húsnæði sveitar-
félagsins við brákarbraut 25 og
27. Með slíkum yfirlýsingum er
sveitarstjóri að fara gegn sam-
þykktum um stjórn sveitarfélags-
ins. Sveitarstjórn hefur hvorki
fengið málið til umfjöllunar og/
eða afgreiðslu og því hefur ekki
verið tekin afstaða til þess með
hvaða hætti sveitarstjórn muni
bregðast við úttektarskýrslu eld-
varnareftirlits og kröfu bygg-
ingafulltrúa.“
Kynnt á opnum
íbúafundi
Þá er sameiginlega yfirlýsingu
sveitarstjórnar einnig að finna í
fundargerðinni. Af orðanna hljóð-
an má leiða að því líkur að fund-
urinn hafi verið gagnlegur og að
nú ætli menn að snúa bökum sam-
an og leita lausna. Orðrétt segir:
„Sveitarstjórnarfulltrúar eru
sammála um að jákvæðar og
uppbyggilegar umræður hafi far-
ið fram um upplýsingaflæði og
ákvarðanatöku sveitarfélagsins.
Hvorki hafa verið teknar ákvarð-
anir um uppsögn leigusamn-
inga né framtíð húsnæðis sveit-
arfélagsins að brákarbraut 25 og
27. fyrirhugað er að halda kynn-
ingu á málinu fyrir sveitarstjórn-
arfulltrúa fyrir íbúafund sem
haldinn verður 18. febrúar nk.
og ákveðið er að bæta kynningu
á stöðu húsnæðismála í brákarey
á dagskrá íbúafundarins.“
mm
Meðfylgjandi myndir voru teknar í Brákarey síðastliðinn sunnudag. Þar var nánast enginn á ferð, enda búið að banna
umferð um flestöll húsin sem áður tilheyrðu starfsemi Sláturhúss KB í eyjunni.
Nær öllu húsnæði Borgarbyggðar
í Brákarey hefur verið lokað