Skessuhorn - 17.02.2021, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 17. febRúAR 2021 15
Lagnaþjònusta
Vesturlands ehf.
Alhliða þjónustufyrirtæki
á sviði pípulagna
Sendu okkur verkbeiðni à
lagnavest@gmail.com eða hafðu samband
við okkur í síma 787-2999
Smellpassar
þú í hópinn?
Nánari upplýsingar um starfið veitir Steingrímur Jónsson,
rekstrarstjóri, steingrimurjo@bmvalla.is eða í síma 412-5440.
Mannauðsstefna fyrirtækisins lýsir vilja fyrirtækisins til að vera eftirsóttur vinnustaður sem byggir
á sterkri sögu, liðsheild með viðamikla reynslu og þekkingu. Stefnunni er ætlað að tryggja starfs-
mönnum sem best starfsskilyrði og möguleika til að vaxa og dafna. Mikil áhersla er á faglega
vinnu þar sem ferlar, árangur og stöðugar úrbætur eru hafðar að leiðarljósi. Við tilheyrum
liðsheild þar sem metnaðarfullt starf er unnið af jákvæðu og ábyrgu fólki í anda jafnræðis. bmvalla.is
Starfssvið
• Mótauppstilling
• Vinna við mót og veltiborð
• Járna, smíða og steypuvinna
• Vinna með ýmsan búnað og efni sem
tengjast einingaframleiðslu
Hæfniskröfur
• Stundvísi, jákvæðni og heiðarleiki
• Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
• Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
• Lyftarapróf er kostur
BM Vallá á Akranesi – Smellinn leitar að duglegum og drífandi starfskrafti
sem vill vera hluti af jákvæðri liðsheild!
Starfið felur í sér að framleiða vörur til endursölu í sölueiningum fyrirtækisins.
Framleiðsla sér einnig um að fylgjast með stöðu hráefna, tækja og verkfæra
ásamt því að settum gæða- og framleiðslumarkmiðum sé náð.
Um er að ræða 100% framtíðarstarf og
skilgreindur vinnutími er frá kl. 7.30-16.50.
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
Villikettir Vesturlands starfa und-
ir merkjum Dýraverndunarfélags-
ins Villikatta. Markmið félgs-
ins, sem stofnað var 2014, er að
hlúa að villi- og vergangsköttum í
landshlutanum, útvega þeim skjól
og færa þeim matargjafir. félagið
starfar eftir TNR hugmyndafræð-
inni.
„Við sem erum starfandi sem
sjálboðaliðar fyrir Villiketti á Vest-
urlandi finnum fyrir miklum stuðn-
ingi meðal íbúa varðandi matar-
gjafir,“ segir Una Guðný Pálsdóttir
á Akranesi en hún er ein þeirra sem
stendur að Villiköttum á Vestur-
landi. „Við erum með matarsöfn-
unarkörfur á nokkrum stöðum á
Akranesi. Körfurnar okkar eru
staðsettar í Krónunni og Dýrabæ.
en einnig er hægt að koma mat-
arpokum á starfsmenn bónuss,
sem þeir geyma síðan fyrir okkur.
einnig er hægt að hafa samband
við okkur í skilaboðum og koma
á okkur mat og ýmsu öðru katta-
tengdu,” segir Una Guðný.
„Aðalmarkmið okkar er að
stemma stigu við fjölgun villi-
katta á mannúðlegan hátt með því
að fanga þá, láta gelda og sleppa
þeim síðan aftur. er þetta unnið
samkvæmt alþjóðlegri aðferð. Við
fylgjum þeim síðan eftir. Setjum
matarstaura þar sem þeir halda sig
þannig að þeir geti náð sér í mat,
þá sérstaklega yfir vetrarmánuðina
þegar fæðuöflunin er erfiðari. Með
þessu erum við að hlúa að villikött-
um úti með matargjöfum og skjóli
og huga almennt um velferð katta
á svæðinu.“
Una Guðný sagði að starfsemi
Villikatta á Vesturlandi sé und-
ir hatti dýravendurfélagsins Villi-
kettir Íslands sem var stofnað árið
2014 í Reykjavík. Hún segir að það
félag sé með samning og samvinnu
við dýralæknastofur þar sem kett-
irnir fara í geldingu. Þá hafa félagið
Villikettir á Vesturlandi aðstöðu á
Akranesi þar sem kettirnir eru vist-
aðir fram að geldingu og síðan jafna
þeir sig og hlúð er að þeim. en það
getur tekið allt að einni viku áður
en þeim er sleppt aftur.
Stór hluti fær
varanlegt heimili
„Við erum 8-9 sjálfboðaliðar sem
sinnum starfinu hérna á Akra-
nesi, sem felst í því að fanga kett-
ina í búrin, sem getur verið þoli-
mæðisvinna og einnig þarf að gefa
þeim að éta,” segir Una Guðný.
„Við erum síðan með stuðnigsfjöl-
skyldur sem taka kettina sem eru
það ungir að hægt er að gera þá
mannvana og koma þeim í fóstur.
en sumir kattanna eru orðnir það
gamlir að ekki er hægt að ná eðl-
inu úr þeim og þeir verða áfram
villikettir. Það eru þeir sem höld-
um áfram að hugsa um með matar-
gjöfum. Í fyrra náðum við 52 villi-
köttum í búrin og 33 af þeim fengu
síðan varanlegt heimili.“
Víðar um Vesturland
Þegar Una Guðný var spurð að því
hvort það væru einhver ákveðin
svæði þar sem villikettirnir héldu
sig, sagði hún að svo væri. Það væri
á nokkrum stöðun í nágrenni Akra-
ness og einnig á svæðum annars-
staðar á Vesturlandi sem þau vissu
um og færu með búrin á þau svæði.
Því er hlúð að villiköttum m.a. á
bifröst, við Akrafjall og á Grund-
artanga.
„en umfangið í kringum þetta
kostar auðvitað sitt og erum við
að leita til Akraneskaupstaðar með
stuðning og vonumst eftir góðum
viðtökum eins og hjá bæjarbúum
þegar við auglýsum á facebook-
síðu okkar um að þurrmaturinn
hjá okkur sé á þrotum. Þá fyllast
matarsöfnunarkörfurnar. færum
við bæjarbúum bestu þakkir fyrir
skjót viðbrögð og hlýhug. einnig
geta þeir sem hafa áhuga að kynna
sér starfsemi okkar betur og jafn-
vel að gerast sjálfboðaliðar, að leita
upplýsinga á facebooksíðunni;
Villikettir Vesturland. en öll starf-
semi okkar stuðlar auðvitað að því
að halda jafnvægi í náttúrunni og
koma í veg fyrir offjölgun katta,“
sagði katta- og dýravinurinn Una
Guðný Pálsdóttir að endingu. se
Villikettir á Vesturlandi
„Finnum fyrir miklum stuðningi meðal íbúa með matargjafir“
Hér er búið að ná Tásu í búr. Ef tekst að
spekja og gera mannvanan villikött
eignast þeir ætíð heimili.
Glaðlegir kettlingar.
Einn af köttunum sem hafa verið fangaðir á Vesturlandi.