Skessuhorn - 17.02.2021, Síða 16
MIÐVIKUDAGUR 17. febRúAR 202116
Haraldur benediktsson oddviti
Sjálfstæðisflokksins í Norðvestur-
kjördæmi og fyrsti þingmaður kjör-
dæmisins býður fram krafta sína
áfram og stefnir ótrauður á að leiða
lista flokks síns fyrir alþingiskosn-
ingarnar í haust. Í viðtali við blaða-
mann Skessuhorns segir hann hafa
fullan vilja til að skipa efsta sæt-
ið líkt og hann hefur gert fyrir síð-
ustu kosningar. Á næstunni mun
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins
í Norðvesturkjördæmi ákveða með
hvaða hætti framboðslisti verð-
ur ákveðinn, hvort sem það verður
með uppröðun eða prófkjöri. eins
og fram kom í blaðaviðtali í haust
lýsti Þórdís Kolbrún R Gylfadótt-
ir ráðherra og varaformaður flokks-
ins því yfir að hún hafi vilja til að
vera í forystu áfram hjá Sjálfstæð-
isflokknum í NV kjördæmi en hún
skipar nú annað sætið. Þá hefur
Teitur björn einarsson á Sauðár-
króki lýst því yfir að hann gefi kost
á sér í þingsæti og vafalítið munu
fleiri nöfn bætast í þá baráttu. „Ég
hef alltaf haft þá reglu að segja það
hreint út hvert hugur minn stefn-
ir. Þótt ég hafi lítið gefið uppi fram
að þessu hef ég tekið þá ákvörðun
að óska eftir endurkjöri til að leiða
listann, en auðvitað eru það flokks-
menn sem ráða því þegar upp verð-
ur staðið. framboðsmál flokksins
fyrir komandi þingkosningar eru
ennþá á frumstigi í flestum kjör-
dæmum og einna helst að umræð-
an sé lengst komin á Suðurlandi
þar sem sitjandi þingmenn hafa all-
ir lýst yfir vilja til að halda áfram.
Hér í Norðvesturkjördæmi verður
ákveðið á aðalfundi kjördæmisráðs
í mars hvert fyrirkomulagið verð-
ur og í framhaldi af því verður leit-
að eftir frambjóðendum.“ Sest var
niður með Haraldi á heimili hans á
Vestri-Reyni síðastliðinn fimmtu-
dag. Þingstörf hafa nú að hluta
færst á netið sem Haraldur telur
mikinn kost. Kann hann að meta
gagnorða fundi og að þurfa minni
tíma að verja í bíl við akstur á milli
vinnustaða. Rætt er um störfin á
þingi, hvað hafi áunnist og helstu
áherslumál, stöðu landsbyggðar-
innar og fleira.
Áhrifavaldar
Í upphafi berst talið að þing-
mennskunni. „Það var eiginlega al-
veg óvart sem ég fór í framboð. Það
var að áeggjan frænda míns, Guð-
jóns Guðmundssonar fyrrum þing-
manns, og fleiri sem það varð úr.
Ég var staddur í útlöndum haustið
2012 þegar Guðjón hringir í mig.
Var að fara í flug og mátti ekki vera
að ræða við hann. Hafði þá gert
upp við mig að hætta formennsku
hjá bændasamtökunum. Sagði því
í hálfkæringi að ég léti vaða. Þegar
ég svo kveiki á símanum næst bíða
mín mörg smáskilaboð. Þá hafði
Guðjón einfaldlega komið því á
framfæri að ég sæktist eftir 2. sæti á
lista Sjálfstæðisflokksins í NV kjör-
dæmi. Það varð niðurstaðan. eigin-
lega var Guðjón álíka áhrifamaður
í mínu lífi og Ari Teitsson fyrrum
bændaforingi. Hann hafði ákveð-
ið að draga sig í hlé og hvatti mig
til þess að bjóða mig fram. Heim-
sækir Ari mig og segist hafa dreymt
mig og að ég væri að taka við skón-
um hans! Þegar hann kemur svo
hingað í gættina sér hann alveg ná-
kvæmlega eins skó og hann sjálfur
átti, nema hvað mínir voru minni
og alveg nýir! „Þarna sérðu,“ sagði
Ari, „hér er draumurinn klárlega
að raungerast.“ Ég fór í framboð
til formanns bændasamtaka Íslands
og var kosinn með ágætum yfir-
burðum. Svona er lífið og stundum
tilviljanir sem ráða för, en á bak-
við þessa áhrifavalda mína, er sú
trú fólks að mér sé treystandi fyr-
ir vandasömum verkefnum. Ég er
þakklátur fyrir það.“
Stoltastur
af ljósleiðaranum
en hvernig stjórnmálamann skil-
greinir Haraldur sig? „Ég hef
aldrei litið á mig sem pólitískt ljón
og eftirspurn mín eftir að klífa
hratt upp pólitíska metorðastigann
er hófstillt. Ég hef hins vegar mik-
inn metnað fyrir vexti og viðgangi
ólíkra byggða í Norðvesturkjör-
dæmi og hef reynt að einbeita mér
að þingmálum sem snerta hag íbúa.
Þetta er ekkert ósvipuð hugsjón og
ég hafði þann tíma sem ég gegndi
formennsku í bændasamtökum Ís-
lands. Það eru lífsaðstæður og bú-
setuskilyrði fólks á landsbyggðinni
sem eru og verða mín baráttumál.
Ég nefni sérstaklega ljósleiðara-
væðingu landsbyggðarinnar, enda
er ég stoltastur af því verki. einn-
ig átak í þriggja fasa rafvæðingu,
sem hófst í borgarbyggð, og jöfn-
un dreifikostnaðar raforku. Þórdís
Kolbrún hefur sem ráðherra beitt
sér í þessum hluta raforkumála og
er að ná árangri þar. Þetta er dæmi
um pólitík sem þingmenn þurfa
að reka áfram af festu til að lands-
byggðin sitji ekki eftir í aðstöðu
gagnvart þéttbýlinu.“
Bjargaði ekki einvörð-
ungu landsbyggðinni
Segja má að ótvíræðir kostir ljós-
leiðaravæðingarinnar hafa raun-
gerst í kóvidfaraldrinum síðastliðið
ár. Þar er Ísland nú í fararbroddi.
„Ljósleiðaravæðingin er eitt stærsta
byggðamálið í áratugi. Hér á mínu
heimili sjáum við á eigin skinni
hversu mikið góð fjarskiptateng-
ing hefur að segja. Tvö eldri börn-
in geta sinnt vinnu og námi í fjar-
vinnu, dóttir mín í Kaupmanna-
höfn og sonurinn í Háskólanum í
Reykjavík. Lilja Guðrún kona mín
getur sinnt öllu skýrsluhaldi og bú-
reikningum í gegnum netið og sjálf-
ur sit ég orðið flesta nefndafundi á
Alþingi í fjarfundum eftir að kóvid
helltist yfir. Það er einungis yngsta
dóttirin sem fer daglega í skólann
sinn. Þetta sýnir ágætlega hversu
mikið öflug fjarskiptatenging hef-
ur að segja fyrir landsbyggðina.
Nánast á einni nóttu var hægt að
flytja stóran hluta atvinnulífs heim
til starfsmanna. en ljósleiðarinn
hefur ekki einvörðungu bjargað
dreifbýlinu því almennt gat þorri
landsmanna sinnt vinnu áfram þótt
heimsfaraldur stæði yfir og vinnu-
stöðum hefði mörgum verið lokað.
Hér á landi hefði því efnahagsleg-
ur skellur orðið enn dýpri ef þjóð-
in hefði ekki verið komin í fremstu
röð í fjarskiptum. Ég er því stoltur
að mínu framlagi hvað þetta snert-
ir. Það sem þótti ógerlegt árið 2015
er verið að ljúka núna árið 2021.“
Allir heilir í sínu starfi
Haraldur lætur vel af samstarfi
við aðra þingmenn kjördæmisins
á líðandi kjörtímabili, en hlutverk
fyrsta þingmanns er ætíð að vera í
forystu fyrir þeim hópi, óháð því
fyrir hvaða flokka fólk starfar. „Ég
er ánægður með minn feril og það
sem ég hef áorkað sem þingmaður.
Það er alltaf skemmtileg áskorun
að hreyfa við málum sem þingmað-
ur og ég hef átt gott samstarf við
flestalla í pólitíkinni. Það var vissu-
lega góður skóli á næstsíðasta kjör-
tímabili að vera formaður fjárlaga-
nefndar þegar ekki var meirihluti
starfandi í þinginu, þegar þurfti
að setja fjárlög fyrir árið 2017.
Það gekk og þingið hafði leyst það
verkefni án ríkisstjórnar. Þó ég
mæli ekki með því, þá stóðst þing-
ið þá áskorun og ég fékk það hlut-
verk að leiða starf fjárlaganefnd-
ar. Mér fannst hafa gengið vel að
leiða saman ólík sjónarmið þann-
ig að niðurstaða fengist sem flest-
ir gátu sætt sig við. Á þessu kjör-
tímabili sem er nú langt komið hef
ég lagt áherslu á að vinna vel með
öllum þingmönnum kjördæmisins
og hefur það gengið vel, undanskil
engan enda allir verið heilir í sinni
vinnu.“
Haraldur stefnir ótrauður á að leiða áfram
lista Sjálfstæðisflokks
Haraldur Benediktsson alþingismaður og bóndi.