Skessuhorn - 17.02.2021, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 17. febRúAR 202118
Halldór benjamín Hallgrímsson,
Dóri Hallgríms, hefur ýmislegt
fyrir stafni. Hann var fyrst ráðinn
inn sem smiður á Sjúkrahús Akra-
ness en er nú deildarstjóri húsnæð-
is og tækja hjá Heilbrigðisstofn-
un Vesturlands, auk þess að starfa
sem sjúkraflutningamaður. ekki
má gleyma húsbandi HVe, Hand-
ymen, en þar leikur Dóri á gítar og
syngur. Þá syngur Dóri með Kór
Akraneskirkju og stundum einsöng
við athafnir í kirkjunni. Dóri hleyp-
ur einnig mikið og stundar fótbolta
og golf. blaðamaður settist niður
með Dóra og bað hann að segja að-
eins frá sjálfum sér, en víkjum fyrst
að kórstarfinu.
Halldór vakti talsverða athygli
þegar hann flutti ásamt öðrum fé-
lögum úr Kór Akraneskirkju, Daní-
el friðjónssyni, Sveini Arnari Sæ-
mundssyni og Ingþóri bergmann
Þórhallssyni sem sá um mynd og
hljóð, lagið „Minn bátur“ eftir
norska söngvarann björn eidsvåg
við eigin texta. Laginu var streymt
á Allra heilagra messu í helgistund
í Akraneskirkju 1. nóvember á síð-
asta ári en þann dag er látinna
minnst. Sveinn Arnar Sæmunds-
son kórstjóri setti flutninginn inn
á facebook þar sem það fékk mik-
ið áhorf og verið deilt margsinnis.
Höfundur lagsins, björn eidsvåg,
er mörgum Íslendingum að góðu
kunnur en sumir hafa kallað hann
bubba Morthens þeirra Norð-
manna. Hann er prestur, lagahöf-
undur og vinsæll söngvari og hefur
gefið út meira en 25 plötur á ferli
sem hefst árið 1976. Myndband af
flutningi lagsins Minn bátur má
finna á facebook síðu Garða- og
Saurbæjarprestakalls svo og á You-
tube síðu Akranesskirkju.
Á Akranesi alla tíð
„Ég er borinn og barnfæddur Ak-
urnesingur, fæddur árið 1959 og
hef búið á Akranesi alla tíð ef und-
an eru skilin örfá ár sem fjölskyld-
an bjó í Reykjavík. eiginkona mín
er Guðrún Hróðmarsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur á skurðdeild HVe
og eigum við þrjú börn, Hróðmar
sem býr á Akranesi, Sigurbjörgu
sem býr á Akranesi en er að flytja
með fjölskylduna til Reykjavíkur og
Hilmar sem stundar nám í banda-
ríkjunum. barnabörnin eru orðin
þrjú og tvö fóstur barnabörn og eitt
fóstur barna barna barn.“
Dóri byrjaði í menntaskóla á sín-
um tíma, en tók námið ekki nógu
alvarlega, hætti og fór í smíðanám
í fVA og á verksamning hjá föð-
ur sínum. „eftir það fluttum við
til Reykjavíkur þegar Guðrún fór
í hjúkrunarskólann. Þar lauk ég
meistaraskólanum en við fluttum
fljótlega aftur upp á Skaga enda
hvergi betra að vera.“ Dóri hefur
starfað á við Heilbrigðisstofnun
Vesturlands, HVe, áður Sjúkrahús
Akraness, frá árinu 1987.
Frábær vinnustaður
„HVe er frábær vinnustaður, mað-
ur sér það best á því hvað starfs-
mannaveltan er lág. Það er mjög
lítið um að fólk sem byrjar á HVe
hætti þar. Mér finnst þetta hafa
verið mjög vel rekið af þeim fram-
kvæmdastjórum sem hér hafa verið
í minni tíð. framkvæmdastjórarn-
ir hafa vissulega verið mismunandi
en allir frábærir hver á sinn hátt að
mínu mati,“ segir Dóri.
Þetta er náttúrulega mjög fjöl-
breytt, að starfa bæði við sjúkra-
flutningana og hitt starfið. Dóri
hefur sem áður segir starfað sem
sjúkraflutningamaður í áratugi.
„Það er alltaf erfitt að koma að
slysum en allra verst er að koma að
sjálfsvígum. Slys geta alltaf gerst og
eru hluti af lífinu, fólk ætlar sér ekki
að lenda í slysum en sjálfsagt verður
aldrei hægt að koma í veg fyrir þau.
Sem betur fer hefur orðið vakning í
þessum málum og mér finnst sjálf-
vígstilraunum hafa fækkað á undan-
förnum árum, vonandi er það rétt
allavega er meiri umræða um þessi
mál með tilkomu t.d. Píeta samtak-
anna,“ segir Dóri.
Samstilltur hópur
Sami hópurinn hefur verið í sjúkra-
flutningunum í mörg ár en smám
saman hefur hópurinn stækkað
enda flutningunum fjölgað mik-
ið, orðin um 1.000 útköll á ári bara
á Akranesi. „Þegar við byrjuðum
í þessu 1995 var alveg hending ef
við fórum til Reykjavíkur. Þá voru
göngin ekki komin og ef sjúklingur
var sendur suður var það eitthvað
alveg sérstakt. Núna förum við
margar ferðir á viku til Reykjavíkur.
flest öll beinbrot eru meðhöndluð
í Reykjavík þó þau séu mynduð hér
og skoðuð. flestar stærri aðgerðir
og sérhæfðari rannsóknir eru gerð-
ar í Reykjavík sem þýðir að það eru
oft margar ferðir fram og til baka
með hvern sjúkling,“ segir Dóri.
„Þetta er afskaplega góður og
samstilltur hópur í sjúkraflutning-
unum hjá HVe. Þetta er þannig
starf að við þurfum að geta treyst
algerlega hvert á annað, þegar við
erum í verkefnum en ekki síður eft-
ir verkefnin. Þau eru þess eðlis oft
að við þurfum að vinna úr reynsl-
unni og þá er ómetanlegt að eiga
góða vinnufélaga. Við sjúkraflutn-
ingamenn vinnum náið með lög-
reglunni hér á Akranesi og höfum
átt frábært samstarf við þá. Til að
stilla saman strengi erum við að
spila við þá fótbolta tvisvar í viku
og kallast þetta „löggu og bófó“
fótboltinn. Við höfum þó lítið spil-
að síðastliðið ár vegna Covid.“
Á árum áður sá lögreglan um
sjúkraflutninga á Akranesi og í
nágrenni þess. Árið 1995 varð sú
breyting að flutningarnir færðust
til sjúkrahússins. Gísli björnsson
sem hafði verið yfir sjúkraflutn-
ingunum var ráðinn sem yfirmað-
ur sjúkraflutninga hjá sjúkrahús-
inu. „Ég var ráðinn í flutningana
með smíðastarfinu. Það er síð-
an um 2010 sem HVe verður til
með sameiningu allra heilbrigðis-
stofnananna á Vesturlandi og hluta
norðvesturlands. Þá er Gísli settur
yfir alla sjúkraflutninga HVe og
ég verð deildarstjóri húsnæðis og
tækja. Okkar samstarf hefur gengið
vel,“ segir Dóri.
Ekið meira vegna
sérhæfingar
Að meðaltali eru um 300-400
sjúkraflutningar milli Akraness og
Reykjavíkur á ári. „Þetta helgast að
hluta af því að sérhæfingin verður
alltaf meiri og meiri. Þetta þýðir að
sjúklingar eru fluttir þangað sem
sérhæfingin á hverju sviði er mest.“
Dóri segir Hvalfjarðargöngin hafa
skipt sköpum því alvarlegum slys-
um í umferðinni og dauðaslysum
hefur fækkað mikið. „Vegurinn um
Hvalfjörð var hlykkjóttur, umferð-
in mikil og fólk ók hann í öllum
veðrum. Við þurfum því mjög oft
að fara á slysavettvang inn í Hval-
fjörð.“
eftir að göngin voru tekin í
gagnið árið 1998 hefur slysum á
leiðinni á milli Akraness og Reykja-
víkur fækkað mikið ef undan er
skilið Kjalarnesið. „Við þurfum oft
að fara í útköll á móti sjúkraflutn-
ingamönnum af höfuðborgarsvæð-
inu. Mér finnst stundum gleymast
í umræðunni um kostnað við gerð
og rekstur Hvalfjarðarganga hversu
mikið hefur sparast með þessari
fækkun slysa.“
Söngurinn
en nú að öðru. Dóri hefur sungið
og starfað með nokkrum kórum og
sönghópum síðan í kringum 1990.
Hann hóf söngferilinn með söng-
hópnum Sólarmegin sem saman-
stóð af áhugafólki um söng á Akra-
nesi. „foreldrar mínir voru virkir í
söngstarfi og var Hallgrímur fað-
ir minn í öllum kórum sem hann
mögulega komst í þannig að ég
ólst upp við söngmenningu. Sól-
armegin var svokallaður acapella
sönghópur, mest sungið án undir-
leiks og stjórnandi hópsins var til
að byrja með Ragnheiður Ólafs-
dóttir en síðan tók Guðmundur Jó-
hannsson við. Hápunkti ferils síns
náði Sólarmegin í tónleikaferð um
Norðurlöndin sem farin var árið
1993 þar sem sungið var í vinabæj-
um Akraness. Ég söng með Sólar-
megin í um tíu ár en þá hætti ég að
syngja og tók mér frí í ein sex eða
sjö ár. Þessi hópur var einstaklega
samheldin,“ segir hann.
Dóri segist eiginlega hafa byrj-
að að syngja aftur eftir hlé þegar
Sveinn Arnar Sæmundsson, org-
anisti og kórstjóri, kom á Akranes.
„Sveinn Arnar kom svolítið eins og
ferskur andblær inn í tónlistarlíf
Akurnesinga,“ segir hann og held-
ur áfram. „Sveinn Arnar hefur ver-
ið mikil vítamínsprauta í tónlistar-
starf, kórstarf og menningarstarf
almennt hér á Akranesi. Hann er
aðal sprautan í stofnun Kalmans-
listafélagsins sem staðið hefur fyr-
ir margsíslegum tónlistar viðburð-
um.“
Mikilvægara að geta
hlustað en sungið
Það var mjög góður skóli og mik-
ill lærdómur að taka þátt í Sólar-
megin segir Dóri. „Það er eigin-
lega meira atriði þegar maður er í
svoleiðis hópi að geta hlustað held-
ur en sungið. Meira atriði að vera
með góða tónheyrn heldur en að
vera með góða rödd.“ Dóri hefur í
mörg ár sungið með Kór Akranes-
kirkju. Kórinn syngur við ýmsar at-
Söngurinn er besta geðlyfið
-segir Halldór Hallgrímsson sem ræðir um sjúkraflutninga, tónlist, íþróttir og sitthvað fleira
Dóri í golfi í Vestmannaeyjum.
Hjónin Dóri og Guðrún með tvö af barnabörnunum; Benjamín Örn Birkisson og Guðrúnu Sölku Hróðmarsdóttur.
Halldór hér í starfi sínu sem deildarstjóri húsnæðis og tækja hjá Heilbrigðis-
stofnun Vesturlands, en aftan við hann má sjá hvar gert er við þakskegg á HVE á
Akranesi.
Dóri í fótbolta.