Skessuhorn - 07.07.2021, Page 4
MIðVIKudAGuR 7. júlÍ 20214
Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 3.877 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 3.348. Rafræn áskrift kostar 3.040 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.800 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is
Finnbogi Rafn Guðmundsson frg@skessuhorn.is
Valdimar K. Sigurðsson vaks@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Ekki vera þögull
og hlutlaus
Það er áhugavert að upplifa þær breytingar sem eru að verða á sýn fólks og
þolinmæði um ýmsa hluti. Til dæmis um hvað er leyfilegt og hvað ekki, hvað
er eðlilegt eða óeðlilegt og almennt hvar eigi að draga mörkin í samskipt-
um. Á ýmsum sviðum erum við að upplifa breytingar hvað þetta snertir, þótt
oft mættu umbæturnar ganga hraðar. Við lifum nefnilega tíma opnara sam-
félags þar sem þöggun á sífellt erfiðara uppdráttar. Nú dugar ekki lengur að
eiga valdamikinn vin eða velviljaða í ábyrgðarstöðum til að koma mönnum til
hjálpar þegar allt er komið í óefni. um leið og umræðan opnast og dregur úr
þolinmæði gagnvart ofbeldi gerist það á miðlum sem seint falla undir það sem
kallað hefur verið ritstýrðir fjölmiðlar. umræðan kviknar þar þótt hún komist
kannski í stóru miðlana þegar ekki verður lengur horft á hlutina með blinda
auganu.
Á þessu ári höfum við orðið vitni að því þegar þjóðþekktir einstaklingar hafa
orðið uppvísir að óverjandi hegðun í garð kvenna og varpa svo alvarlegri rýrð
á þeirra störf að þeim er ekki sætt lengur. Hegðun sem jafnvel hefur viðgengist
í einhver ár en sífellt verið þögguð niður. Í hlut hafa til dæmis átt fjölmiðla-
menn, stjórnmálamenn, tónlistarmenn og aðrir sem flokkast geta til opinberra
persóna. Nú er það farið að gerast að ef þeir hafa brotið af sér gagnvart öðr-
um, einkum þó konum, þá kemur það upp á yfirborðið. ljósi er varpað á sitt-
hvað sem aldrei hefði litið dagsljós fyrir upphaf opinna samfélagsmiðla. Ég
vil þó taka skýrt fram í þessu samhengi að ég er ekkert sérlega hrifinn af því
ef dómstóll götunnar á að taka við hlutverki hefðbundinna dómstóla. En ef
réttarríkið hefur ítrekað brugðist, skort hefur á beinharðar sannanir, þá hafa
gerendur verið látnir njóta vafans, jafnvel svo árum skiptir. Rétt eins og einelti
sem viðgengist hefur í skólum, vinnustöðum og hvar sem er í samfélaginu. Að
sjálfsögðu þurfa alvarlegar ásakanir að byggja á staðreyndum, nú sem fyrr. En
þegar í hlut á ofbeldi þar sem viðstaddir eru kannski einungis gerandinn og
þolandinn, þá verður sönnunarbyrðin erfið. Hinsvegar í þeim tilfellum þegar á
annað hundrað konur stíga fram og benda á að tiltekinn einstaklingur hafi sýnt
af sér allt frá vafasamri hegðun til grófs ofbeldis í árafjöld skal láta þolandann/
þolendurna njóta vafans. Ekkert elsku þetta eða hitt.
Góður vinur minn hefur um margra missera skeið höfðað til annarra karla
í tali sínu og skrifum. Honum finnst að nú sé runninn upp sá tími sem karlar
verða að leiðbeina öðrum körlum í samskiptum við konur, öðruvísi fáum við
ekki betra samfélag. Hann segir að menn verði að hefja umbótaferlið hjá sjálf-
um sér, sonum, frændum, vinnufélögum og í sínu nánast umhverfi. Þeir verða
að standa upp og taka málstað gegn ofbeldi hvar sem það er að finna. Ég ætla,
með hans leyfi, að vísa í nýleg skrif hans: „Taktu afstöðu gegn búningsklefa-
tali félaganna. Taktu samtalið við vin þinn, þennan sem verður svo „slæmur
með víni,“ honum er ekki sjálfrátt… Taktu upp talið um að slík hegðun sé óá-
sættanleg, alltaf. Kæfðu kvenfyrirlitningarbrandara í fæðingu, skakkaðu leik-
inn þegar verið er að áreita konur á götum úti eða inni á skemmtistöðum,
taktu afstöðu gegn ofbeldisklámi, skoraðu á hólm karlmennskuhugmyndir sem
byggja á því að upphefja sjálfan sig á kostnað annarra, styddu Kvennaathvarfið
og Stígamót. Mættu á ráðstefnurnar, lestu og deildu pistlunum sem fjalla um
vandamálið, hlustaðu þegar konur lýsa veruleika sínum, sýndu stuðning þinn í
verki fyrir jafnrétti kynjanna, ekki bara í launum og lögum, heldur líka í þeim
sjálfsagða rétti að geta lifað lífinu án stöðugs ótta við ofbeldi. Ekki eingöngu
vegna þess að þannig viðurkennir þú mennsku kvenna, heldur vegna þess að
þín eigin mennska er í húfi.“
Þessi vinur minn bendir á að eitt af stærstu réttlætismálum samtímans sé að
karlar hagi sér betur í samskiptum við konur; það sé óverjandi lengur að sitja
hjá þögull og hlutlaus. Þögnin, þöggunin gagnvart ofbeldi í garð kvenna, er
einn mesti smánarblettur samfélagsins í dag.
Magnús Magnússonz
Síðastliðinn miðvikudag var í Bíó-
höllinni á Akranesi frumsýnd stutt-
myndin Emil og tímaflakkið. Það er
starfsfólk Fjöliðjunnar á Akranesi
sem vann að gerð myndarinnar og
lék í henni undir leikstjórn Heið-
ars Mar Björnssonar. Emil og tíma-
flakkið fjallar um Emil í Kattholti
sem flakkar fram og aftur um árin
með ýmsa hrekki. Fyrir sýningu
var sungið um Emil. Vel var mætt
í höllina, nánast fullt hús. Myndin
var að sögn tíðindamanns Skessu-
horns aldeilis frábær skemmtun frá
upphafi til enda. Salurinn bókstaf-
lega veltist um af hlátri.
ki
Mikill gangur er í vegagerð á sunn-
anverðum Vestfjörðum. Samkvæmt
frétt á vef Vegagerðarinnar er nú
unnið við vegagerð beggja vegna
við dynjandisheiði og ganga fram-
kvæmdir vel. Þá er hálfnað að koma
fyrsta vegi út í Þorskafjörð en auk
þess unnið við vegagerð í Gufufirði
og útboð væntanlegt hjá Vegagerð-
inni vegna framkvæmda í djúpa-
firði. loks er stefnt að því að bjóða
fljótlega út fleiri áfanga í Gufudals-
sveitinni.
mm
Mánudaginn 28. júní var hópur
skilnaðarráðgjafa útskrifaður við
hátíðlega athöfn. SES (Samvinna
eftir skilnað) er annars vegar raf-
rænn fræðsluvettvangur fyrir for-
eldra í skilnaðarferli og hins veg-
ar sérhæfð skilnaðarráðgjöf á veg-
um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Verkefnið er unnið að danskri fyr-
irmynd og byggir námsefnið á nýj-
ustu þekkingu, rannsóknum fræði-
manna og reynslu fagfólks.
Meðal þeirra sem hlutu starfs-
leyfi sem SES skilnaðarráðgjafar var
Sólveig Sigurðardóttir, félagsmála-
stjóri Hvalfjarðarsveitar en Hval-
fjarðarsveit og Akraneskaupstaður
hafa tekið þátt í tilraunaverkefni
SES frá áramótum ásamt sex öðr-
um sveitarfélögum. Þá fengu þær
Hrefna Rún Ákadóttir og Ásta jóna
Ásmundsdóttir frá Akraneskaup-
stað einnig starfsleyfi en samvinna
hefur verið á milli Hvalfjarðarsveit-
ar og Akraneskaupstaðar í þessu
verkefni.
SES verkefninu hefur verið vel
tekið af foreldrum og samstarfs-
aðilum og talið nýtast vel til að
draga úr ágreiningi milli foreldra
og auka vellíðan og öryggi barna.
Næsta árið er stefnt að því að SES
verði aðgengilegt fyrir alla for-
eldra í skilnaðarferli á Íslandi. For-
eldrar barna sem standa í skilnað-
arferli eða hafa áður slitið samvist-
um eru hvattir til að nýta sér þetta
úrræði. Einnig nýtist það vel fyrir
þá foreldra sem búa ekki saman en
hafa það að markmiði að draga úr
ágreiningi sín á milli við uppeldi
barns eða barna sinna. vaks
Tölvugerð mynd af
brúnni yfir Þorskafjörð
eins og hún kemur
til með að líta út. Nú
er hálfnað að þvera
fjörðinn.
Góður gangur
í vegagerð á
sunnanverðum
Vestfjörðum
Framkvæmdir við Dynjandisheiði ganga vel. Ljósm. Vegagerðin.
Aðstandendur sýningarinnar fagna að henni lokinni framan við Bíóhöllina.
Frumsýndu Emil og tímaflakkið
Nýútskrifaðir skilnaðarráðgjafar: Frá vinstri: Hrefna Rún Ákadóttir, Ásta Jóna
Ásmundsdóttir og Sólveig Sigurðardóttir. Ljósm. Hvalfjarðarsveit.
Útskrift skilnaðarráðgjafa á
Akranesi og í Hvalfjarðarsveit