Skessuhorn - 07.07.2021, Qupperneq 8
MIðVIKudAGuR 7. júlÍ 20218
List í Alviðru
VESTF: Í Alviðru í dýra-
firði dvöldu síðustu daga
tólf listamenn sem unnu
að umhverfislist í landi Al-
viðru. Þema verkefnisins var
Milli fjalls og fjöru. Síðast-
liðinn laugardag var opnun
sýningar á umhverfislista-
verkum í Fjárhúsunum í Al-
viðru. umhverfislistin verð-
ur svo uppi í sumar eða eins
og veðrun leyfir. listamenn-
irnir sem tóku þátt í verk-
efninu voru: Thora Karls-
dóttir, Steinunn Matth-
íasdóttir, Aðalsteinn Þórs-
son, Arna Guðný Valsdótt-
ir, dagrún Matthíasdóttir,
Guðrún Hadda Bjarnadótt-
ir, Ólafur Sveinsson, Mireya
Samper, K j Baysa, Marsi-
bil Kristjánsdóttir, Guðbjörg
lind jónsdóttir og Nina Iv-
anova. -mm
Markaður fyrir
greiðslumark
LANDIÐ: Markaður fyr-
ir greiðslumark mjólkur
verður haldinn 1. septem-
ber næstkomandi. Í tilkynn-
ingu frá atvinnuvegaráðu-
neytinu kemur fram að há-
marki sé hægt að óska eft-
ir 50.000 lítrum til kaups á
hverjum markaði, eða alls
150.000 lítrum árlega. Þá má
hlutdeild framleiðanda eða
framleiðenda sem eru í eigu
einstakra aðila, einstaklinga,
lögaðila eða tengdra aðila
ekki nema hærra hlutfalli
en 1,2% af árlegu heildar-
greiðslumarki mjólkur. Ný-
liðar skulu eiga forkaupsrétt
á 5% af því greiðslumarki
sem boðið er til sölu á hverj-
um markaði, svo lengi sem
þeir uppfylla skilyrði reglu-
gerðarinnar um gilt kaup-
tilboð og að því gefnu að
þeir bjóði verð sem er jafnt
eða hærra en jafnvægisverð.
Samkvæmt reglugerð er há-
marksverð greiðslumarks á
markaðnum 305 kr. á lítra.
Tilboðum um kaup og sölu
greiðslumarks skal skila raf-
rænt á afurd.is en opnað hef-
ur verið fyrir tilboð. -mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
26. júní. til 2. júlí
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu.
Akranes: 24 bátar.
Heildarlöndun: 29.317 kg.
Mestur afli: Knolli BA-8: 3.876
kg. í einni löndun.
Arnarstapi: 15 bátar.
Heildarlöndun: 13.962 kg.
Mestur afli: Heppinn AK-31:
2.548 kg. í einni löndun.
Grundarfjörður: 20 bátar.
Heildarlöndun: 373.832 kg.
Mestur afli: Steinunn SF-10:
145.565 kg. í tveimur löndunum.
Ólafsvík: 29 bátar.
Heildarlöndun: 44.904 kg.
Mestur afli: Rán SH-307: 9.296
kg. í einni löndun.
Rif: 22 bátar.
Heildarlöndun: 65.849 kg.
Mestur afli: Bárður SH-81:
18.475 kg. í einni löndun.
Stykkishólmur: 12 bátar.
Heildarlöndun: 19.374 kg.
Mestur afli: Fríða SH-565: 5.008
kg. í fjórum löndunum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Steinunn SF-10 GRU: 88.706
kg. 27. júní.
2. Hringur SH-153 GRU:
72.000 kg. 28. júní.
3. Runólfur SH-135 GRU:
63.277 kg. 28. júní.
4. Steinunn SF-10 GRU: 56.859
kg. 30. júní.
5. Björg EA-7 GRU: 47.922 kg.
1. júlí.
Slysavarnafélagið landsbjörg hefur
samið við finnsku skipasmíðastöð-
ina KewaTec um smíði á þremur
nýjum björgunarskipum. Stefnt er
að því að skipin verði tekin í notk-
un fyrir mitt ár 2023. Smíði á fyrsta
skipinu hefst í lok október á þessu
ári, en það leysir af hólmi 28 ára
gamalt skip sem keypt var nýtt til
Vestmannaeyja árið 1993. Afhend-
ing á því fer fram í júnílok 2022.
Annað skipið verður síðan afhent
fyrir lok árs 2022 og það þriðja á
fyrri hluta ársins 2023.
KewaTec, sem annast smíðina,
er í Kokkola í vestur-Finnlandi og
hefur verið starfrækt síðan 1998.
Fyrirtækið hefur víðtæka reynslu
af smíði vinnu-, slökkvi-, björg-
unarbáta og farþegaferja. Björg-
unarskipin þrjú koma í stað eldri
skipa landsbjargar en félagið ger-
ir út 13 björgunarskip vítt og breitt
um landið í samstarfi við björg-
unarsveitir. Meðalaldur skipanna
er nærri 35 ár en til samanburðar
miða systursamtök landsbjargar á
Norðurlöndunum flest við að þeirra
björgunarskip verði ekki eldri en 25
ára. Meirihluti skipa landsbjargar
er því kominn vel til ára sinna og
þarfnast endurnýjunar.
Kaupverð skipanna þriggja er 855
milljónir króna. Ríkið fjármagn-
ar helming kaupverðs og Slysa-
varnafélagið landsbjörg og björg-
unarsveitir hinn helminginn. Að-
koma ríkisins byggir á samkomu-
lagi félagsins við dómsmálaráðu-
neytið um að ríkið fjármagni verk-
efnið að hluta en í upphafi árs rit-
uðu forsætisráðherra, fjármála- og
efnahagsráðherra, samgöngu- og
sveitarstjórnaráðherra, auk dóms-
málaráðherra undir viljayfirlýsingu
um endurnýjun skipaflotans næstu
tíu árin. Hún gerir ráð fyrir endur-
nýjun sjö skipa til viðbótar næstu
sjö árin eftir að smíði fyrstu þriggja
skipanna lýkur.
mm
Á vef Faxaflóahafna má finna yfirlit
yfir komur skemmtiferðaskipa í
sumar. Þar má sjá að heimsókn-
ir slíkra skipa til Akraness verða
alls sjö talsins í sumar, fram til
30. september. Það skip sem oft-
ast mun hafa viðkomu er National
Geographic Explorer en það kem-
ur alls fimm sinnum nú í júlí en
fyrsta viðkoma þess var síðastliðinn
sunnudag. Skipið er 6.471 brúttó-
tonn, 112 metrar á lengd, skráð á
Bahamas og rúmar alls 148 farþega.
National Geographic Endurance
kemur einu sinni á Akranes, í lok
júlí. Skipið er 12.786 brúttótonn,
skráð á Bahamas og rúmar alls 126
farþega. Síðast til þess að koma í
heimsókn á Akranes er svo Quest
en það er skráð í Færeyjum; 1.268
brúttótonn, 45,61 metrar og rúmar
53 farþega.
Ef miðað er við að skipin komi
með fullfermi af farþegum þá
verður heildarfjöldi farþega 919.
Rútur mæta oftast við skipshlið og
flytja farþegana víðs vegar um Ves-
turland þar sem þeir njóta ýmis ko-
nar þjónustu. Í nýlegri könnun kom
fram að meðal eyðsla ferðamanns í
hverri komu í höfn nam rúmum 18
þúsund krónum. Farþegar þessara
skipa gætu því í besta falli skilið um
16 og hálfa milljón króna eftir í su-
mar.
frg/ Ljósm. Marine Traffic.
Öllum 32 starfsmönnum fisk-
vinnslufyrirtækisins Agustson ehf.
í Stykkishólmi var sagt upp störf-
um nú fyrir mánaðamótin. Starfs-
mönnum voru tilkynnt þessi tíð-
indi á starfsmannafundi á mánu-
dag, sagði Sigurður Ágústsson
einn eiganda fyrirtækisins í viðtali
við mbl.is. uppsagnirnar koma
til vegna viðvarandi rekstrarerf-
iðleika og tapreksturs. Þá seg-
ir í tilkynningu vegna málsins
að við taki krefjandi endurskipu-
lagningarferli með það að mark-
miði að tryggja sjálfbæran rekstur
til lengri tíma. Stefnt sé að því að
halda úti rekstri en umsvifin verði
smærri.
Ákvörðunin um að segja upp
starfsfólkinu er sögð óumflýjan-
leg miðað við núverandi rekstr-
arumhverfi þar sem smærri sjáv-
arútvegsfyrirtæki hafa átt undir
högg að sækja. Vísað er til hækk-
andi rekstrarkostnaðar sem ekki
hefur tekist að mæta með stærðar-
hagkvæmni auk þess sem boðaður
13% samdráttur í útgefnum afla-
heimildum á þorski á næsta fisk-
veiðiári hafi komið niður á áætl-
aðri afkomu fyrirtækisins.
Samkvæmt ársreikningum fyr-
irtækisins fyrir árið 2019 skilaði
fyrirtækið 92,6 milljóna króna
tapi og 100,9 milljóna króna tapi
árið 2018.
vaks
Sigurður Ágústsson, framkvæmda-
stjóri og einn af eigendum Agustson
Öllum starfsmönnum Agustson
í Stykkishólmi sagt upp
Við tekur krefjandi endurskipulagningarferli hjá Agustson ehf.
Skemmtiferðaskip koma aftur til Akraness
National Geographic Explorer
í Akraneshöfn á sunnudaginn.
Ljósm. Hilmar Sigvaldason.
Tölvugerð mynd af björgunarskipi
hliðstæðu þeim sem keypt verða frá
Finnlandi.
Samningur um smíði þriggja
nýrra björgunarskipa