Skessuhorn - 07.07.2021, Page 13
MIðVIKudAGuR 7. júlÍ 2021 13
Þjóðbúningahátíðin Skotthúfan
var haldin í Stykkishólmi í blíð-
skaparveðri síðastliðinn laugardag.
Að sögn Önnu Melsteð, eins af að-
standendum hátíðarinnar, mætti
fjöldi fólks á hátíðina og heppn-
aðist hún mjög vel. um morgun-
inn fór fram sögugangan Í fótspor
fjallkonu um Stykkishólm þar sem
göngufólkið var í þjóðbúningum.
Börnum var boðið að koma og
máta sig í þjóðbúninga og sagði
Anna að um fjörutíu börn hefðu
notað tækifærið og verið klædd í
þjóðbúninga og máttu síðan fara
út að leika sér. Íslenski þjóðbún-
ingurinn kláraðist og var gripið til
þess að leyfa börnunum að máta
þjóðbúninga frá öðrum löndum,
meðal annars Póllandi og Austur-
ríki.
Gestum sem mættu í þjóðbún-
ingum í Norska húsið var boðið
upp á kaffi og rjómavöfflur auk þess
sem sett var upp í fyrsta skipta lít-
ið pop up kaffihús á jarðhæð húss-
ins þar sem gestir gátu keypt sér
kaffi og með því. Þá var haldin þar
sýning á þjóðbúningum barna frá
ýmsum löndum. Búningar á sýn-
ingunni komu víðs vegar að. Hið
90 ára gamla Heimilisiðnaðarfélag
lagði til búninga, búningar komu
einnig frá Byggðasafni Snæfellinga
og Hnappdæla auk þess sem fólk
lagði til búninga í einkaeigu. Há-
tíðinni lauk síðan með tónleikum
hljómsveitarinnar Kólgu í gömlu
kirkjunni í Stykkishólmi.
frg / Ljósm. af Facebooksíðu
Skotthúfunnar og hljómsveitar-
innar Kólgu.
Þjóðlagasveitin Kólga hélt tónleika í gömlu kirkjunni í Stykkishólmi.
Þjóðbúningahátíðin
Skotthúfan í Stykkishólmi
Gestir í þjóðbúningum á Skotthúfunni.
Börn voru sérstaklega velkomin og var boðið upp á að máta þjóðbúninga og fara svo út að leika sér.
Gestir á hátíðinni prúðbúnir.