Skessuhorn - 07.07.2021, Qupperneq 17
MIðVIKudAGuR 7. júlÍ 2021 17
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Vegna flutnings á bókalager útgefinna bóka Sögufélagsins
þarf að fækka eintökum umtalsvert. Því vill félagið bjóða
eftirtaldar bækur endurgjaldslaust meðan birgðir end-
ast:
Íbúatal frá 2011.•
Borgfirðingabók 1981 og 1983- 2004 og 2006 - 2015.•
Borgfirzkar æviskrár, bindi 1 - 6 og 8 -13.•
Æviskrár Akurnesinga, bindi 1, 2 og 4.•
Sendingarkostnaður er ekki innifalinn.
Upplagt ef einhver af þessum bindum hjá ykkur eru lesin
upp til agna og þarf að endurnýja bókakostinn.
Útgáfa Æviskránna hófst 1969 því er ekki ólíklegt að elstu
bindin séu farin að láta ásjá.
Tilboðið stendur til 18. júlí. Hafið samband sem fyrst.
Pantanir hjá:
Guðmundi s. 6177317,
Ingibjörgu s. 8948108
Sævari s. 8975187
Látið ekki happ úr hendi sleppa.
Frá Sögufélagi
Borgarfjarðar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
1
Deiliskipulagstillaga í
landi Eyrar í Svínadal
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann
13. apríl 2021 að endurauglýsa deiliskipulagstillögu fyrir Eyrarás
og Eyrarskjól í Hvalfjarðarsveit sbr. 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga
nr. 123/2010.
Um er að ræða breytingu á landnotkun í landi Eyrar og tekur til
lóðanna Eyrarás og Eyrarskjól.
Á Eyrarási eru byggingarreitir fyrir íbúðarhús og skemmu.
Íbúðarhús á einni hæð allt að 300m², þar með talinn bílskúr og
geymsla.
Eyrarskjól er gert ráð fyrir þremur fristundarhúsunum innan
byggingarreits og má hvert hús verða allt að 50m².
Deiliskipulagstillagan liggur frammi á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar
og einnig á heimasíðu sveitarfélagsins www.hvalfjardarsveit.is.
Athugasemdum skal skilað til skrifstofu Hvalfjarðarsveitar
að Innrimel 3, 301 Akranesi, eða netfangið skipulag@
hvalfjardarsveit.is merkt ”Eyri Svínadal”. fyrir 20 ágúst 2021.
Bogi Kristinsson Magnusen
Skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar
skipulag@hvalfjardarsveit.is
Á fundi Byggðarráðs Borgarbyggð-
ar 24. júní síðastliðinn var lagt fram
bréf Húsnæðis- og mannvirkj-
astofnunar (HMS) um úttekt sem
stofnunin gerði á Slökkviliði Borg-
arbyggðar 1. júní. Í bréfinu kemur
fram að HMS tryggi samræmingu
eldvarnaeftirlits og slökkvistarfs
um land allt. Í því skyni skuli hún
gera sjálfstæðar athuganir og út-
tektir með því að leiðbeina sveitar-
stjórnum um þær kröfur sem gerð-
ar eru til eldvarnaeftirlits og starf-
semi slökkviliða samkvæmt lög-
um um brunavarnir. Markmið-
ið með úttektinni var að staðreyna
hvort framkvæmd starfs slökkvi-
liðsins væri í samræmi við lög um
brunavarnir, reglugerðum settum
á grundvelli þeirra og brunavarna-
áætlun sveitarfélagsins og koma á
framfæri leiðbeiningum til sveit-
arstjórnarinnar um það sem betur
mætti fara eftir því sem við á. Var
leitað umsagnar slökkviliðsstjóra
við úttektina og við niðurstöður
hennar var tekið tillit til fenginna
athugasemda hans.
Dælubifreið kæmist
ekki úr húsi
Athugasemdir í úttektinni eru
þrenns konar; gular þýða lítið frá-
vik, appelsínugular þýða að eitt-
hvað þarfnist úrbóta og rauðar gefa
til kynna að eitthvað sé í ólagi. Við
lestur úttektarinnar vekja nokk-
ur atriði athygli og þá sérstak-
lega rauðu athugasemdirnar. Varð-
andi húsnæði kemur fram að út-
keyrsluhurðir stöðvanna á Bif-
röst og Hvanneyri eru varasam-
ar. Á Hvanneyri virkar handknúin
opnun hurða ekki og kæmi til raf-
magnsleysis gæti dælubifreið ekki
ekið úr húsi. Þá er gerð athuga-
semd við slökkvistöðina á Hvann-
eyri um að ökuleið dælubifreiðar sé
takmörkuð og varasöm. Gerðar eru
athugasemdir við geymslu hlífðar-
fatnaðar, óviðkomandi starfsemi í
slökkvistöðvum og skort á bruna-
hólfun. Athugasemd er gerð við að
slökkviliðið uppfylli ekki kröfur um
lágmarksbúnað til að geta tekist á
við mengunaróhöpp sem teljast til
eins af lögbundnum hlutverkum
slökkviliðs.
Appelsínugular athugasemdir
þýða að úrbóta sé þörf. Þær lúta
meðal annars að skorti á aðstöðu
til þrifa og skorti á starfsmanna-
aðstöðu. Skortur er sagður á við-
eigandi undirfatnaði og eiturefna-
göllum. loftpressa þarfnast úrbóta
auk þess sem bent er á nokkur at-
riði sem lúta að rekstri og skipulagi.
Að auki eru gerðar nokkrar smærri
athugasemdir, gular, sem þýða lít-
ið frávik frá skilyrðum reglugerð-
ar. Þar er meðal annars fjallað um
skýrslugerð og skráningar, þörf á
AEd hjartastuðtæki og aðgengis-
mál í Skorradal sem sagt er að þurfi
að bæta.
Búið að lagfæra
heilmikið
Bjarni Þorsteinsson, slökkviliðs-
stjóri í Borgarbyggð, segir í sam-
tali við Skessuhorn að búið sé að
lagfæra heilmikið varðandi bún-
að slökkviliðsins og að myndar-
lega hafi verið tekið á menntun-
armálum. „Húsnæðismálin eru
stóra vandamálið í okkar starfsemi.
Húsin þurfa að uppfylla þá staðla
og þær kröfur sem Húsnæðis- og
mannvirkjastofnun setur til þess að
slökkviliðið geti sinnt lögbundnu
hlutverki sínu,“ segir Bjarni og
bendir jafnframt á að slökkviliðið
hefur lagt fram tíu ára áætlun um
uppbyggingu liðsins. „Húsnæðis-
mál slökkviliðsins eru undir sveitar-
stjórn Borgarbyggðar komin,“ seg-
ir Bjarni enn fremur.
Niðurstöðum úr úttektinni var
vísað til umsagnar fagráðs Slökkvi-
liðs Borgarbyggðar. jafnframt var
þeim hluta athugasemda sem út-
heimtir aukið fjármagn til fjárhags-
áætlunargerðar, fyrir árið 2022 og
tíu ára áætlunar slökkviliðsins. Að
umsögn fagráðs fenginni er sveitar-
stjóra falið að senda erindi til Hús-
næðis og mannvirkjastofnunar með
rökstuddri úrbótaáætlun sveitar-
félagsins til næstu ára.
frg
Slökkvilið Borgarbyggðar
fær rauðar athugasemdir