Skessuhorn - 07.07.2021, Blaðsíða 19
MIðVIKudAGuR 7. júlÍ 2021 19
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Við hjá Landsneti óskum eftir ábendingum vegna fyrirhugaðrar tengingar
í raforkukerfinu frá Klafastöðum í Hvalfirði að nýju tengivirki á Holtavörðuheiði.
Svæðið hefur verið skoðað af sérfræðingum okkar og þeirra mat er að núverandi
línustæði henti að mestu ágætlega. Línuleið samsíða eldri línu verður því einn
valkostanna í komandi umhverfismati.
Fleiri valkostir geta komið til álita og því óskum við eftir hugmyndum varðandi
línuleiðir (alla leið eða hluta af leið), gerðir mastra og aðgerðir til að lágmarka áhrif.
Farið verður yfir allar hugmyndir og í kjölfarið tekin ákvörðum um valkosti sem
verða metnir og bornir saman í áframhaldandi samráði.
Leitast verður eftir því að lágmarka áhrif á viðkvæm og mikilvæg svæði. Því óskum
við jafnframt eftir ábendingum um svæði sem fólki þykir hafa sérstakt gildi.
Markmiðið er að komast að skynsamlegri niðurstöðu um aðalvalkost, þar sem tekið
er tillit til sem flestra þátta með hliðsjón af öryggi, umhverfi og efnahag.
Hægt er að koma ábendingum á framfæri á landsnet.is til 19. júlí næstkomandi.
Vefsjá Holtavörðuheiðarlínu 1 er aðgengileg hér:
hh1.netlify.app
Taktu þátt í að leggja línurnar
fyrir spennandi framtíð
Holtavörðuheiðarlína 1
HAFÐU ÁHRIF
Í síðustu viku var tilkynnt að Eva
Björg Ægisdóttir rithöfundur frá
Akranesi hlyti „Rýtinginn,“ verð-
laun Samtaka breskra glæpasagna-
höfunda árið 2021 í flokknum
frumraun ársins („New Blood“).
Verðlaunin hlýtur hún fyrir bókina
Marrið í stiganum. Þetta er í fyrsta
skipti sem þýdd bók fær þessi verð-
laun. Í apríl síðastliðnum var birtur
svokallaður langur listi yfir þrett-
án tilnefndar bækur og var Marrið
eina þýdda bókin sem komst þang-
að inn. listinn var síðan skorinn
niður í aðeins sex bækur í lok maí.
Og nú stendur Eva Björg uppi sem
sigurvegari.
Það er skammt stórra högga á
milli hjá Evu Björgu Ægisdóttur. Á
dögunum var greint frá því að þýska
forlagið Kiepenheuer & Witsch
hefði tryggt sér réttinn á Marrinu í
stiganum en mörg af helstu útgáfu-
félögum Þjóðverja bitust um bókina
á æsispennandi uppboði. Eva Björg
er nú stödd á Quais du polar glæpa-
sagnahátíðinni í lyon í Frakklandi
en þangað koma um 60.000 gestir
á ári hverju.
Fyrir Marrið í stiganum hlaut
Eva Björg Ægisdóttir fyrst allra
Svartfuglinn – glæpasagnaverðlaun
sem Yrsa Sigurðardóttir og Ragn-
ar jónasson stofnuðu til í samvinnu
við útgefanda sinn, Veröld, árið
2018. Marrið hefur nú þegar verið
gefið út á ensku og frönsku og hafa
viðtökur verið afar góðar. Gagnrýn-
andi The Times sagði t.d. að „þessi
framúrskarandi fyrsta skáldsaga
Evu Bjargar væri ekki aðeins safa-
rík ráðgáta heldur líka hrollvekj-
andi lýsing á því hvernig skrímsli
verða til.“ Alls hefur útgáfuréttur-
inn á Marrinu í stiganum nú verið
seldur á sjö tungumál en viðræður
standa yfir við forlög víða um heim.
Eva Björg hefur sent frá þér þrjár
glæpasögur á jafn mörgum árum.
Stelpur sem ljúga kom út 2019 og
Næturskuggar í fyrra. Hún vinnur
nú að sinni fjórðu bók sem Veröld
gefur út í haust. mm
Samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðuneytið og félagsmálaráðu-
neytið hafa tekið höndum sam-
an um uppbyggingu nýrrar mann-
virkjaskrár, gagnagrunns um ís-
lensk mannvirki. Markmiðið er
að tryggja samfélaginu á hverjum
tíma áreiðanlegar rauntímaupplýs-
ingar um mannvirkjagerð og stöð-
una á húsnæðismarkaði. Ráðgert er
að ný mannvirkjaskrá verði kom-
in í gagnið 1. júní 2022. Í mann-
virkjaskrá verða nákvæm og áreið-
anleg gögn um mannvirki á Íslandi
og byggingarstig þeirra. Það verð-
ur m.a. hægt að fylgjast með fjölda
íbúða í byggingu eftir byggingar-
stigi. upplýsingar um fasteigna-
og brunabótamat verða einnig að-
gengilegar, m.a. fyrir ytri vefþjón-
ustu.
Húsnæðis- og mannvirkjastofn-
un mun halda utan um nýju mann-
virkjaskrána og þróa gagnagrunn-
inn í samstarfi við aðila verkefnis-
ins. Mannvirki hafa hingað til verið
skráð í fasteignaskrá Þjóðskrár Ís-
lands en með þessum breytingum
verður mannvirkjaskrá nú aðgreind
frá öðrum hlutum fasteignaskrár-
innar. Þjóðskrá mun á hinn bóginn
áfram halda utan um landeignaskrá
og staðfangaskrá. Markmið er að
lækka kostnað sveitarfélaga, fyrir-
tækja og stofnana sem nýta mann-
virkjaskrána en auka á sama tíma
þjónustu og leita tækifæra til frek-
ari umbóta. mm
Ætla að byggja upp nýjan
gagnagrunn um mannvirki
Marrið í stiganum hlýtur virt verðlaun